Morgunblaðið - 30.12.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 51
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, morgunkaffi/dagblöð, hádeg-
isverður, almenn handavinna, kaffi.
Námskeið félagsstarfsins hefjast
mánudaginn 7. jan. Ný námskeið í
glerlist verða fyrir og eftir hádegið á
miðvikud. Skráning í s. 535-2760.
Jóga-leikfimistímar verða tvisvar í
viku, á mánud. og fimmtud. kl. 9-
9.45.
Félagsstarf Gerðubergs | Starfsfólk
sendir góðar óskir um heillaríkt kom-
andi ár til þátttakenda, samstarfs-
aðila og velunnara um land allt, með
þakklæti fyrir samstarf stuðning og
góðar samverustundir. Starfsemi og
þjónusta fellur niður miðvikud. 2. jan.
Leiðsögn í vinnustofum hefst mánud.
7. jan.
Kirkjustarf
Fríkirkjan Kefas | Almenn samkoma
kl. 14 þar sem Sigrún Einarsdóttir
prédikar. Á samkomunni verður lof-
gjörð, barnastarf og fyrirbænir. Allir
velkomnir. Takk fyrir árið sem er að
líða og Drottinn blessi nýtt ár.
Hlutavelta | Garðabæjardeild Rauða krossins fékk fyrir jólin heimsókn drengja
úr 4. bekk Flataskóla. Þeir afhentu deildinni 5000 krónur sem þeir söfnuðu með
því að syngja í verslunarmiðstöðinni Garðatorgi. Þeir vilja að peningarnir verði
notaðir til að hjálpa fátækum börnum í Afríku.
dagbók
Í dag er sunnudagur 30. desember, 364. dagur ársins 2007
Orð dagsins: „Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.“ (Jh. 13, 35.)
Áramót eru tími mikilla há-tíðarhalda. Iðulega eráfengi haft um hönd, oftinnan um börn og ung-
menni.
Ari Matthíasson er fram-
kvæmdastjóri félags- og út-
breiðslusviðs SÁÁ: „Miklu skiptir
að foreldrar og forráðamenn sýni
gott fordæmi og gæti hófs í neyslu
áfengis. Oft vilja börn og unglingar
skemmta sér á gamlárskvöld, og
mikilvægt er að foreldrar viti hvar
börnin þeirra eru, og fræði þau um
skaðsemi og hættur áfengis- og
vímuefnaneyslu,“ segir Ari. „Þótt
hægfara þróun til betri vegar hafi
átt sér stað eru tölur yfir áfeng-
isneyslu ungmenna sláandi, og sýna
rannsóknir að þrír af hverjum fjór-
um unglingum á aldrinum 17 til 18
ára hafi neytt áfengis undanfarinn
mánuð. Er ástæða fyrir foreldra til
að vera á varðbergi, sérstaklega í
ljósi þess að framleiðendur og inn-
flytjendur áfengra drykkja virðast
ná að markaðssetja vöru sína fyrir
unglinga utan hefðbundinna miðla,
og tengja iðulega í auglýsingum
sínum saman áfengisneyslu og
skemmtanir ungs fólks.“
Hátíðarhöld um áramótin geta
einnig verið erfið óvirkum áfengis-
og vímuefnasjúklingum: „Sér-
staklega vill þessi tími reyna á þá
sem nýhættir eru að drekka eða
neyta efna, og reynir þá á að að-
standendur styðji við og styrki.
Slíkur stuðningur getur skipt sköp-
um,“ segir Ari. „Á mörgum þeim
skemmtunum sem fram fara þetta
kvöld fer fram mikil neysla á
áfengi og fíkniefnum, og oft er fé-
lagslegur þrýstingur á fólk um að
taka þátt í neyslunni. Ósjaldan eru
þeir sem hafa lent í vanda vegna
áfengis- og vímuefnaneyslu fé-
lagslega einangraðir því bata þeirra
er hætta búin með slíku skemmt-
anahaldi, og margir kunna ekki að
skemmta sér án áfengis og hafa að
nokkru leyti skerta félagslega
hæfni sem freistandi getur verið að
fela með vímu.“
SÁÁ bjóða upp á góða þjónustu
við einstaklinga sem stríða við
áfengis- og vímuefnavanda, sem og
við aðstandendur þeirra: „Þeir sem
telja sig þurfa að koma í meðferð
geta snúið sér beint til samtakanna
í síma 530 7600 og pantað viðtal.
