Morgunblaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Almanak Þjóðvinafélagsins 2008
Höfundar: Þorsteinn Sæmundsson og
Heimir Þorleifsson. Í Almanakinu er
m.a. að finna upplýsingar um gang
himintungla, messur kirkjuársins og
sjávarföll. Í Árbókinni er t.d. fjallað
um árferði, atvinnuvegi, stjórnmál,
kosningaúrslit og verklegar fram-
kvæmdir. Fjöldi mynda er í ritinu.
Fæst í bókaverslunum um land
allt.
Ferðalög
Starfsmannafélög og klúbbar
Skipuleggjum sérferðir til Bandaríkj-
anna, Barcelona, Bayern í golf eða á
Októberfest, Ítalíu, London, í Rínardal
með göngutúrum, hjólreiðum og vín-
smökkun, til Skandinavíu, Skotlands,
Slóveníu, Svartaskógar og á skíði í
Utah. Ennfremur kastalagistingar um
allt Þýskaland, Austurríki og Ung-
verjaland. Góð þjónusta!
Nánar á www.isafoldtravel.is
Ferðaskrifstofan Ísafold,
sími 544 8866.
Gisting
www.floridahus.is
Glæsileg hús til leigu í Orlando
Flórída. hafið samband við
info@floridahus.is eða í síma
4990380. Eignaumsjón og þjónusta.
Heilsa
Lr - kúrinn er tær snilld.
Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuð-
um. Stuðningur, vigtun og gönguhóp-
ur hefst 3.1. 2008. www.dietkur.is
Dóra, sími 869-2024.
Lr- kúrinn er tær snilld
Léttist um 22 kg á 6 mán. Þú kemst í
jafnvægi, sefur betur, aukin orka og
grennist í leiðinni.
www.dietkur.is/Dóra 869-2024
Húsnæði í boði
Snyrtileg 3ja hrb íbúð til leigu
Skemmtileg 75 fm 3ja herb. íbúð til
leigu á 1. hæð í fjölb. Leigist frá
3.1.08 - 31.7.08. 110 þús. á mán.
Uppl. og myndir hjá gatari@simnet.is
2 herb. íbúð í 101 Reykjavík Mjög
góð 2 herb., 64 fm. íbúð til leigu á
besta stað í 101 Rvk. Leiga 120
þúsund á mánuði, tveir mánuðir fyrir-
fram. Uppl. í síma 864 4827.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús .
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
PMC silfurleir
Búið til módelskartgripi úr silfri - Til-
valin jólagjöf, falleg gjafakort í öskju.
Skráning hafin fyrir janúar og febrúar.
Uppl. í síma 695 0495.
www.listnam.is
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
SANDBLÁSTUR
Góð áferð eftir granít-og glersand
Sandblástur og pólýhúðun á felgum
Sérhæfing í bílhlutum og stærri ein.
Glerblástur á ryðfríu stáli o.fl., o.fl.
HK-Sandblástur - Helluhrauni 6
Hafnarfirði Sími 555-6005
Bílar
Til sölu Toy Hilux 3L sjálfsk., árg.
03/07, ekinn 20 þ. Klæðning í palli,
krókur, húdd og gluggahlífar.
Klassabíll, verð 3.250 þús. Uppl. í s.
894 6562, Gunnar.
Einn snotrasti skutbíll landsins
er til sölu. Dodge Magnum RT, nýskr.
júní 2006, ekinn 14þkm. Vél 5.7l
Hemi, 365 hestöfl. Vetrar og sumar-
dekk á 18" felgum ásamt 22" sumar-
blingurum. Mikið breyttur bíll,
myndir og nánari upplýsingar má
finna á vefnum: http://maria.blog.is
/album/magnum og http://maria.
blog.is/ blog/maria/entry/302467.
Verð: 4.5 milljónir. Nánari upplýsingar
veitir Ólafur í síma 864-4943.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Smáauglýsingar
sími 569 1100
stjörnuspá janúar
Janúar er frábær mánuður fyrir þig kæri Hrútur, sérstaklega
þegar kemur að vinnunni og vinnutengdum verkefnum og áætl-
unum. Þrátt fyrir að orkan sé kannski í minni kantinum, og að
andleg iðja ásamt mögulega yfirstandandi námi þarfnist bæði
yfirferðar og breytinga, þá muntu ná áþreifanlegum árangri á
framabrautinni sem þú hefur valið þér. Ástarmálin verða fram-
andi og ævintýraleg þennan mánuðinn – það er ekki hvaða
hversdagslegi staður sem er sem hentar þér til að sinna þeim!
Til stendur að koma á nýjum og betri siðum ásamt makanum,
sem er mjög gott mál. Einstæðir eru líklegri til að hitta ein-
hvern áhugaverðan í gegnum viðskiptatengsl eða á ferðalagi.
