Morgunblaðið - 12.04.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 15
AUKIN velta í dagvöruverslun um
7,2% í marsmánuði, miðað við sama
mánuð í fyrra, er að mestu rakin til
páskahátíðarinnar og mikilla mat-
arinnkaupa vegna hennar. Aukn-
ingin síðan í febrúar er 13,1% á
föstu verðlagi. Árstíðaleiðrétt
hækkun á dagvöruveltunni milli
febrúar og mars nam eingöngu
0,9%, samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknasetri verslunarinnar á
Bifröst. Verð á dagvöru hækkaði
um 6,4% í mars frá því í sama mán-
uði í fyrra.
Sala áfengis í marsmánuði jókst
um 4,4% milli ára og um 4,6% milli
mánaða. Verð á áfengi hækkaði um
2,3% frá marsmánuði 2007.
En ekki jókst veltan í öllum vöru-
flokkum. Þannig varð samdráttur í
fata- og skóverslun á milli ára. Í
mars dróst fataverslun saman um
13%, miðað við mars í fyrra á föstu
verðlagi.
Skóverslun minnkaði í mars um
30,4% á milli ára á föstu verðlagi,
og um 3,2% síðan í febrúar sl. Verð
á fötum hækkaði um 5% í mars,
miðað við mars í fyrra, og verð á
skóm hækkaði á sama tímabili um
11,6%. Þá jókst velta í húsgagna-
verslun í mars um 15,9% á breyti-
legu verðlagi síðan í febrúar sl. og
um 13,4% á föstu verðlagi.
Páskarnir juku dag-
vöruveltuna í mars
3L'B
':
-770
-775
-77/
-77,
-776
-77-
*
F
7
8
M
2*$&%
&$ D' ': ''' 3
2 $ , , 2 2 # + 0
♦♦♦
HLUTHAFAR verkfræðistofanna
VGK-Hönnunar og Rafhönnunar
hafa samþykkt sameiningu félaganna
undir merkjum
Mannvits. Með
þessum samruna
verður til stærsta
verkfræðistofa
landsins með um
360 starfsmenn á
sínum snærum. Forstjóri Mannvits
verður Eyjólfur Árni Rafnsson en að-
stoðarforstjórar þeir Runólfur
Maack, sem mun hafa umsjón með er-
lendri starfsemi, og Skapti Valsson,
sem hefur umsjón með innlendri
starfsemi. Mannvit byggir á grunni
þriggja rótgróinna verkfræðistofa
sem allar voru stofnaðar á sjöunda
áratug síðustu aldar, þ.e. Hönnunar,
Verkfræðistofu Guðmundar og Krist-
jáns og Rafhönnunar.
Höfuðstöðvar Mannvits verða á
Grensásvegi 1, þar sem unnið er að
því að stækka og endurbæta húsnæð-
ið. Taka á nýjar höfuðstöðvar í notkun
haustið 2009 en fram að því verður
fyrirtækið einnig til húsa á Laugavegi
178 og í Ármúla 42. Utan höfuðborg-
arsvæðisins verða reknar áfram níu
starfsstöðvar. Mannvit á hlut í nokkr-
um fyrirtækjum í tengdri starfsemi,
eins og HRV Engineering, Geysir
Green Energy, Loftmyndum, Vatna-
skilum og Skipaskoðun Íslands.
Verkfræði-
stofur í eitt
ENGINN þróaður hlutabréfamark-
aður lækkaði jafn mikið og sá ís-
lenski á fyrsta fjórðungi ársins. Alls
nam lækkun úrvalsvísitölunnar
32,36% á fyrstu þremur mánuðum
ársins og samkvæmt samantekt
upplýsingafyrirtækisins Standard
& Poor’s er það ríflega 14 pró-
sentustigum meiri lækkun en á
þeirri vísitölu sem lækkaði næst-
mest á tímabilinu, Hang Seng-vísi-
tölunni í Hong Kong.
Þriðju mestu lækkunina er síðan
að finna í Grikklandi en þar lækk-
aði helsta hlutabréfavísitalan um
tæp 15%.
Reyndar væri synd að segja að
það væri mjög upplífgandi iðja að
líta yfir þróun helstu hlutabréfa-
vísitalna heimsins á tímabilinu jan-
úar-mars, nema með augum skort-
sala. Aðeins einn þeirra 26 markaða
sem teljast þróaðir hækkaði á tíma-
bilinu en það var í Lúxemborg. Þar
nam hækkunin þó aðeins 2,1%. Öllu
skárri var þróunin á hinum svoköll-
uðu nýmörkuðum en þar hækkuðu
helstu hlutabréfavísitölurnar í 11 af
26 löndum. Mest var hækkunin í
Marokkó, 24%, og Pakistan, 10%.
Lækkunin
mest hér
♦♦♦
MIKIL lækkun varð á nær öllum
helstu mörkuðum heims í gær. Jeffr-
ey Immelt, forstjóri bandaríska risa-
fyrirtækisins General Electric, til-
kynnti í gær að afkoma félagsins yrði
talsvert undir spám og við það var
eins og botninn færi úr mörkuðum.
Gengi GE lækkaði um 13% í kaup-
höllinni í New York og hefur ekki
lækkað jafnmikið á einum degi frá
hruninu í október 1987, sem í dag er
þekkt sem Svarti mánudagurinn.
Samtímis jukust áhyggjur fjár-
festa af afkomu bandarískra stór-
banka á borð við Citigroup og
Merrill Lynch. Ljóst er að traust
fjárfesta á bönkunum er ekki mikið
en því hefur oft verið haldið fram að
öldurnar á fjármálamörkuðum lægi
ekki fyrr en alveg liggur ljóst fyrir
að öll kurl séu komin til grafar hvað
varðar lánaafskriftir stórbanka
heimsins.
Mikil
lækkun
vegna GE