Morgunblaðið - 28.02.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 28.02.2008, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MÁLIÐ AFGREITT José Manuel Barroso, forsetiframkvæmdastjórnar Evrópu-sambandsins, sagði eftirfarandi á blaðamannafundi í Brussel í gær að loknum fundi með Geir H. Haarde forsætisráðherra: „Okkar skilningur, ekki aðeins varðandi Ísland, heldur sérhvert svipað tilfelli, er að myntsamruni við evrusvæðið til lengri tíma litið komi aðeins til greina innan hins stærri ramma aðildar að Evrópusamband- inu.“ Geir H. Haarde upplýsti í Brussel í gær, að það hefði komið fram á fundi hans með forystumönnum ESB, að Ísland gæti lent í pólitískum erfið- leikum gagnvart ESB ef einhliða upptaka evru yrði reynd. Forsætis- ráðherra sagði orðrétt: „Það er staðfest hér af öllum að við gætum lent í verulegum pólitískum vandræðum gagnvart Evrópusam- bandinu, ef okkur dytti í hug að taka upp evruna einhliða... Og hvað eru pólitísk vandræði í því sambandi? Jú, það eru auðvitað vandræði í kringum EES-samninginn og Schengen-sam- starfið og fleira, þar sem þeir gætu þá lagt steina í okkar götu.“ Nú er þessi mynd alveg skýr og hefur þó verið skýr áður. En þegar sjálfur forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir beint og umbúðalaust, að einhliða upptaka evru geti ekki komið til greina fyrir Íslendinga, hljóta menn hér að trúa því. Þarf maðurinn að tala eitthvað skýrar?! Auðvitað hafa endalausar umræður hér síðustu misseri um að við ættum að taka evruna upp einhliða verið tóm vitleysa og ábyrgðarhluti af þeim ís- lenzku stjórnmálamönnum, sem þannig hafa talað, að reyna að blekkja almenning hér með slíku tali. En nú verður að telja, að hér með sé þessum umræðum lokið. Eftir sem áður geta menn rætt kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu eins og hverjum og einum sýnist en vænt- anlega er umræðum hér með lokið um einhliða upptöku evru. Það er ótrúlegt hvað opinberar um- ræður hér geta stundum farið út í vit- lausan farveg og hverjir láta draga sig út í þær.Það er hins vegar mjög gott, að ferð forsætisráðherra hefur orðið til þess að hreinsa þetta rugl út úr umræðum hér. Það verður svo fróðlegt að sjá, hvernig umræður um evruna þróast í nágrannalöndum okkar. Fyrir all- mörgum árum kom út skýrsla á veg- um þáverandi ríkisstjórnar, þar sem þeirri skoðun var lýst, að þá fyrst ef Bretar, Danir og Svíar tækju upp evru, en þær þjóðir eru allar í Evr- ópusambandinu, þyrftum við Íslend- ingar að hugsa okkar gang. Það hefur ekki gerzt og engar vísbendingar um að það sé að gerast. Nú er hægt að ræða málefni krón- unnar á skynsamlegri forsendum. GRÆNN KOSTUR Hrein orka er mikilvæg og verð-mæt, ekki síst á okkar tímum þegar grípa þarf til aðgerða vegna hlýnunar jarðar og loftslagsbreyt- inga af manna völdum. Á Íslandi hef- ur verið litið til orkufrekrar stóriðju í leit að leiðum til að nýta þá orku, sem á landinu er að finna, með áherslu á álver. Frekari virkjun fallvatna er umdeild en djúpboranir vekja vonir um að nýta megi hita í iðrum jarðar til að framleiða rafmagn í stórum stíl. Álverin hafa skipt miklu máli í ís- lensku efnahagslífi en þótt þau séu knúin hreinni orku fylgir álvinnsl- unni sjálfri talsverð mengun, sem getur valdið erfiðleikum við að upp- fylla losunarskilyrði þegar fram í sækir. Álver eru hins vegar ekki eini kosturinn í orkunýtingu og síður en svo sá grænasti. Í fyrradag var undirritaður samn- ingur um raforku, gagnaflutninga og lóð fyrir nýtt, alþjóðlegt gagnaver við Keflavíkurflugvöll. Samninginn gerði fyrirtækið Verne Holdings, sem er í eigu Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, og bandaríska fjárfestingafyrirtækisins General Catalyst Partners, við Landsvirkjun, Farice og Þróunarfélag Keflavíkur- flugvallar. Þar er gert ráð fyrir um tuttugu milljarða króna fjárfestingu á næstu fimm árum og er gert ráð fyrir að á næstu fjórum árum verði til 100 störf tengd gagnaverinu. Óbein efnahags- áhrif gætu numið um 40 milljörðum króna. Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnar- formaður Verne Holdings, sagði þeg- ar samningurinn var undirritaður að erlendir viðskiptavinir sæju sér hag í því að hafa aðgang að endurnýjan- legri orku á stöðugu verðlagi til langs tíma. Nú væri orkuskortur á þétt- býlissvæðum beggja vegna Atlants- hafsins og orkuverð bæði hátt og sveiflukennt, auk þess sem sú orka væri yfirleitt framleidd með kolefn- iseldsneyti: „Í þessu verkefni mætast hnattrænar breytingar og íslenskar kjöraðstæður.“ Björgólfur Thor sagði að bregðast þyrfti við skaðlegum breytingum, sem óumdeilt væri að koltvísýrings- mengun ylli í öllu vistkerfinu: „Ég er í hópi þeirra sem telja að ábyrgðin hvíli á herðum okkar allra og við sem stöndum að þessu verkefni teljum það ekki síst vera á ábyrgð athafna- manna og fjárfesta að beina atvinnu- lífi heimsins inn á grænar brautir. Og við viljum að verkin tali.“ Tímasetning þessa samnings er mikilvæg fyrir íslenskt efnahagslíf. Um þessar mundir hægir verulega á hjólum þess og blikur eru á lofti um framhaldið en framkvæmdir vegna gagnavers gætu dregið úr áhrifunum og mýkt lendinguna. Samningurinn er einnig mikil- vægur vegna umhverfissjónarmiða. Ákvörðun um að virkja snýst ekki að- eins um virkjunina sjálfa, heldur einnig í hvaða tilgangi er virkjað. Í þeim efnum eru gagnaver hinn græni kostur. Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is Í fyrsta sinn í meira en hálfa öld mánú eygja von fyrir þá sem orðiðhafa fyrir mænuskaða. Þetta eruþeir sammála um sérfræðingarnir tveir, sem dvöldu hér á landi nýlega á vegum Mænuskaðastofnunar Íslands, Laurance Johnston og Harry Goldsmith. Johnston er yfirmaður gagnabanka Ís- lands og Alþjóða heilbrigðismálastofnun- arinnar um mænuskaða en íslenska heilbrigðisráðuneytið kom gagnabankan- um á fót. „Engar framfarir hafa orðið gagnvart mænuskaða árum saman, í hálfa öld reyndar,“ segir Goldsmith. „Og það sem okkur vantar er nýjar hugmyndir, ný meðferð. Það er grundvöllur Mænuskaðastofnunar Íslands.“ Johnston og Goldsmith hafa komið hingað til lands þó nokkrum sinnum, yf- irleitt fyrir tilstilli Auðar Guðjónsdóttur, sem þekkt er orðin fyrir baráttu sína í málefnum mænuskaðaðra. Johnston kynntist Auði fyrst árið 2001, þegar hann kom hingað á ráðstefnu um mænuskaða, og með þeim tókust kynni sem leiddu til stofnunar gagnabankans. „Aðalhug- myndin þá var að reyna með opnum huga að samþætta alla hluta þessa púsluspils,“ segir Johnston. „Mænuskaði hefur verið ógurlegur bölvaldur fyrir allt mannkynið og jafnvel nefndur „hinn heilagi kaleikur taugafræðilegra rannsókna“. Ef við get- um læknað hann, getum við læknað nán- ast hvað sem er.“ Með miklum þunga lýs- ir Johnston því að í gegnum alla mannkynssöguna hafi engin von verið til handa mænusköðuðum. „Í fyrsta sinn hefur nú orðið jákvæð þróun. Núna get- um við púslað saman bútum víða að, hvort sem þeir er Evrópu eða Kína veruleg,“ segir J þessa von hafa br hvað er mögulegt o því að hann ákvað inu á sínum tíma. „Þó að eingöng fáum í gegnum v kemur það gríðar um víða veröld,“ mér er það þann þjóðfélag.