Einnig starfrækir SÁÁ upplýsinga-
og ráðgjafarsíma fyrir unglinga,
824 7666, sem bæði unglingar og
foreldrar geta haft samband í ef
áhyggjur vakna vegna vímu-
efnaneyslu ungs fólks,“ segir Ari.
Sjá nánar á www.saa.is.
Forvarnir | Fræða þarf ungmenni um skaðsemi áfengis og vímuefna
Sýnum gott fordæmi
Ari Matthías-
son fæddist í
Reykjavík 1964.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
MR 1984, lauk
námi í leiklist
frá LHÍ 1991 og
meistaranámi í
stjórnun og við-
skiptum frá HR 2003. Ari hefur tek-
ið þátt í fjölda uppfærslna í leik-
húsum bæði hérlendis og erlendis,
leikið í sjónvarpsþáttum og kvik-
myndum. Hann starfaði frá 2003 til
2006 við markaðsráðgjöf. Ari er
kvæntur Gígju Tryggvadóttur
tannfræðingi og eiga þau þrjú börn.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-sam-
takanna er 895-1050.
FRÉTTIR
ROBERT Burck, betur þekktur sem „nakti kúrekinn“,
skemmti gestum og gangandi við Times Square-torgið
í New York í fyrradag. Burck er götulistamaður í
skrautlegri kantinum, eins og sjá má, hann leikur fá-
klæddur á gítar á nærbuxunum og í kúrekastígvélum,
jafnvel í köldustu vetrarmánuðum.
Reuters
Nakinn kúreki í desember
128 lokaprófsskírteini voru afhent
við útskrift á haustönn í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti, en útskriftin
fór fram í Fella- og Hólakirkju,
fimmtudaginn 20. desember. Í yfir-
litsræðu Kristínar Arnalds, skóla-
meistara, kom fram að þetta var í
sextugasta og áttunda sinn sem
nemendur eru útskrifaðir frá skól-
anum. Bestum árangri á stúdents-
prófi nú náði Margrét Erlings-
dóttir.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er
afar fjölbreyttur skóli með meira
námsframboð en gengur og gerist í
íslenskum framhaldsskólum. Til
dæmis er þar starfrækt sérstök
braut fyrir innflytjendur, með sér-
sniðnu námsefni og nálgun í
kennslu. Í FB er kennt í dagskóla
og kvöldskóla og síðan er einnig
rekinn sumarskóli þar.
Eins og alltaf bárust skólanum
góðar gjafir frá ýmsum hollvinum.
Þar má nefna Samtök iðnaðarins,
Soroptomistaklúbb Hóla og Fella,
Gideonfélagið, Bókmenntafélagið
Drápuhlíð, danska sendiráðið, kan-
adíska sendiráðið, Rotaryklúbb
Breiðholts, Félag viðurkenndra
bókara og Reykjavíkurdeild sjúkra-
liðafélagsins.
128 útskrifuðust
frá FB á haustönn
ÞRJÚ danspör fóru um síðustu helgi
frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar
til Lettlands ásamt Auði Haralds-
dóttur danskennara.
Pörin heita Sigurður Már Atlason
og Sara Rós Jakobsdóttir, Íslands-
meistarar í suður-amerískum döns-
um í unglingaflokki 14–15 ára, Aðal-
steinn Kjartansson og Rakel
Guðmundsdóttir Íslandsmeistarar í
flokki ungmenna 16–18 ára, einnig í
suður-amerískum dönsum, og Björn
Ingi Pálsson og Denise Yaghi, sem
einnig eru Íslandsmeistarar hvort í
sínu lagi í flokki ungmenna 16–18 ára
og flokki fullorðinna 19–34 ára.
