Morgunblaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 47
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% ✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GÍSLÍNU M. SÖRENSEN
frá Eylandi,
V-Landeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Eirar.
Þórunn Ólafsdóttir,
Ragna Ólafsdóttir, Einar Benediktsson,
Árni Ólafsson, Ester Markúsdóttir,
Jón Ólafsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
EIRÍKS GUÐMUNDSSONAR
frá Garðhúsum,
Heiðarbraut 11,
Garði.
Aðalheiður Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR JÓHANNSDÓTTUR
frá Skriðufelli í Þjórsárdal,
Þangbakka 10,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hólabæjar,
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ.
Sigurður J. Sigurðsson,
Sigurður Sigurðsson, Lilja Sörladóttir,
Þórdís Sigurðardóttir, Gunnar Pétursson,
Ólafur J. Sigurðsson, Ólöf Ragnarsdóttir,
Þuríður R. Sigurðardóttir, Kristján A. Ólason,
Margrét Sigurðardóttir, Guðmundur Arason,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Barclay T. Anderson,
Berglind Sigurðardóttir, Ólafur Sigurðsson
og ömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
HILMARS GARÐARS,
sem lést 5. desember síðastliðinn.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunar-
heimilisins Eirar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorgerður Jörundsdóttir,
Anna María Hilmarsdóttir, Þorsteinn Hilmarsson.
✝
Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs föður, tengdaföður,
afa og langafa,
KRISTINS ÞORSTEINSSONAR,
fv. leigubifreiðarstjóra,
áður til heimilis að
Öldugötu 37,
Hafnarfirði.
Valgeir Kristinsson, Unnur Magnúsdóttir,
Erla Ásdís Kristinsdóttir, Atli Steingrímsson,
Ómar Þorvaldur Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SVÖNU RAGNARSDÓTTUR,
Suðurbraut 20,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar
Landspítalans.
Jón Skúli Þórisson,
Ragnar Gunnar Þórhallsson, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir,
Jóhanna Þórey Jónsdóttir,
Ragnheiður Helga Jónsdóttir,
Berglind Jónsdóttir, Rikharð Sigurðsson,
barnabörn og langömmubarn.
Tengdamóðir mín
Katrín lést í lok nóv-
ember fyrir rétt um mánuði. Ég hef
hugsað mikið um þau rúmlega tutt-
ugu ár sem við vorum samferða.
Fyrst og fremst er ég þakklát fyr-
ir að börnin mín nutu þeirra forrétt-
inda sem ég sjálf naut, þ.e. að alast
upp með ömmum og afa sem hafa
gefið þeim veganesti í lífinu sem er
einhvern veginn ekki á færi foreldra
að gefa. Þegar elsti sonur okkar,
hann Ármann, var lítill, hafði Katrín
áhyggjur af því að okkur foreldrun-
um þætti hún spilla uppeldinu hjá
okkur. Þá gerði ég þann samning við
hana að heima hjá okkur væru okkar
reglur í gildi, en heima hjá ömmu
væru ömmureglur í gildi. Börn eru
svo klár að þau skilja slíkt mjög vel.
Í nokkur ár bjuggum við svo að
segja á sama heimili, þegar við Halli
fluttum til hennar á Engjaveginn
haustið 1995, ásamt tveimur börnum
okkar, Ármanni, þá 6 ára og Júlíönu,
4 ára. Við bjuggum uppi, hún bjó
niðri, á milli okkar var eitt bómull-
artjald á slá. Þetta voru bæði erfið og
góð ár sem við bjuggum í svo nánu
sambýli. Ég skildi þetta betur þegar
fullorðinn og vís maður setti þetta í
orð þar sem ég var áheyrandi að:
„tveir fullorðnir karlmenn í heimili,
það er allt í lagi, en tvær húsmæður í
sama húsi það gengur ekki vel upp
þar sem heimilið er völlur konunn-
ar“. Í þessu húsi sem við keyptum
svo seinna af tengdamömmu hafði
hún verið húsmóðir í áratugi, alið
upp sín börn og unnið sín verk af
kostgæfni. Svo kom önnur húsmóðir
Katrín Ingibjörg
Arndal
✝ Katrín Ingi-björg Arndal
fæddist í Hafn-
arfirði 15. febrúar
1920. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði 29.
nóvember síðastlið-
inn.
Útför Katrínar
var gerð frá Ísa-
fjarðarkirkju 7. des-
ember sl.
í húsið hennar, sem ól
börnin ekki upp á
sama hátt og vann
verkin ekki eins og
henni þótti best. Hún
hafði einsett sér að
skipta sér ekki af hjá
sínum börnum og
tengdabörnum af því
að hún hafði sjálf búið
í nánu sambýli við sína
tengdaforeldra. En
stundum segjum við
hlutina ekki með orð-
um. Við bárum alla tíð
virðingu fyrir hver
annarri, gátum talað um allt milli
himins og jarðar, lífið allt og dauð-
ann, sem við báðar sáum sem upphaf
að einhverju nýju. Aldrei minnist ég
þess að það félli styggðaryrði á milli
okkar. Í hópinn bættust árið 1997
tvíburarnir Margeir og Þorbergur.
Amma hafði mikla ánægju af um-
gengninni við börnin og hún reyndist
ómetanleg hjálparhella þegar tví-
burarnir voru litlir, hún sá að mestu
leyti um þvottana fyrir okkur, þá far-
in að nálgast 80 ára aldurinn. Börnin
lærðu að bera virðingu fyrir ömmu
svæði í húsinu, þar sem gott var að
koma, fá hlýju og athygli. En það
fylgir mikill erill sex manna fjöl-
skyldu þar sem samræður, rökræður
og ærsl bárust á milli hæða óhindrað
í gegn um bómullartjaldið, það
reyndi vissulega á hana og okkur
líka. Börnin tala enn um ömmu niðri,
og héldu því áfram eftir að hún flutti
niður á Hlíf, íbúðir aldraðra. Hún
virtist hafa beðið eftir að einhver ná-
kominn vildi taka við húsinu, þá gat
hún loksins flutt, sem mikið hafði
verið reynt að fá hana til að gera áð-
ur en við fluttum til hennar.
Ég er þakklát fyrir samferðina við
góða tengdamömmu, hennar er
saknað, skrítið að njóta ekki sam-
veru hennar um jólin en samt var svo
mikill friður, við eigum margar góð-
ar minningar.
Kveðja,
Ingibjörg Einarsdóttir.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birtist
valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein.
Minningargreinar