Morgunblaðið - 28.02.2008, Side 44

Morgunblaðið - 28.02.2008, Side 44
■ Í dag kl. 19.30 Liszt og Bruckner Tveir stórmeistarar hvor á sínu sviði. Annar einn mesti píanó- snillingur sögunnar, hinn einn af jöfrum sínfóníunnar. Fluttur verður píanókonsert nr. 2 eftir Liszt og sinfónía nr. 3 eftir Bruckner. Hljómsveitarstjóri: Arvo Volmer. Einleikari: Ewa Kupiec. ■ Fim. 6. mars kl. 19.30 Gamalt og nýtt Enginn vill missa af Sigrúnu Eðvaldsdóttur leika hinn magnaða fiðlukonsert Albans Berg. ■ Fim. 13. mars kl. 19.30 Páskatónleikar Söngsveitin Fílharmónía og evrópskir einsöngvarar í fremstu röð taka þátt í flutningi Þýskrar sálumessu eftir, Brahms, eins mesta snilldarverks kórbókmenntanna. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is Hvað er mamma? Við eigum hana öll. Hvað gerir mamma? Hvað gerir þú við hana?… 51 » reykjavíkreykjavík ÓMAR Ragnarsson er þekktur af bílaástríðu sinni og hefur nú fest kaup á forláta Fiat 126 blæjubíl og fest á hann númeraplötu með áletr- uninni „ÁST“. Sá er titillinn á leikriti sem Ómar leikur í í Borgarleikhús- inu þessa dagana og keyrði Ómar inn í leikhúsið í gærkvöldi á bílnum góða, viðstöddum til mikillar skemmtunar. „Þetta er ástarbíll- inn,“ sagði Ómar við blaðamann í gærkvöldi, skömmu áður en sýning hófst á Ást. Þetta væri minnsti blæjubíll landsins og hann hefði leit- að hans á netinu í ein fjögur ár. Bíll- inn er mjög sjaldgæfur og því erfitt að finna eintak til sölu. „Á seinni parti síðustu aldar voru þetta ódýrustu, einföldustu og minnstu bílarnir í Evrópu, svona nokkurs konar tákn Póllands,“ út- skýrir Ómar. Vélin í bílnum er að- eins 650 rúmsentimetrar að stærð en þó segir Ómar bílinn ná 105 km hraða á klst. Hann eyði um fimm lítrum á hundraðið. „Það voru bara smíðaðir 400 blæjubílar en það voru alls framleiddar 8,5 milljónir af Fiat 500 og þessum. Þetta er sami bíllinn en með mismunandi yfirbyggingu.“ Ómar segir þetta „limmósínu fátæka mannsins“ og ef til vill verði limman leigð út sem minnsta limma lands- ins. Hún sé tilvalin í brúðkaup. „Limmósína fátæka mannsins“ Morgunblaðið/Jón Svavarsson Ástarbíllinn Ómar Ragnarsson keyrði á ástarbílnum inn í anddyri Borg- arleikhússins í gærkvöldi. Bíllinn verður þar til sýnis um óákveðinn tíma.  Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum var Gauk- ur Úlfarsson sjónvarpsþátta- framleiðandi og tónlistarmaður dæmdur í gær í héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða Ómari R. Valdimarssyni 300 þúsund kr. í miskabætur fyrir ummæli sem hann viðhafði á bloggsíðu sinni. Viðbrögð bloggara eru misjöfn. All- margir fagna niðurstöðunni og segja að í henni felist upphefð fyrir bloggið. Einhverjir hafa hvatt Gauk til að áfrýja málinu til Hæstaréttar sem hann virðist nú hafa gert en vinsælir bloggarar á borð við Egil Helgason eru gagnrýnir á dóm hér- aðsdóms og segja hann opna fyrir flóðgáttir málaferla vegna æru- meiðinga. Sjálfur segir Egill að dómsmálin myndu skipta hundruðum ef hann nennti að elta ólar við allar þær sví- virðingar sem birst hafa um hann sjálfan í bloggheimum. Segir hann besta ráðið að loka tölvunni þegar manni líkar ekki það sem um mann er sagt úti í bæ. Viðbrögð bloggara við dómi æði misjöfn  Vikuleg spurningakeppni með tónlistarlegu ívafi, Pop-Quiz, hefst nú á föstudaginn á Organ kl. 18. Fyrsti spyrill og spurningahöf- undur er Valgeir Guðjónsson en í framhaldi munu þau Ágúst Boga- son á Rás 2, Helga Þórey tónlistar- gagnrýnandi hjá Morgunblaðinu og Steinþór Helgi af Fréttablaðinu og X-inu stjórna keppni. Reglurnar eru með svipuðu sniði og á sam- bærilegri keppni á Grand Rokk, þ.m.t. bjórspurningin vinsæla. Pop-Quiz á Organ Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is EINS og fram kom í Morgunblaðinu í gær virðist sem fjöldi flytjenda í Söngvakeppni Sjónvarpsins hafi ekki gert samning við RÚV og þar með ekki veitt samþykki sitt fyrir því að flutningur þeirra yrði