Morgunblaðið - 12.04.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 9
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„JÖKLAR munu væntanlega hverfa enn fyrr í
Himalaja en hér á landi á komandi árum vegna
hlýnandi loftslags, en frekari rannsóknir þarf til
þess að meta nánar hve lengi
þeir endast. Óttast er að jökl-
ar þar gætu meira eða minna
horfið á næstu þrjátíu til sjötíu
árum. Það hefði mjög mikil
áhrif á alla búsetu sjö hundruð
milljón manna á Indlandsslétt-
unni þar sem stærstu árnar
flytja leysingavatn frá jöklun-
um, svo sem Indus, Ganges og
Brahmapurta,“ segir Helgi
Björnsson, jarðeðlisfræðingur við Raunvísinda-
stofnun Háskóla Íslands, um fyrirhugaða þátt-
töku Íslendinga í jöklarannsóknum í Himalaja-
fjöllunum.
Að sögn Helga hefur forseti Íslands haft frum-
kvæði að því að setja á fót samstarf íslenskra og
indverskra vísindamanna um jöklarannsóknir
þar sem nýta mætti reynslu af áratuga starfi hér
á landi sem á margan hátt er meiri en Indverja.
„Þessar rannsóknir felast í því að setja af stað
mælingar eins og þær sem við höfum gert á Ís-
landi. Það er að rannsaka stærð jöklanna, gera
kort af yfirborði þeirra og botni; meta síðan af-
komu þeirra, það er hversu mikill snjór safnast á
þá á hverju ári, hve mikið bráðnar og rennur
burt til fallvatna og tengja það veðurþáttum.
Fylgst verður með hreyfingu jöklanna og sett-
ar upp veðurstöðvar og gögnin síðan notuð til að
gera líkön af tengslum afkomu jökla og loftslags.
Að lokum verða gögnin og líkönin notuð til að
spá fyrir um framtíðina út frá gefnum sviðs-
myndum um hugsanlega loftslagsþróun á næstu
árum, alveg á sama hátt og við höfum unnið hér
á landi. Þessar niðurstöður verða síðan notaðar
við mat á jöklabreytingum á næstu áratugum í
Himalaja-fjöllunum og við allt skipulag um við-
brögð við þeim.“
Helgi segir Indverja standa mjög framarlega
á mörgum sviðum vísinda og m.a. fylgjast vel
með jöklum sínum úr gervitunglum. Þeir séu
hins vegar skemmra á veg komnir á þessu sviði
jöklarannsókna og hluti verkefnisins verði að
þjálfa þarlenda nemendur hér á landi við að afla
gagna á jöklum og nota þau til líkanasmíði af
tengslum veðurs og afkomu og lýsa síðan við-
brögðum jökla við breytingum í loftslagi.
„Það er ekki ætlun okkar að taka að okkur
jöklarannsóknir í Indlandi heldur munu Indverj-
ar að sjálfsögðu vinna þær. Hins vegar getum við
lagt til reynslu okkar og aðferðir. Samanlagt eru
í Himalaja mestu jöklar utan heimskautasvæða
svo þátttaka okkar í rannsóknunum yrði gagn-
legt framlag til alþjóðlegra jöklarannsókna.“
Listinn yfir afleiðingarnar langur
Helgi segir rýrnun og hvarf jökla í Himalaja
myndu hafa mikil áhrif á líf milljóna manna.
„Úrkoma berst með vestanvindum að vetri og
monsúnvindum að sumri en þess á milli er þurrt.
Þegar jöklarnir eru horfnir fá árnar ekkert ann-
að en úrkomu, þær þorna því í þurrkatíð og þá er
ekkert vatn að hafa til áveitna. Allt samfélagið
hefur treyst á að leysingarvatn frá jöklunum
haldi við ánum í árstíðum þegar ekki rignir.
Í fyrstu verða jökulár vatnsmiklar og hættu-
leg jökulhlaup munu verða tíð frá jökulstífluðum
vötnum. Þau falla úr mikilli hæð og sópa burt
öllu sem fyrir verður allt niður á sléttlendi. Áhrif
á vegi, brýr og ferðamannaiðnað eru augljós.
Þegar jöklarnir hverfa minnkar vatnsmagnið
og sums staðar hverfa ár. Það getur haft áhrif á
vatnsorkuver, áveitur til landbúnaðarhéraða,
fæðuframleiðslu, drykkjarvatn, reyndar allt
skipulag byggðar og að lokum má minna á
heilsufarsvanda. Samstarfsverkefninu sem for-
seti Íslands hefur haft frumkvæði að því að koma
á er ætlað að leggja grunn að mati á áhrifum
loftslagsbreytinga á jökla svo að vinna megi
markvisst að því að takast á við efnahagslegar
og félagslegar afleiðingar þeirra.“
Íslenskir vísindamenn hyggjast þjálfa Indverja í jöklarannsóknum
Hop jökla í Himalaja gæti ógnað
afkomu hundraða milljóna manna
AP
Vatnsforðabúr Við Dal-vatnið í Srinagar, Ind-
landi. Hluti Himalaja-fjalla er í bakgrunni.
Helgi Björnsson
Fréttir á SMS
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Ný sending
Stakir jakkar, kjólar, hördress,
pils og skokkar
M
bl
.9
89
14
2
FLOTTAR
YFIRHAFNIR
jakkar og frakkar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00
og Eddufell 10.00-14.00
Nokkur sæti eru laus
í eftirtaldar sumarferðir hjá okkur:
Austurland 18. - 21. júní
Vesturland 23. - 27. júní
Danmörk 6. - 12. júní
Skotland 26. júní - 1. júlí
Nánari upplýsingar eru á skrifstofunni
mánud. þriðjud. og miðvikudaga kl. 16:30 - 18:00
í síma 551 2617 eða 864 2617.
Stjórnin
Frá Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
Síðumúla 3 · Sími 553 7355
Hæðasmára 4 · Sími 555 7355
undirföt
A-FF
skálar
Verð:
Bh 5.500 kr.
Boxer 3.100 kr.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
ALLRA VEÐRA
HETTUKÁPUR
STR. 34-48
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Fallegar
sumar-
peysur
Str. S-4XL