Hrútur 21. mars - 20. apríl
Hjá þér byrjar nýja árið með skapandi verkefnum og mikilli og
sterkri tjáningu, kæra naut. Fjárfestingar í erlendum fyr-
irtækjum gætu mögulega skilað arði, en það þýðir ekki að þú
þurfir ekki að fara vel og nákvæmlega yfir tekjur þínar, og
helst að auka þær. Persónuleg sambönd geta verið bæði mjög
náin og sterk. Passaðu þig á tilhneigingu þinni til að vilja eiga
fólk! Þennan mánuðinn mun mikil orka fara í að láta af gömlum
ósiðum og í tilraunir til að hefja betra líf. Tækifæri til ferðalaga
skapast og ævintýrin hreinlega leita þig uppi og toga í þig. Lík-
lega mun eitthvert eirðarleysi hrjá þig, en það tengist aðallega
djúpstæðri þrá þinni til að ferðast.
Naut 20. apríl - 21. maí
Í janúar gerir allur félagsskapur — jafnvel í viðskiptum —
mjög mikið fyrir þig, kæri tvíburi. Jafnvægi ríkir á heimilinu og
einnig í öllum nánum vinskap hjá þér og það ýtir undir að þú
farir vel af stað inn í nýja árið. Ekki skemmir fyrir að þér finnst
fjármálin örugg og þú veist hvað þú vilt að nýja árið færi þér.
Hins vegar mun þig skorta persónulegt frumkvæði og þér
finnst þú heldur ekki nægilega orkumikill. Á köflum er einnig
sem ákveðinn vinskapur sé þvingaður. En allt þetta er bara
tímabundið ástandi í lífi þínu, og ætti engan veginn að koma í
veg fyrir að þú getir notið þín vel í mánuðinum og friður ríkja í
nánum samböndum.
Tvíburi 21. maí - 20. júní
Janúar er einstaklega góður mánuður fyrir þig, kæri krabbi,
þegar kemur að bæði félags- og einkalífinu. Þú einbeitir þér
mjög sterkt að nánum félagsskap, og þú finnur þægilega tilfinn-
ingu og verður í góðu jafnvægi eftir gefandi samræður og sam-
skipti við áhugavert fólk. Líklega mun ástin blómstra þetta ár-
ið, jafnvel strax í þessum fyrsta mánuði ársins! Fyrir þá krabba
sem eru nú þegar í sambandi, mun það taka algerlega nýja
stefnu til hins betra árið 2008, og þær breytingar eru nú þegar
farnar að gera vart við sig. Eitthvað þyrfti að líta yfir aðstæður
í vinnunni með það í huga hvort þær henti ennþá, og í því sam-
bandi gæti verið gott að einbeita sér að samskiptum við aðra.
Krabbi 21. júní - 22. júlí
Vanalega er janúar mánuður mikillar vinnu og endurskipulagn-
ingar, auk þess sem heilsan á hug þinn allan, kæra ljón. Árið
2008 er engin undantekning á því, nema að þetta árið verður
mánuðurinn sérlega ánægjulegur. Jafnvægi í vinnu, mataræði
og öðrum daglegum verkefnum gefa þér sjálfsöryggi, þér finnst
þú vera með alla „litlu hlutina“ á hreinu í lífi þínu. Þegar kemur
að félagsskap, getur verið að þú upplifir hæðir og lægðir. Því
miður hagar viss vinur sér á óskiljanlegan hátt. Rómantík mun
gefa þér sérstaklega mikið, ástin er sterk og stöðug þennan
mánuðinn. En skemmtilegasta tækifærið í janúar felst í þeim
möguleika að geta breytt áhugamáli að hluta til í atvinnu.
Ljón 23. júlí - 23. ágúst
Janúar byrjar vel á marga vegu hjá þér, kæra meyja. Árið 2008
virðist ætla verða fullt af rómantík, skapandi verkefnum, ná-
lægð við börn og ánægjulegum tómstundum. Meyjur ætla að
læra að slaka á og skemmta sér rækilega í ár! Að koma lífinu í
réttan farveg heldur áfram að vera sterkt þema í þínu lífi og þér
mun takast að finna jafnvægi milli vinnu og leiks. Verðlaun og
viðurkenningar setja svip sinn á janúarmánuð og öll samskipti
við fjölskylduna verða sérlega skemmtileg. Endurskoðaðu samt
sem áður einhver af langtímamarkmiðum þínum og vinnuað-
stæður. Að taka á og leysa smávægileg vandamál hjálpar þér að
halda áfram af meira öryggi í febrúar.
Meyja 23. ágúst - 23. september
Janúar er einstakur mánuður til að fá stuðning og hvatningu
frá vinum og kunningjum, kæri vatnsberi, en líka til að skerpa
innsæið, finna draumavinnuna, leysa gömul og íþyngjandi
vandamál og ganga frá lausum endum. Þótt félagslífið blómstri
þá mun þitt innra tilfinningalíf spila mun stærri rullu hjá þér
þennan mánuðinn. Þú munt líklega þurfa að eiga við gömul til-
finningamál í sambandi við ástarmál sem nú eru í farvatninu,
eða þá að gamall elskhugi hefur uppi á þér! Líklega mun þér
finnast þú vera uppiskroppa með skapandi hugmyndir varðandi
vinnuna, en viðskiptin ganga rosalega vel þrátt fyrir það. Hjá
þér eru fjármálin og lífið í heild stöðug og örugg á alla vegu.
