Morgunblaðið - 30.12.2007, Side 40
sjónspegill
40 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
U
ndarleg tilfinning að
vera staddur hér í Pu-
erto Plata í Norður-
hluta Dóminíska lýð-
veldisins, einkum
vegna þess að stefna skyldi síður tek-
in á þær slóðir, mun frekar Suður-
Evrópu. Ekki svo að ég hafi hið
minnsta á móti eyjunum á Karab-
ískahafinu, þvert á móti hefur mér
alltaf fundist klasinn sem byrjar á
Kúbu í norðri og endar á Trínidad og
Tóbagó í suðri í hæsta lagi áhuga-
verður. Einkum vegna þess að ég veit
svo miklu minna um hann en Norð-
ur-, Mið- og Suður-Ameríku, auðvitað
utan þess að Kólumbus bar að á norð-
urhluta Bahamaeyja, sennilega San
Salvador, föstudaginn 12. október
1492 eins og trúlega er getið í landa-
fræðibókum barnaskóla. Landkönn-
uðurinn mikli hafði nú ekki hugmynd
um hvar hann væri staddur, og þrátt
fyrir að fara tvær ferðir til viðbótar á
sömu slóðir hélt hann til dauðadags
að hann hefði fundið sjóleiðina til Ind-
lands, sem var einmitt upprunalega
og stóra markmiðið.
Lítið er vitað um mannlíf á eyj-
unum fyrir daga Kólumbusar en nú
hefur það verið rakið 4000 ár aftur
fyrir tímatal okkar, eða allt til stein-
aldar. Það sem bar fyrir augu sæfar-
ans gagntók hann, hver eyja ný op-
inberun, en þrátt fyrir að hafa fyrir
framan sig þessa ósnortnu Paradís á
jörðu, undurfagran gróður, milt og
heilnæmt loftslag, ofgnótt mat-
arfanga, og að vinsamlegir ættbálkar
tækju á móti aðkomumönnunum sem
guðum, hvarflaði ekki að honum að
hér bæri að fara gætilega og af mann-
gæsku að hlutunum. Nei, hagn-
aðarvonin og græðgin voru í fyr-
irrúmi og í stað þess að virða trúarsiði
ættbálkanna taldi hann að auðvelt
yrði að kristna þessa einföldu „villu-
trúarsálir“ og nýta sem vinnuafl.
Frumbyggjarnir voru að meg-inhluta hinir hávöxnu oglimafögru arawak og ófrið-
arsömu caribin-indíánar sem voru ný-
fluttir á svæðið. Arawak-indíánarnir
voru friðsamir og blönduðust auð-
veldlega öðrum kynstofnum. Þeir
lifðu kyrrlátir og vel skipulagðir í
smásamfélögum og höfðinginn nefnd-
ist cacique, titill sem bæði karlar og
konur gátu náð. Cacique var þó að-
allega eins konar kranskökufígúra
sem samdi við aðra ættflokka og lagði
niður fjölskyldudeilur, hafði þó viss
forréttindi, karl í embætti mátti hafa
fleiri konur og hafði rétt til að láta
kyrkja sig ef hann yrði illa veikur, svo
hann skyldi ekki þjást. Margt bendir
til að þetta hafi verið þjóðfélag jafn-
réttis, hvar konurnar höfðu ekki svo
lítið til málanna að leggja. Lífsskil-
yrðin voru góð og indíánarnir þurftu
ekki að óttast hungur, þeir urðu stór-
ir, sterkir og langlífir. Hinir friðsömu
og vel byggðu arawakar reyndust
lostæti fyrir aðkomna, sem tóku að
streyma frá frumskógum Suður-
Ameríku um 1200, einkum hina mis-
kunnarlausu cariba sem yfirtóku eyju
eftir eyju á hrottalegan hátt. Þeir eru
sagðir hafa étið karlkyns arawaka og
gert konurnar að þrælum sínum, orð-
ið „cannibal“ kemur einmitt frá þess-
um indíánum. Ýmsar skondnar sögur
voru spunnar upp, eins og að Spán-
verjar yllu hægðatregðu, Frans-
mennirnir væru lostæti en Englend-
ingar ólseigir undir tönn. Að vísu
bera menn brigður á mannátið, þar á
meðal sjálfur Kólumbus, en menn
voru ekki ýkjavandlátir á það sem
þeir lögðu sér til munns á þessum
tíma og má vísa til þess að á eyjunum
var stór og merkileg hundategund
sem hafði þann eiginleika að geta
ekki gelt en var ljúffeng á bragðið og
mun, er fram liðu stundir, öll hafa far-
ið í maga liðsmanna Kólumbusar. En
mannát og villimennska innfæddra
voru trúlega notuð sem afsökun fyrir
framferði Spánverjanna, einnig gild
ástæða til að kristna þá og vanda þar
lítið til verka.
