Morgunblaðið - 30.12.2007, Side 37
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 37
K
láravín, feiti og merg-
ur með mun þar til
rétta veitt.“
Svona er mataræð-
inu í paradís lýst í
gömlu vísubroti sem ég man ekki
hver er höfundur að svo við skul-
um bara kalla það húsgang. Þetta
var sá matseðill sem forfeður okk-
ar dreymdi um en töldu útilokað
að þeir nytu hérna megin grafar
og sáu harða dýrafitu og gnótt
áfengis þess vegna í hillingum trú-
arinnar.
Í dag erum við að kafna í of-
gnótt og stjórnleysi offitu sem er
skilgreind sem stærsta heilsufars-
vandamál tuttugustu aldarinnar
og talið að sú kynslóð barna sem
nú vex úr grasi verði hin fyrsta
sem getur ekki búist við að lifa
foreldra sína.
Fitan sem forfeður okkar
dreymdi um að njóta í paradís
handan grafar mun því skila af-
komendum okkar sýnu fyrr yfir
landamærin langþráðu. Ef nútíma-
maðurinn ætti að lýsa matseðl-
inum í mötuneytinu í Himnaríki er
hætt við að speltbrauð, ávextir,
grænmeti og gervisykur væri þar
í aðalhlutverki.
Þessa síðustu daga ársins sitja
heilir og hálfir árgangar Íslend-
inga á besta aldri kúgaðir af sam-
viskubiti með sligaða sjálfsmynd
komnir langt fram úr allri kjör-
þyngd og heilsufarsviðmiðum. All-
ar megrunarkvalirnar, safakúrinn,
South Beach kúrinn, Scarsdale
kúrinn, Atkins kúrinn og danski
kúrinn gera ekkert nema sveifla
líkamsþyngd hinna ístöðulausu í
sístækkandi hringi út frá því æski-
lega jafnvægi sem þyngd manna
ætti að vera í. Í hvert skipti sem
kúrnum er lokið tekur langsveltur
líkaminn við að hamstra varaforða
fyrir næsta svelti og brátt marrar
í saumum á ný og þykkar fellingar
hlykkjast um þjó og lendar alveg
eins og síðast.
Ein hitaeining er orkan sem
þarf til að hita einn lítra af vatni
um eitt stig á Celsíus. Þetta er í
rauninni sáraeinfalt. Til þess að
grennast þarf einungis að borða
minna en maður brennir. Til þess
að komast hjá því að drepa sig á
reykingum þarf bara að drepa í
sígarettunni og til þess að drekka
sig ekki í rennusteininn þarf bara
að hætta að drekka. Þetta er svo
einfalt en allt það einfalda í lífinu
er erfitt og ekkert fæst án fyr-
irhafnar. Þetta vita þeir sem
komnir eru á miðjan aldur og
hafa fyrri hluta ævinnar vanið sig
án fyrirhafnar á hvers kyns lesti
og ósiði en kvalist svo seinni
hluta ársins við að venja sig af
þeim sömu ósiðum og hefur svo
hver nokkuð að iðja meðan ævin
endist.
Þeir sem selja fólki megrun-
arkúra vilja gjarnan ljúga því að
viðskiptavinum sínum að hægt sé
að grennast án fyrirhafnar eins
og reglubundinnar hreyfingar eða
einhvers mótlætis og afneitunar í
mataræði. Þeir sem þurfa að
grennast vilja gjarnan láta ljúga
að sér og telja sér trú um að
smávægilegar breytingar leiði af
sér kraftaverk.
Blindaður af afneitun og leti
fer hinn feiti upp í Yggdrasil í
hádeginu og kaupir sér lífrænt
ræktaða gráfíkju og speltkex sem
er svo gott að maula í síðdeg-
iskaffinu af því að maður er í
átaki á nýja árinu og finnst hann
bara nokkuð góður á því. Enginn
talar um pokana af kart-
öfluflögum undir rúminu eða
majonessalatið í hádeginu og
frönsku kartöflurnar því vamb-
arpúkinn gefur engin grið. Fitan
leggst líka á heilann og svæfir
skynsemina og blekkir hinn feita.
Í hverju kílói af hreinni fitu
sem bylgjast utan á líkama nú-
tímamanna og kvenna eru 8000
þúsund hitaeiningar. Það er ígildi
12 klukkustunda hlaups. Með því
að fækka daglegum hitaeiningum
um 1000 á dag tekur það samt 10
daga að losna við eitt kíló. Þetta
er hin miskunnarlausa eðlisfræði
offitunnar og það er engin leið
framhjá henni. Gangi ykkur vel.
Eðlisfræði
offitunnar
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Sölustaður
KR-heimilið við Frostaskjól
Afgreiðslutími
28.12.kl. 10–22
29.12.kl. 10–22
30.12. kl. 10–22
31.12. kl. 9–16
4.000,- 3.000,-
5.500,-
5.500,-
7.000,-
6.000,-
Goðheimar og Jötunheimar
Risakökur og ísskápar
Yfir tuttugu tegundir af risakökum og ísskápum.
Hlaupvídd 12, 49150 skot.
Það allra nýjasta eru blævængir,
marghleypur og tjaldsveipir.
Ekki missa af þeim.
Takmarkað magn.
5.000,-
Royal flugeldar
Kökur, rakettur og skotrör frá Royal eru
alvörugræjur sem klikka ekki.