Pörin kepptu frá föstudegi til
sunnudags og voru keppnirnar mjög
sterkar.
Á föstudeginum var keppt í Norð-
ur-Evrópu-meistaramótinu en þar
etja kappi Norðurlöndin 5 ásamt
Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
Siggi og Sara gerðu sér lítið fyrir og
lentu í 3. sæti í suður-amerísku döns-
unum og í 5. sæti í standard-dönsun-
um í flokki unglinga 14–15 ára af 70
pörum. Aðalsteinn og Rakel keppa
eingöngu í suður-amerískum döns-
um og lentu í 6. sæti.
Björn Ingi og Denise keppa í báð-
um greinum og enduðu í 25. sæti í
suður-amerísku dönsunum og í 27.
sæti í standard dönsum.
Bæði eldri pörin kepptu í flokki
ungmenna (16–18 ára) þennan dag
og kepptu í þeirra flokki um 60 pör.
Í þessari keppni voru það Siggi og
Sara ásamt Aðalsteini og Rakel sem
náðu lengst í keppninni af Norður-
landapörunum, því það voru Lett-
land og Litháen sem fóru ofar. Það
má því segja að þessi 2 pör séu
ókrýndir Norðurlandameistarar!
Á laugardeginum kepptu Siggi og
Sara á Heimsmeistaramóti unglinga
í suður-amerískum dönsum. Aðeins 2
bestu pörin frá hverju landi hafa rétt
til þátttöku en aðeins eitt par fór frá
Íslandi í þetta sinn. Það voru um 70
pör sem kepptu og enduðu Siggi og
Sara í 33. sæti. Mikið var um dýrðir á
þessari keppni og voru stórkostleg
sýningaratriði sett inn á milli flokka
til að brjóta upp keppnina og selt inn
sér um kvöldið þar sem keppt var í
undan-úrslitum og úrslitum. Þá var
boðið upp á veitingar sem voru inni-
faldar í verði.
Eldri pörin kepptu þennan dag í
IDSF International standard, þar
fengu Björn Ingi og Denise 68. sæti
af 120 pörum en 31. sætið í flokki
ungmenna (16–18 ára) af ca. 80 pör-
um. Í flokknum IDSF International
keppa bæði ungmenni og áhuga-
menn (16–34 ára).
Síðasti keppnisdagurinn var
sunnudagurinn en þá kepptu Siggi
og Sara (14–15 ára) í suður-amerísk-
um dönsum og fengu 26. sætið, það
vantaði víst bara 3 krossa inn í 24
para úrslitin.
Aðalsteinn og Rakel ásamt Birni
Inga og Denise kepptu í flokki ung-
menna í suður-amerískum dönsum.
Þar kepptu rúmlega 80 pör og fengu
Aðalsteinn og Rakel 12. sætið en
Björn Ingi og Denise 42. sætið
Keppnin endaði á flokkunum
IDSF International í suður-
amerískum dönsum. Það voru um
130 pör sem öttu kappi saman og
enduðu Björn Ingi og Denise 87. sæti
og Aðalsteinn og Rakel í 46. sæti.
Þetta var stórkostleg keppnisferð
og koma pörin heim með mikla
keppnisreynslu að baki sem mun
nýtast þeim vel í framtíðinni.
Næsta Norður-Evrópu-meistara-
mót verður haldið í Litháen 5. des-
ember 2008.
Aðalsteinn og Rakel hafa verið
valin danspar ársins 2007 af Dans-
íþróttasambandi Íslands fyrir góða
frammistöðu á árinu.
Danspör frá DÍH
í úrslitum á meistara-
mótinu í Lettlandi
Dansparið Sigurður Már Atlason
og Sara Rós Jakobsdóttir, Íslands-
meistarar í suður-amerískum döns-
um í unglingaflokki 14-15 ára.