Ekki gekk Spánverjum semskyldi að nýta innfædda semvinnuafl vegna þess að þeir
voru ekki vanir þessari nýju tegund
líkamlegs erfiðis og hrundu niður,
margir frömdu sjálfsmorð með því að
éta mold, taka inn eitur eða kasta sér
fyrir björg. Á aðeins fjórum árum
fækkaði indíánum á eyjunni Hisp-
aniola um helming og um 1520 hafði
indíánum næstum verið útrýmt, hafði
tekið minna en 30 ár, ónæmiskerfi
þeirra var til viðbótar óvirkt gagna-
vart pestum eins og mislingum og
bólu og einn faraldur gat útrýmt heilu
þorpi á stuttum tíma. Carib-
indíánarnir veittu grimmilegustu
mótspyrnuna og ýmsar byggðir
þeirra höfðu Spánverjarnir næstum
gefist upp á að taka þegar sjúkdóm-
arnir réttu þeim óforvarendis hjálp-
arhönd.
Vinnuafl sóttu Spánverjar nú til
Afríku, keyptu þræla af innfæddum
höfðingjum sem héldu slíka og þegar
hinir sömu höfðu selt þeim alla sína
héldu þeir á veiðar til að góma fleiri,
hagnaðarvonin stýrði gerðum beggja.
Ekki svo að almenningur á Spáni
væri samþykkur meðferðinni á indí-
ánum og þrælunum og óvægar deilur
risu upp þegar munkur nokkur lýsti
því hvað gert væri við þessar mann-
eskjur, menn höfðu nefnilega aldrei
verið mikið fyrir þrælahald í heima-
landinu. Þörfin á þrælum jókst í jöfnu
hlutfalli við að landeigendur brutu
undir sig stærri svæði til ræktunar og
til þess að spara innflutning á þrælum
var lögð áhersla á mikilli viðkomu.
Konurnar á ökrunum voru svo til allt-
af óléttar og það var nokkurn veginn
sama eftir hverja, sjálfir landeigend-
urnir létu til viðbótar sinn hlut ekki
eftir liggja.
Af þessu leiðir að sjálfsögðu aðmikil blóðblöndun átti sérstað og mest á hún að hafa
verið í Trínidad og Tóbagó en þar er
sagt að enginn sé jarðbundinn íbúi
sem ekki geti rakið ættir sínar í fimm
áttir …
Eins og margur veit hefur pólitíska
andrúmið verið viðsjárvert á þessum
slóðum, svona líkt og í Mið-Ameríku
og gengið á ýmsu með lífsafkomuna,
auðinum misskipt og fátækt mikil,
vörur ódýrar en mikið til lélegar utan
þess sem sjálf náttúran gefur af sér.
Svo komið byggir hinn fagri og gróð-
ursæli, eyjarhelmingur (hinn er
Haíti), afkomu sína að stórum hluta á
túrisma af milligráðunni enda strand-
lengjan firnalöng, einkum í norður-
hlutanum. Segir sig sjálft að mikið
hefur gengið á náttúruna og er sagt
að ef Kólumbus bæri að í dag myndi
hann einungis þekkja Dominica í
suðri. Sæfararnir báru ekki einungis
með sér grimmd, dauða og kvöl, held-
ur fylgdu þeim einnig rottur sem
sums staðar urðu mikil plága á öllum
gróðri, en þeir gleymdu illu heilli
köttunum. Flutt var inn dýrategund
nokkur frá Burma sem átti að eyða
rottunum, en í ljós kom að hún svaf
meðan rottan vakti og öfugt, en þurfti
auðvitað sitt viðurværi svo skaðinn
jókst til muna.
Menntunarstigið er gott á eyjunum
og börnin ekki síður læs en til að
mynda á Íslandi og þrátt fyrir allan
þennan ættflokkafjölda hefur hver
eyja sín einkenni sem íbúarnir eru
stoltir af og vilja varðveita og fórna
ekki fyrir stundleg gæði. Þannig hafa
allar tilraunir til samvinnu og hag-
ræðingar farið út um þúfur til þessa.
Tónmenninguna ber hæst og hefur
haft afgerandi áhrif á framsækna nú-
tímatónlist og tréskurðarlistamenn.