“ Aðspu Íslendingar geti r verkefninu til góðs „Með því að sty hjálpað okkur að heitna lands lækni Goldsmith bend stofum hafi menn sem hafi vakið mik og vakið von. „En Sérfræðingar La  Íslendingar frumkvöðlar á sviði mænu- skaða  Ný vitund um hvað er mögulegt Von í fyrsta sinn í meira en hálfa öld Eftir Ólaf Þ. Stephensen í Brussel José Manuel Barroso, forseti fram-kvæmdastjórnar Evrópusam-bandsins, vill fá hugmyndir fráÍslendingum þegar sjávarútvegs- stefna ESB verður endurskoðuð á næstu árum. Barroso og Geir H. Haarde ræddu mikið um sjávarútvegsmál og málefni hafsins á fundi sínum í Brussel í gær – ekki þó í samhengi við hugsanlega aðild Íslands að bandalaginu í framtíðinni. Það mál var ekki á dagskrá. Á blaðamannafundi eftir hádegisverð- arfund Geirs og forsetans sagðist Bar- roso vilja lýsa tengslum ESB og Íslands sem „prýðisgóðum“, bæði tvíhliða og inn- an ramma samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Rekstur EES-samn- ingsins gengi vel. Geir tók undir það; sagði að EES- og Schengen-samningarn- ir væru grundvöllur tengsla Íslands við sambandið. Barroso sagði að Ísland og ESB ættu þegar í nánu samstarfi, en það mætti enn efla. Þar nefndi hann málefni hafsins sér- staklega, þar með talda baráttu gegn sjó- ræningjaveiðum í Norður-Atlantshafi. Hann sagði þá Geir hafa rætt sjávarút- vegsstefnu ESB og stefnu Íslands „og ég verð að segja að í því efni getum við lært ýmislegt af Íslendingum,“ sagði Barroso. Hann boðaði m.a. aukið samstarf Íslands og Evrópusambandsins um vöktun og eftirlit á hafinu. Geir og Barroso ræddu einnig málefni norðurslóða, en sá síðarnefndi sagði framkvæmdastjórnina myndu veita norðurslóðum meiri athygli í framtíðinni. „Þess vegna var líka mjög mikilvægt fyr- ir mig að hitta forsætisráðherra Íslands,“ sagði Barroso. Hann sagði að í hinni nýju svokölluðu norðlægu vídd utanríkis- stefnu sambandsins væru heimskauts- svæðið og Barentshafið skilgreind sem sérstök áherzlusvæði ESB. „Við leggjum mikla áherzlu á þessi mál. Við ætlum að halda áfram okkar góða samstarfi og ég er viss um að mörg af mikilvægustu hnattrænu málunum eins og loftslags- breytingar, fiskveiðar, orka og flutningar verða ofarlega á dagskrá í viðræðum okkar í framtíðinni,“ sagði Barroso. Aðild ekki á dagskrá Geir var spurður hvort hugsanleg aðild Íslands að ESB í framtíðinni hefði komið til umræðu á fundi þeirra Barrosos og hvort þá hefðu verið ræddar einhverjar hugsanlegar lausnir varðandi sjávarút- vegsstefnu ESB. Geir svaraði: „Nei, við ræddum þetta ekki sem sérstakt mál því að það er ekki á dagskrá núverandi rík- isstjórnar.“ Hann sagðist hafa útskýrt stöðu Evrópuumræðna á Íslandi fyrir Barroso og þeir hefðu einnig rætt um evruna. „Þetta var hreinskilnisleg og op- in umræða,“ sagði Geir. Í svari við spurningu svissnesks blaða- manns sagði Geir að Ísland hefði sínar ástæður fyrir því að standa utan ESB. „Umræðan hefur verið mismunandi og skoðanakannanir sveiflast upp og niður. Afstaða okkar verður að byggjast á mati á hagsmunum. Ein ið, flokkur minn se isstjórninni og að mennings, er út þannig að kostirni göllunum. Hvernig kann að vera erfit hagsmunamats er sagði Geir. Hann sagði að e an núverandi stöð og horfum til leng ESB-aðild né upp mörg ár, væri ne vanda. Barroso sagði Barroso vill heyra hu við endurskoðun sjáv Ýmis helztu viðfangsefni alþjóðastjórnmálanna voru til umr ana, utanríkismálastjóra ESB, í Brussel í gær. Þeir ræddu m öryggismál og ástandið í Kosovo. Solana þakkaði Íslendingu að hitta gamlan vin að funda með Solana; hann hefði lengi ve Gamlir vinir ræddu he

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.