Morgunblaðið - 30.12.2007, Side 64
SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 364. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 8 °C | Kaldast 2 °C
SA 20-28 m/s, hvass-
ast vestan til f. hádegi
en austan til e. hádegi.
Slydda og síðan rign-
ing, mikil s-lands. » 8
ÞETTA HELST»
Raunávöxtun á núlli
Mikil lækkun á verði hlutabréfa
leiðir til þess að raunávöxtun lífeyr-
issjóðanna verður nánast engin á
þessu ári. Sterkara gengi íslensku
krónunnar rýrir ávöxtun á erlendum
eignum lífeyrissjóðanna. »Forsíða
Neitar aðild að morðinu
Baitullah Mehsud, meintur
bandamaður al-Qaeda-hryðjuverka-
netsins í Pakistan, neitaði í gær aðild
að morðtilræðinu við Benazir
Bhutto, degi eftir að þarlend stjórn-
völd bendluðu hann við ódæðið.
Talsmaður hans segir um samsæri
stjórnvalda, hersins og leyniþjón-
ustustofnana að ræða, enda óhugs-
andi að vígamenn hefðu getað kom-
ist framhjá öryggisvörðum Bhutto.
» Forsíða
Hald lagt á fíkniefni
Fíkniefnadeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á
Suðurnesjum fundu 150 e-töflur og
um 55 grömm af ætluðu amfetamíni
við húsleit sl. föstudag. »2
Hækkanir á matvöruverði
Allt útlit er fyrir að matvælaverð
muni fara stórhækkandi á næstunni.
Að sögn framkvæmdastjóra Bónuss
hafa birgjar boðað 10-13% hækkun á
verði matvöru. »4
Ríki og kirkja
Naumur meirihluti þjóðarinnar,
eða 51%, er hlynntur aðskilnaði ríkis
og kirkju en 49% eru andvíg. Þetta
lægsta hlutfall þeirra sem eru
hlynntir aðskilnaði frá því að Gallup
spurði þessarar spurningar fyrst ár-
ið 1994. »6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Saumað að Sarkozy
Forystugreinar: Á krossgötum
í innflytjendamálum
Reykjavíkurbréf
UMRÆÐAN»
Atvinnu- og raðauglýsingar
Furðufyrirbrigðið krónan …
Miklar breytingar í leikskólastarfi
Kumbaravogsbörnin
Réttur munaðarlausra barna
ATVINNA»
FÓLK»
Ozzy man ekkert stund-
inni lengur. »61
Ágúst Jakobsson
kvikmyndatökumað-
ur hefur unnið með
nokkrum af stærstu
nöfnum knattspyrn-
unnar. »56
KVIKMYNDIR»
Með stjörn-
um boltans
TÓNLIST»
Gengur áætlun Radio-
head upp? »63
FÓLK»
Hverjir munu skilja á
næsta ári? »58
Þótt Jesus Christ
Superstar sé alls
ekki gallalaus leik-
sýning stendur
rokkið alltaf fyrir
sínu. »60
Rokkarinn
Jesús
LEIKLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Margrét Lára íþróttamaður ársins
2. Lést af völdum höfuðhöggs
3. Maður handtekinn eftir sjálfsmorð
4. Lognið á undan storminum
STJÓRN Ný-
listasafnsins, eða
Nýló, ætlar í til-
efni af 30 ára af-
mæli safnsins á
næsta ári að
rannsaka sögu
þess og skrá fyr-
ir opnum tjöld-
um. Safneignin
er gríðarmikil og
þekkja fáir hana til hlítar. Á næsta
ári á að koma verkunum í við-
unandi geymslu og skrá sögu
safnsins ýtarlega. Þessi úttekt á
eign safnsins og skjölum þess á öll
að fara fram fyrir augum gesta og
verða haldnar sýningar út frá sögu
safnsins.