Hins vegar fer minna fyrir sjón-
menntum þótt sköpunargleðin hafi
alltaf verið fyrir hendi, arawakar
voru þannig ágætir leirlistar- og tré-
skurðarlistamenn …
Það fer heldur ekki mikið fyrirsjónmenningu hér í PuentaPlaza né norðurhlutanum yf-
irleitt ef náttúran er undanskilin, en
þess meira í nágrenni höfuðborg-
arinnar San Domingo í suðri, sem
Kólumbus lagði grunn að, svo
kannski lenti ég á röngum stað. En
því bjargaði náttúruafurð nokkur
sem að meginhluta finnst einmitt á
þessum slóðum og Amber nefnist,
sem kann að vera hið síðasta af hin-
um miklu gersemum sem í eyjunum
leyndust. Um að ræða lífefni trjáa
sem var tugmilljónir ára að storkna
og hefur yfir sér yfirbragð ávala
steinhnullunga af fjölmörgum stærð-
um. Þeir yngstu eru ljósir og tærir
og yfir þeim gulleitur blær en þeir
eldri dekkri, en svo eru líka til rauð-
leitir og bláir. Þeir dökkgulu, hvar
sér í leirfar af skordýrum og laufum
eru verðmætastir og þurfa menn að
fara mjög djúpt í pyngjuna vilji þeir
eignast slíka í formi skarts. Hér er
fallegt Amber-safn á tveimur hæðum
í Viktoríönskum stíl, á neðri hæðinni
er gjafabúð, hvar áhugasamir geta
orðið sér úti um hið aðskiljanlegasta
Amber-skart af hæsta gæðaflokki,
en á efri hæðinni er þróunarsagan
rakin og sýning á steingervingum og
sérstæðum afbrigðum fyrirbærisins.
Úti fyrir eru götusalar sem bjóða
ódýrt Amber-skart og raunar víðar í
borginni en úr plasti og lætur marg-
ur ferðalangurinn blekkjast, leiðir
hugann að innfæddum sem létu gull
og gersemar í skiptum fyrir gler-
perlur, rauðar húfur og litlar bjöllur,
verðlaust skran.
Milljónir innfluttra búa á eyjunum
í dag en af þeim munu einungis 3000
vera af hinum upprunalegu frum-
byggjum sem lifa gleymdir og bláfá-
tækir. Forfeður þeirra höfðu lifað í
góðri sátt við náttúruna í þúsundir
ára og áttu sína menningu og trúar-
brögð og hvort tveggja bar að virða.
Ófögur saga hvernig farið hefur
verið með þessar eyjar frá því Kól-
umbus nam þar land og aðeins fimm
hundruð árum eftir ógnar hin svo-
nefnda siðmenning öllu lífríki á jörð-
inni. Og samt er enn til fólk sem læt-
ur blekkjast og tekur við
„glerperlum, rauðum húfum og
litlum bjöllum“ og aðskiljanlegasta
hismi sem eyðist í skiptum fyrir
ósnortið land.
Og þá er spurn hvort lífið sé ekki
meira virði en ofvöxtur svonefndra
framfara sem bjóða tortímingunni
heim?
Puerto Plata á jólunum 2007
Amber
Einstakur steinn Amber er notaður í fallega skartgripi.
Bragi Ásgeirsson
MENNING
Í KVÖLD kl. 20
verður haldin
tónlistarguðs-
þjónusta í Kirkju-
selinu í Fellabæ.
Þar verður
frumflutt trúar-
leg tónlist eftir
Hjalta Jón Sverr-
isson með textum
eftir hann og dr.
Sigurð Ingólfs-
son. Sóknarpresturinn, sr. Lára G.
Oddsdóttir, þjónar við athöfnina.
Meðfylgjandi ljósmynd er tekin af
Gunnari Gunnarssyni, blaðamanni
Austur-gluggans. Eins og sjá má er
Hjalti ungur að árum en þó ekki alls
óreyndur í tón- og textasmíðum.
Tónlistar-
guðs-
þjónusta
Hjalti Jón
Sverrisson
ÞANN 5. janúar nk. verður haldinn
áramótadansleikur Tónlistarfélags
Akureyrar og Karólínu Restaurant í
Ketilhúsinu á Akureyri. Borðhald
hefst kl. 20 með glæsilegum réttum
frá Karólínu og verður boðið upp á
skemmtiatriði á meðan fólk situr að
snæðingi.
Að honum loknum verður flutt lif-
andi Vínartónlist og dansað fram á
nótt. Fram kemur að venju salon-
hljómsveit Tónlistarfélagsins undir
stjórn Jakobs Kolosowskis. Sveitina
skipar atvinnutónlistarfólk á Ak-
ureyri og nágrenni. Jafnframt kem-
ur fram á hátíðinni ungt tónlist-
arfólk sem stundað hefur nám við
Tónlistarskólann á Akureyri. Einar
Geirsson, matreiðslumeistari á Kar-
ólínu restaurant, sér um veisluföng-
in sem fyrr.
Nú þegar er um helmingur að-
göngumiða seldur enda ekki á hverj-
um degi sem haldið er alvöru-
síðkjólaball að hætti Vínarbúa hér
uppi á Íslandi.
Húsið opnar kl. 18 og er aðgangs-
eyrir kr. 8.500 og 7.500 fyrir hópa,
þ.e. 10 eða fleiri saman.
Nýtt ár Nýju ári er fagnað með
flugeldum en einnig er víða dansað.
Áramótadansleikur í
Ketilhúsinu á Akureyri