Morgunblaðið - 12.04.2008, Síða 22
|laugardagur|12. 4. 2008| mbl.is
daglegtlíf
Vor í lofti Sá vetur sem senn er á enda hefur
verið nokkuð óvenjulegur hér í Sandgerði.
Hann hófst með sífelldum stórviðrum, roki og
rigningum en frá jólum hefur verið snjór og
meiri snjór. Snjórinn gladdi börnin og þann hóp
manna sem á vélsleða, fjórhjól og torfæruhjól.
Þeir eru margir enda fjölgaði þessum tækjum
mikið hér í Sandgerði í vetur. Sumir hafa þeyst
um götur, tún og lóðir með tilheyrandi hljóðum
og nú er snjó hefur tekið upp má víða sjá hvern-
ig kraftmikil tækin hafa tætt upp viðkvæman
gróður. Vonandi sýna menn landinu meiri nær-
gætni næsta vetur – ef það kemur snjór.
Krepputal hefur verið áberandi að undanförnu,
alls konar kreppur eiga að vera að hellast yfir
allt og alla. Ég hef verið í sambandi við iðnaðar-
menn hér í bæ og þeir segjast ekki verða varir
við þennan ófögnuð, þvert á móti eru mikill
verkefni fram undan og sumir að bæta við
starfsmönnum. Sú var tíðin að stjórnvöld voru
sífellt að bjarga málum svo útgerðin færi ekki á
hausinn, en nú snýst allt um að bjarga bönkum
sem hafa keppst um að toppa hver annan í
glæsileik og sýndarmennsku. Vonandi fer samt
enginn á hausinn í þessari fjármálabrælu.
Bæjaryfirvöld í Sandgerði héldu íbúafund um
forvarnastefnu bæjarins. Fundurinn var hald-
inn í grunnskólanum og voru fyrirlesarar þeir
Árni Einarsson, framkvæmdastjóri fræðslu og
forvarna, og Erlingur Jónsson, forstöðumaður
Lundar. Ekki virðist vanþörf á að brýna fyrir
fólki hætturnar af miskunnarlausum heimi
fíkniefna, margir sem hafa ánetjast hafa endað
líf sitt með voveiflegum hætti. Sæmileg mæting
var á fundinum en það eru ansi margir sem
hugsa, þetta er ekki fyrir mig, en óhætt er að
fullyrða að á slíkt er ekki að treysta. Enginn
veit hver á eftir að falla í hættulegt net fíkni-
efna sem mörgum reynist erfitt að losa sig úr.
Næsti íbúafundur fjallar um skólastefnu.
Í vetur hafa staðið yfir miklar framkvæmdir
við endurbyggingu á Strandgötu að hluta, skipt
var um allar lagnir auk þess sem gatan var
færð um nokkra metra. Vel má vera að hin rysj-
ótta tíð hafi tafið verkið, en það voru margir
orðnir langþreyttir við verklok enda gatan
aðalþungaflutningagata frá höfninni. Nú fer að
sjá fyrir endann á því að gatan verði malbikuð
og hinir miklu þungaflutningar sem hafa farið
víða um bæinn færist á Strandgötuna.
Miðnesheiðin hefur lengi verið skeinuhætt þótt
ekki sé hún há. Fyrr á öldum urðu margir þar
úti, sérstaklega að vetri til. Hundurinn Brúnó,
sem er lítill heimilishundur af Chihuahua-kyni,
fór án leyfis húsbónda síns í smáferðalag og
hefur sennilega ekki ratað heim aftur á Vallar-
götuna í Sandgerði. Mikil leit var gerð að
Brúnó um bæinn og víða um Miðnesheiði og
komu þar að skólabörn, unglingasveit Sigur-
vonar og fjöldi fólks. Eftir fjóra daga fannst
Brúnó við Offiséraklúbbinn á Keflavíkur-
flugvelli. Vera má að hann hafi ætlað að komast
í ameríska stórsteik en því var ekki fyrir að
fara enda Kaninn farinn. Nú er Brúnó kominn
til síns heima og víkur ekki frá eiganda sínum,
sjálfsagt minnugur lífsreynslunnar á Miðnes-
heiðinni.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Framkvæmt Mikill léttir verður þegar fram-
kvæmdum verður lokið við Strandgötuna.
SANDGERÐI
Reynir Sveinsson fréttaritari
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Sól, sjór, sandur. Svona hljómardraumafríið í huga margra íslenskrakvenna … ef ekki væri fyrir sundfatn-aðinn sem óumflýjanlega fylgir fríi á
sólarströnd. Fæstar okkar geta státað af vaxt-
arlagi sundfatafyrirsætu og jafnefnislítil klæði
og sundföt eru oft illa til þess fallin að dylja
ólögulegri svæði. Lærapokar, slappir maga-
vöðvar, appelsínuhúð … þessum ógnvænlegu
óvinum sjálfstraustsins virðist eflast ásmegin
þegar komið er inn í mátunarklefann þar sem
skerandi birtan tekur allt annað en mjúklega á
móti nábleiku hörundi eftir langan íslenskan
vetur.