Nína Magnúsdóttir, formaður
stjórnar Nýló, segir sögu stofn-
unarinnar eiginlega bara til í
munnmælum, öll gögn séu í köss-
um og á afmælisárinu eigi í raun
að bjarga sögu safnsins. Safn-
eignin sé enda goðsagnakennd,
bæði að innihaldi og verðmæti. Í
eigu safnsins eru m.a. verk eftir
Sigurð Guðmundsson, Dieter Roth,
Richard Hamilton, Matthew Barn-
ey og Vito Acconci. | 41
Nýló fyrir
opnum
tjöldum
Nína Magnúsdóttir
Bæjaryfirvöld
verða að hafa
stjórnina, verða
að vita hvert á að
stefna og hvernig
þau vilja hafa
þetta samfélag,
samsetningu þess
og umhverfi, en
mega ekki láta
teyma sig eftir
fermetrum og
magni, segir Gunnar Einarsson,
bæjarstjóri í Garðabæ, í viðtali við
Morgunblaðið.
Gunnar telur skipta verulegu máli
að bæjaryfirvöld leiði vinnu við
skipulagsmál. „Verktakar og aðrir
hagsmunaaðilar eiga oft land eða
kaupa það og hafa sínar hugmyndir
um nýtingu þess og þá fer kannski
byggingamagn og annað að ráða
miklu meira ferðinni en einhver
heildarsýn. […] Mér hefur fundist,
þegar ég er farinn að kafa betur ofan
í þessi mál, að verktakar geti ráðið
hér fullmiklu. Það kemur kannski til
af því að þeir eru gjarnan með bolt-
ann í höndunum og hafa bæði kraft
og tíma til að hugsa og framkvæma,“
segir Gunnar. | 30
Verktakar
með boltann
Gunnar
Einarsson
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
UNNIÐ er að því að auka framleiðslu
álvers Alcans á Íslandi í Straumsvík í
núverandi kerskálum. Er það gert
með því að auka rafstrauminn sem
fer um hvert ker og með því mun
heildarframleiðslan í Straumsvík
aukast um 40 þúsund tonn á ári. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í des-
emberútgáfu ISAL-tíðinda – frétta-
bréfs Alcans á Íslandi.
Til þess að af aukinni framleiðslu
geti orðið þarf að ráðast í miklar fjár-
festingar, að því er segir í pistli Gunn-
ars Guðlaugssonar, framkvæmda-
stjóra stækkunarsviðs. Meðal annars
þarf að bæta við nýrri þurrhreinsi-
stöð og ofni í steypuskála. „Í skaut-
smiðju og skautskála þarf að ráðast í
miklar endurbætur því stækka þarf
skautin frá því sem nú er. Með þess-
um aðgerðum mun framleiðni álvers-
ins aukast og mun það því verða sam-
keppnishæfara en nú er. Samhliða
tæknilegum undirbúningi straum-
hækkunarinnar er unnið að því að
tryggja raforku til verkefnisins.“
Nýtt álver í undirbúningi
Jafnframt er unnið að undirbún-
ingi nýs álvers, annaðhvort í Þorláks-
höfn eða á Keilisnesi, þrátt fyrir
óvissu í raforkumálum. „Það gerir
okkur betur í stakk búin til að keppa
um þá raforku sem mun verða til
reiðu í framtíðinni. Þetta hefur í för
með sér að við munum hleypa af
stokkunum umhverfismati og full-
hanna verksmiðju í samvinnu við íbúa
og aðra hagsmunaaðila á þeim stað
sem fyrir valinu verður,“ segir Gunn-
ar.
Framleiðsla aukin um 22%
Unnið er að undirbúningi framleiðsluaukningar álversins í
Straumsvík Hönnun nýs álvers er jafnframt í burðarliðnum
Straumsvík Ráðast þarf í miklar
fjárfestingar vegna breytinga.
Í HNOTSKURN
»Íbúar Hafnarfjarðar höfnuðustækkun álversins í Straums-
vík í kosningu 31. mars sl.
»Þrátt fyrir það er hægt aðauka framleiðslugetu álvers-
ins um 22%, án stækkunar.
»Stofnað hefur verið sérstaktstækkunarsvið til að vinna að
undirbúningi.
»Jafnframt verður unnið aðundirbúningi nýs álvers.
♦♦♦ ÞEIR eru margir sem sofa fram eftir um jól og áramót,en þó ekki allir. Þetta fólk tók daginn snemma í gær og
fór út saman til að leika sér í snjónum á Seltjarnarnesi.
Þau vissu að það er nauðsynlegt að nota tækifærið því
snjórinn er fljótur að hverfa. Raunar er spáð mikilli
rigningu í dag, sunnudag.
Snjórinn kemur og fer
Margir njóta útiverunnar í vetrarkuldanum
Morgunblaðið/Ómar