Morgunblaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 53
Á
lokamínútum árs sem
er að kveðja fer
mannshugurinn jafn-
an víða. Það er litið
til baka, allt um kring
og svo fram á veginn. Rýnt í spor-
in og inn í hið óræða. Það er eins
hér í dag.
I
Í blaði einu segir:
„Árið er liðið.
Liðið eins og lækur móti úthafi
eilífðarinnar.
Liðið, og kemur aldrei aftur.
Þrautir þess farnar ásamt unun
þess og gleði; tækifæri þess til að
vinna að guðs verki, til þess að
gleðja og gera gott, eru farin, og
vér sjáum þau heldur aldrei aftur.
Aðeins eitt er eftir: Minningin
um árið liðna. Hún svífur fram hjá
oss eins og kyrrlátur gestur.
Og hún talar, talar um gleðina
ljúfu og þrautasporin mörgu, sem
árið bauð oss.
Og svo bendir hún oss á, að
margt góðverkið er óunnið, sem
hefði getað verið gert, margt upp-
örvunar- og huggunarorðið ótalað,
sem hefði átt að vera talað.
Minningin hvetur til sjálfsrann-
sóknar, til alvöru, til bænar.
Látum oss lyfta huga til hæða,
og þó vér grátum yfirsjónir vorar,
látum oss gleðjast yfir því, að náð
vors himneska föður varir enn á
seinasta degi ársins, og sú náð er
oss gefin til þess að vér æ tökum
framförum í því, sem gott er.
Og lítum því glöð mót árinu
nýja, sem vér nú vonum, að drott-
inn láti oss sjá.
Sé liðna tíðin óumbreytanleg,
þá er hin komandi ætluð oss til
þess að vér ráðum yfir henni.
Helgum guði krafta vora og
göngum vonglöð og styrk út á
braut hins nýja árs.
Þá mun gleðin verða meiri, yfir-
sjónirnar færri og vér betur
undirbúin fyrir dýrð drottins um
eilíf ár.“
Þetta var skrifað 31. desember
árið 1903 en á ekki síður við í nú-
tímanum.
II
Eins er með eftirfarandi brot úr
Íslensku hómilíubókinni, frá því
um aldamótin 1200:
„Fylg þú Guðs boðorðum á
hverjum degi í öllum hlutum.
Elska þú hreinlífi og hata engi
mann. Skaltu hvorki hafa í hug
þér hatur né öfund. Göfga þú
gamalmenni og elska ungmenni.
Bið þú fyr óvinum þínum af Krists
elsku. Ef þú verður reiður, þá
skaltu huggast samdægris. Skalt
þú aldregi örvilnast Guðs
miskunnar.
Þessi eru andleg smíðartól,
nauðsynlega fyllandi af oss bæði
nótt og dag.“
III
Hefðbundið jólaávarp Bene-
dikts XVI. páfa var gott að þessu
sinni, eins og vænta mátti, en ekki
síðra í fyrra, þar sem hann m.a.
sagði, að ef til vill hefði mann-
skepnan aldrei þurft jafn mikið á
frelsara að halda og einmitt núna,
á hinni póstmódernísku öld,
vegna þess hve lífið væri orðið
flókið og ráðvendi og siðferði ættu
undir högg að sækja. Mannkynið
á 21. öldinni virtist hafa fulla
stjórn á eigin örlögum, en svo
væri þó ekki; enn dæi fólk af völd-
um hungurs og þorsta, sjúkdóma
og fátæktar, á þessari öld alls-
nægtanna og óheftrar neyslu-
hyggju. Þau orð hans voru sann-
arlega við hæfi, og áminning ef
ekki kjaftshögg á þá, sem æða
áfram á eigin hyggjuviti og kröft-
um.
IV
Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, ritar í pistli á
Þorláksmessu:
„Kristni og kirkja eru […]
grunnþættir íslensks þjóðlífs og
þess að vera íslenskur – jafnríkur
þáttur og að tala íslensku eða
þekkja íslenska sögu.“
Mikið rétt, en aldrei nógu oft
ítrekað. Og fín tímasetning.
V
Og í Sálmabók íslensku þjóð-
kirkjunnar er m.a. að finna vers
eitt eftir Brynjólf Jónsson. Mér
finnst við hæfi að ljúka þessum
síðasta pistli mínum á árinu 2007
á því, og óska landsmönnum alls
hins besta í framtíðinni um leið og
ég þakka samfylgdina hingað til.
En þarna segir:
Þetta ár er frá oss farið,
fæst ei aftur liðin tíð.
Hvernig höfum vér því varið?
Vægi’ oss Drottins náðin blíð.
Ævin líður árum með,
ei vér getum fyrir séð,
hvort vér önnur árslok sjáum.
Að oss því í tíma gáum.
Við áramót
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
„Hvað boðar nýárs blessuð sól?“ orti
Matthías Jochumsson forðum, og eflaust eru
áþekkar spurningar á vörum margs landans
á þessum tímamótum. Sigurður Ægisson er
með sitt lítið af hverju í pistli sínum þennan
næstsíðasta dag hins gamla árs.
HUGVEKJA
FRÉTTIR
BRAUTSKRÁNING fór fram frá Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ föstudaginn 21. desember. Alls var braut-
skráður 51 stúdent. Bestum námsárangri á stúdents-
prófi náði Nanna Bryndís Snorradóttir á náttúrufræði-
braut. Nemendur úr nýstofnuðum Gospelkór Jóns
Vídalíns sungu í athöfninni. Þorsteinn Þorsteinsson
skólameistari greindi frá starfsemi skólans og afhenti
nemendum skírteini. Í ávarpi til nýstúdenta hvatti skóla-
meistari nemendur til að rækta með sér gagnrýna hugs-
un, forðast öfgar í samfélaginu og ræddi um þær leiðir
sem öflugastar eru til að láta gott af sér leiða.
Inga Lind Karlsdóttir, formaður skólanefndar, flutti
ávarp og gat þess að nú stæði til að byggja við skólann
vegna fjölgunar nemenda. Brynja Guðmundsdóttir flutti
ávarp fyrir hönd nýstúdenta og Dagný Grímsdóttir ný-
stúdent lék einleik á píanó.
51 lauk námi frá FG
KROSSGÁTUBÓK ársins 2008 er komin út.
Að þessu sinni er bókin 68 síður að stærð.
Ráðningar af flestum gátum er að finna aft-
ast í bókinni. Að venju prýðir forsíðuna mynd
eftir Brian Pilkinton. Gutenberg annaðist
prentun og bókband.
ÓP-útgáfa gefur Krossgátubókina út og er
þetta 25. árið í röð sem hún kemur út. Hún
fæst í öllum helstu bókabúðum og söluturn-
um landsins. Í fyrra seldist bókin upp hjá út-
gefanda.
Krossgátubókin
komin út
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 30. des-
ember verður tónlistarguðsþjónusta
í Kirkjuselinu í Fellabæ og hefst hún
kl. 20.
Þar verður frumflutt trúarleg tón-
list eftir Hjalta Jón Sverrisson með
textum eftir hann og dr. Sigurð Ing-
ólfsson.
Sóknarpresturinn á Valþjófsstað,
séra Lára G. Oddsdóttir, þjónar við
athöfnina.
Tónlistar-
guðsþjónusta