Vissulega veit hinn innri femínisti að réttu
viðbrögðin í stöðunni væru að horfa stoltur í
spegilinn, bera höfuðið hátt og gleðjast yfir
hverjum einasta rúmsentimetra. Skipulagt nið-
urrif tísku- og fegurðariðnaðarins, sem ekki
lætur frá sér eina einustu mynd nema vandlega
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Eldheit Lepel-tankinítoppur
4.600 kr., buxur 3.200 kr. Sel-
ena. Selt sem sett.
Áttundi áratugurinn Lepel-
tankinítoppur 5.600 kr., buxur
3.500 kr. Selena. Selt sem sett.
Sumarstemning
Bikinítoppur 2.490 kr,
buxur 2.490 kr.Oasis.
Fortíðarskotið Lepel-bikiní-
toppur 4.920 kr. buxur 3.500
kr. Selena. Selt sem sett.
Litríki Skrautlegt
páfuglabikiní 2.990
kr. Vero Moda.
Grænt, grænt, grænt
Bikinítoppur 1.290 kr., bux-
ur 1.290 kr. Vero Moda.
Klassískur Svartur sundbolur
er alltaf góður í laugina. Sea-
folly, 13.990 kr. Útilíf.
Fyrir skrautfuglana Lepel-
sundbolur með páfuglamynstri
7.200 kr. Selena.
Sundlaugarsæla í sól og sumri
Fyrir Bondstúlkuna Seafolly-
bikinítoppur 9.900 kr., buxur
7.590 kr. Útilíf.
fótósjoppaða, kemur hins vegar oftast í veg fyr-
ir að hugurinn nái á svo hátt plan.
Nei, sundfatakaup eru líklega nokkuð sem
flestar konur fresta í lengstu lög. Skítt með það
þó teygjan sé að mestu farin úr sundbolnum og
bikiníið hafi verið upp á sitt besta á diskó-
tímanum. Það er allt skárra en að leita að nýjum
sundfötum.
Eða hvað? Er hægt að einfalda leitina og
horfa strax fram hjá því sem ekki hentar?
Fyrsta skref í þá átt hlýtur að vera að sættast
við eigið vaxtarlag. Bæði kosti og galla. Sættast
á það að afturendinn er ef til vill örlítið mýkri en
á unglingsárunum. Að lærin eru líkast til eitt-
hvað umfangsmeiri, magavöðvarnir eilítið
slappari og brjóstin ekki jafnstinn. Við getum
líklega flestar skrifað undir að tíminn hafi haft
íþyngjandi áhrif á einhvern ofangreindra þátta.
Það er þó ekki ástæða til að forðast sundfata-
kaup – maður þarf bara að undirbúa sig andlega
og skella kannski á sig svona tveimur umferðum
eða svo af brúnkukremi enda hylur gullinn húð-
litur fjölmargar syndir.
Sundfatatískuna sjálfa skyldi svo meira hafa
til hliðsjónar, en einblína á eigið vaxtarlag af
meira raunsæi. Státarðu af hinum svokallaða
stundaglasvexti? Hví ekki að skoða sundföt í
anda kvikmyndastjarna 5. og 6. áratugarins,
kvenna á borð við Grace Kelly og Marilyn
Monroe – því það er fjölmörg sundföt í þeim
anda að finna í verslunum núna. Þær sem hafa
grannan vöxt geta svo notið þess að spóka sig á
sundfötum sem draga dám af áttunda áratugn-
um, nú eða þá sundbol í anda þess sem Keira
Kneightley skartaði nýlega í Óskarsverðlauna-
myndinni Friðþægingu, séu þær svo heppnar að
rekast á einn slíkan. Bikiníið sem Ursula Anders
klæddist er hún reis úr hafinu í Dr. No er annað
dæmi um ódauðlegan sundfatnað sem stenst
einkar vel tímans tönn.
Þær Grace Kelly, Marilyn Monroe og Ursula
Anders myndu þó líklega ekki standast fótó-
sjoppaðar kröfur samtímans, sem er kannski
bara þörf áminning um að hafa húmor fyrir
sjálfum sér, njóta sundfataleitarinnar og
gleyma öllum firrtum kröfum um fullkomnun.
Gott í sumarsportið
Hvítt Speedo-bikiní
7.990 kr. Útilíf.
úr bæjarlífinu