notaður á safndisknum Laugardagslögin 2008, né að sá flutningur yrði seldur á Tónlist.is. Björn Th. Árnason, formaður og framkvæmda- stjóri FÍH (Félags íslenskra hljómlistarmanna) segir að félagið muni taka málið í sínar hendur og kanna með lögmönnum sínum hvort brotið hafi verið á viðkomandi flytjendum. Telur hann hins vegar að málið sé auðleyst, enda sé mikill vilji fyrir því hjá RÚV að leiða málið til lykta. „Eftir því sem ég get best séð benda menn hver á annan og við þurfum fyrst og fremst að skoða þá samninga sem gerðir voru,“ segir Björn. Nú virðist sem margir flytjendur hafi ekki skrifað undir neinn samning. Er það eðlilegt? „Það er auðvitað ekki eðlilegt. Mér sýnist að í þessu tilviki hafi Sjónvarpið gert samninga við höfunda og höfundar hafi síðan átt að sjá til þess að upplýsa flytjendur. Allar greiðslur til flytj- enda hefðu átt að vera inn í þessum heildar- pakka.“ Eiður Arnarson hjá Senu hefur sagt það sé hlutverk rétthafa að semja við flytjendur? „Það er hárrétt hjá honum. Þetta er eitt af því sem við munum skoða. Í Söngvakeppninni í fyrra og hittiðfyrra var FÍH haft með í ráðum við gerð rammasamnings um Söngvakeppnina og þar innanhúss eiga menn að vera upplýstir um þetta atriði. Hins vegar er það mjög mikilvægt að flytj- endur, séu meðvitaðir um það sem þeir eru að taka að sér.“ Reglurnar taka af öll tvímæli Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri segir málið allt hið sérkennilegasta. Höfundarnir hafi skrifað undir reglur Söngvakeppni Sjónvarpsins en þar standi í 16. grein að allir þátttakendur, lagahöfundar, textasmiðir og flytjendur gangist undir þá skuldbindingu að tónlist þeirra og flutningur komi út á safnplötu eða öðrum miðli sem Sjónvarpið kýs að gefa út sjálft eða í sam- vinnu við útgáfufyrirtæki. Þessi liður ætti að taka af öll tvímæli um þetta en með undirskrift samþykkja höfundarnir að það sé á þeirra for- ræði að upplýsa flytjendur um málið. Spurður að því hvort svipað mál hafi komið upp áður segir Þórhallur að honum sé ekki kunnugt um það enda hafi Söngvakeppnin í ár verið sú fyrsta sem hann stýrir fyrir Sjónvarpið. Skrítin vinnubrögð Pétur Örn Guðmundsson tónlistarmaður söng bakraddir í nokkrum lögum í keppninni og hann tekur undir þá gagnrýni sem þegar hefur komið fram. „Í mínu tilviki var ég verktaki hjá höf- undum sem hringdu í mig og báðu mig um að syngja í laginu.“ Aðspurður hvað hann hafi feng- ið greitt fyrir segir hann að upphæðirnar hafi verið mjög mismunandi. „Höfundar fengu ákveðna greiðslu frá Sjónvarpinu og svo fór það bara eftir því hvað þeir höfðu mikið á milli hand- anna eftir að búið var að sauma búninga og ann- að. Þetta voru engar stórar upphæðir.“ Pétur segist hins vegar aldrei hafa rætt það við nokk- urn mann að hans flutningur yrði notaður á safn- plötu en segir að hann hafi svo sem getað sagt sér það sjálfur því þannig safnplötur hafi komið út áður. „En þetta eru óneitanlega svolítið skrít- in vinnubrögð. Þetta er eins og að spila á tón- leikum sem RÚV tekur upp og svo eru þeir tón- leikar bara komnir út á DVD-disk eftir nokkrar vikur án þess að maður sé hafður með í ráðum.“ Örlygur Smári, höfundur sigurlagsins í Söngvakeppninni í ár, vildi ekki tjá sig um málið og Friðrik Ómar, einn flytjenda lagsins, vildi heldur ekki tjá sig um málið með beinum hætti. Hins vegar hafði hann þetta að segja: „Öll mál sem snúa að flytjendum á Íslandi eru í molum. Það er okkur sjálfum að kenna fyrst og fremst því samstaðan er engin.“ FÍH kannar rétt flytjenda Friðrik Ómar segir öll mál er varða flytjendur á Íslandi í molum Morgunblaðið/Jón Svavarsson Fullkomið líf Örlygur Smári, höfundur sigurlagsins í ár, vildi ekki tjá sig um málið. Pétur Örn Guð- mundsson segir að hann hafi aldrei rætt það við nokkurn mann að flutningur hans kæmi út á safnplötu. Björn Th. Árnason Þórhallur Gunnarsson Pétur Örn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.