Vatnsberi 21. janúar - 19. febrúar
Jafnvægi og vingjarnlegheit einkenna þennan janúarmánuð,
kæri fiskur. Einstæðir fiskar eiga möguleika á að hitta maka í
gegnum vin eða vinahóp, og líklegt er að mörgum muni lítast
vel á litla viðkvæma fiskinn. Eitthvað þyrfti að fara yfir fjöl-
skyldu- og heimilismálin og það tekur þónokkra orku frá þér.
Hins vegar ætti að reynast auðvelt að koma fjármálunum á
hreint, sem er gott mál. Þessi fyrsti mánuður ársins 2008 er al-
veg upplagður fyrir framfarir á sviði vinnu, viðskipta, orðspors
og vináttu, en líka til að byrja á nýjum og skapandi verkefnum
sem munu færa þér peninga og meiriháttar sambönd í við-
skiptaheiminum – og síðast en ekki síst mikla hamingju.
Fiskar 20. febrúar - 20. mars
Fjölskyldan og heimilið setja sterkan svip á janúarmánuð,
kæra vog. Alger breyting á einkalífi þínu verður á árinu 2008,
og hún hefst með látum nú þegar í janúar. Þú munt eiga mjög
ánægjuleg samskipti, m.a. í formi tölvupósts og bréfa, þennan
mánuðinn og þú stofnar til nýrra kynna við skemmtilegt fólk.
Sum þessara „nýju kynna“ eru reyndar endurkynni við fólk
sem tilheyrðu fortíð þinni. Svona í upphafi árs á fólk það til að
endurskoða vissa hluta lífs síns, og þú munt af og til allan mán-
uðinn endurskoða samband þitt við mjög náinn starfsfélaga til
margra ára. En yfirhöfuð verður mánuðurinn hinn fínasti fyrir
öll samskipti við vini og félaga.
Vog 23. september - 22. október
Samskipti, menntun og sambönd eru þau svið í lífi þínu sem
munu taka hvað mestum breytingum – í raun róttækum – á
árinu 2008, kæri sporðdreki. Í janúar mun tilfinning fyrir jafn-
vægi vera mjög rík og hún gleður sálartetrið. Stuðningur frá
kunningjum mun mynda traust og langvarandi sambönd, sem
eiga eftir að veita þér ánægju á árinu. Tækifæri til að skerpa
andlega hæfileika þína setja mjög sterkan svip á mánuðinn.
Gríptu þau! Einhver misskilningur eða hik verða samt sem áð-
ur í mjög nánum samböndum, og þá ríður á að vera hreinskil-
inn. Þótt fjármálin standi vel þennan mánuðinn, gætu fjármál
einhvers náins verið í hættu þessa dagana. Reyndu að hjálpa.
Sporðdreki 23. október - 21. nóvember
Þennan mánuðinn hefjast miklar breytingar til batnaðar, til ríki-
dæmis og hamingju, kæri bogmaður. Þú einbeitir þér að því að
bæta peningastreymið og það mun virka vel hjá þér þar sem þú
finnur mjög góðar leiðir til þess. Alltaf jafnklár! Janúar er frábær
fyrir framann, peninga og áhrif á vinnustað. Hins vegar fer þó
eitthvað öðruvísi en ætlað var þegar kemur að nánum vinskap
eða ást, og það mun eyðileggja einbeitinguna hjá þér. Gamlir vin-
ir gætu haft upp á þér þennan mánuðinn, og líklega verður þér
boðin ný vinna – jafnvel á nokkrum stöðum. Þú lætur í ljós meiri
hlýju og glaðværð í umhverfi sem tilheyrir vinnunni en þér er
tamt og það mun hafa ánægjulegar afleiðingar.
Bogmaður 22. nóvember - 21. desember
Þessi mánuður er alveg tilvalinn til að hefja nýja árið með
glæsibrag, elskulega steingeit. Janúar er frábær upp á vinsæld-
ir og áhrif, en líka til að koma draumaverkefnum á koppinn af
eigin frumkvæði. Og síðast en ekki síst er mánuðurinn gráupp-
lagður til að leysa og losa sig við gömul og langlíf vandamál úr
fortíðinni. Ástin mun setja sterkan svip á mánuðinn, en þú ferð
ekki hátt með það. Einhver verkefni í vinnunni sitja föst, eða þú
gætir þurft að athuga verkefni sem þú áleist löngukláruð. Besta
vika mánaðarins upp á framleiðni og framkvæmdir er þriðja
vikan, en þá virðist þú fá hrós og jákvæð viðbrögð við næstum
öllu sem þú kemur nálægt. Brettu upp ermarnar!
Steingeit 22. desember - 20. janúar