Morgunblaðið - 12.04.2008, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ARRG!
ÉG FÉKK
TAK Í
BAKIÐ
SETTU UPP
ÞENNAN SVIP
AFTUR!
ÞEGAR MAÐUR GENGUR
FRAMHJÁ HUNDI Á
MORGNANA ÆTTI MAÐUR
ALLTAF AÐ KLAPPA HONUM...
ÞAÐ ER GÓÐ LEIÐ TIL AÐ
BYRJA DAGINN...
ÞAÐ ER
GOTT AÐ
VITA AÐ ÉG
ER AÐ
HJÁLPA
FÓLKI
ROSALEGA VAR MAMMA
ÞÍN GLÖÐ Í MORGUN
HMPH
ÉG HEF ALDREI ÁÐUR
SÉÐ HANA SYNGJA OG
DANSA Á MEÐAN HÚN BÝR
TIL MORGUNMATINN
HMPH
HVAÐ ERUM VIÐ
BÚNIR AÐ BÍÐA
HÉRNA LENGI?
TVO OG
HÁLFAN
TÍMA
ÉG ER VISS
UM AÐ HÚN
SENDI MIG
SVONA
SNEMMA ÚT
VILJANDI
VIÐ VORUM AÐ VELTA ÞVÍ
FYRIR OKKUR HVORT VIÐ GÆTUM
EKKI BREYTT REGLUNNI,
„SIGUR EÐA DAUÐI“...
VIÐ ERU HRIFNIR AF,
„SIGUR EÐA
SAMNINGAVIÐRÆÐUR“
AF
HVERJU ERTU
EKKI MEÐ ÓL?
HVAÐ GET ÉG
SAGT? ÉG ER
VILLIDÝR
ERTU STRAX FARINN Í
VINNUNA? ÉG SÁ ÞIG
EKKERT Í GÆRKVÖLDI
JÁ, ÉG ÞURFTI
AÐ VINNA
FRAM EFTIR
HVENÆR
KOMSTU EIGIN-
LEGA HEIM?
ÉG ER
HRÆDD UM
AÐ ÞÚ VINNIR
ALLT OF
MIKIÐ!
ÉG HELD AÐ
ÉG VINNI
EKKERT MEIRA
EN ANNAÐ
FÓLK SEM
REKUR
SITT EIGIÐ
FYRIRTÆKI
FYRIR
SVONA
KLUKKUTÍMA
ÞAÐ ER FRÁBÆRT AÐ VERA
MEÐ ÞÉR Í SJÓNVARPINU
ÉG SEGI ÞAÐ SAMA
UM ÞIG, JONAH
MÉR SÝNIST ÞÚ KALLA FRAM
MÍNAR BESTU HLIÐAR
DAÐRARI!
HVAÐ
FINNST ÞÉR
UM ÞAU TVÖ?
ÉG HEF
ALDREI SÉÐ
TÍGRISDÝR OG
HÁKARL BORÐA
SAMAN ÁÐUR
dagbók|velvakandi
Athugasemd
Mig langar að gera athugasemd við
grein í Velvakanda sem birtist mið-
vikudaginn 9. apríl, þar sem fjallað
var um siðlausar vöruhækkanir. Mig
langar að benda á, að það er ekki
allskostar rétt að verið sé að hækka
gamlan lager, því lagerinn er yf-
irleitt ekki staðgreiddur og því ekki
endilega búið að borga fyrir vörurn-
ar sem eru til sölu. Yfirleitt eru allar
vörur í verslununum keyptar inn
með þriggja mánaða víxli. Mér þykir
það miður að öll umræðan gangi út á
að kaupmenn séu glæpamenn sem
reyni bara að plata fólk. Þetta er
umræða á lágu plani sem fólk ætti að
vara sig á, en það er að sjálfsögðu
gott að fylgjast með verðhækkunum.
Fyrrverandi sölumaður.
Inneignarnóta frá IKEA
tapaðist
Inneignarnóta frá IKEA tapaðist,
einhvers staðar í kringum Smára-
torg. Ef það vill svo heppilega til að
einhver hefur fundið hana þá er sá
eða sú beðin að hafa samband í síma
897 9678. Fundarlaun í boði (það er
kennitala á nótunni).
Guðný.
Gíslataka vörubifreiðastjóra
Í grein Morgunblaðinu 10. apríl seg-
ir vörubílstjóri: „Mótmæli vöru-
bifreiðastjóra og almennings“. Það
eru ekki mótmæli almennings þegar
hann er króaður af þannig að hann
kemst hvorki lönd né strönd, heldur
er það gíslataka af hálfu vöru-
bifreiðastjóra. Í greininni eru kröfur
bílstjóranna og er aðalkrafa þeirra,
að þeir megi óáreittir aka þangað til
þeir missa ráð og rænu vegna of-
þreytu, en ella að þeir fái hvíldarað-
stöðu þar sem þeir vilja. Ég styð
ekki þessar kröfur. Ég vil engar
margra tonna bifreiðar á vegi lands-
ins, sem stjórnað er af úrvinda öku-
mönnum. Og almenningur á ekki að
kosta hvíldarbílastæði fyrir þá á
stöðum, þar sem þeim dettur í hug
að stöðva eða verða að stöðva þegar
aksturstíminn er úti. Mennirnir
verða að skipuleggja sinn akstur
með tilliti til aðstæðna, stöðva þar
sem leyfilegt er og aka á tímum þeg-
ar opið er, en ella að koma sér upp
aðstöðu í bifreiðunum til að bjarga
sínum líkamsmálum. Aðrar kröfur
þeirra eru tilgreindar í greininni
sem eins konar fylgikröfur, enda eru
þær í eðli sínu útgjöld sem ekki
lenda á bifreiðastjórunum sjálfum,
s.s. lækkun kostnaðar vegna olíu og
bensíns, niðurfelling þungaskatts,
allt útgjöld sem bílstjórarnir and-
stætt almenningi geta dregið frá
tekjum sínum sem kostnað við að
afla teknanna. Ég styð ekki kröfur
þessara manna né hegðun þeirra og
skora á lögregluna að sinna skyldum
sínum, að halda uppi lögum og reglu
og kæra brotamennina fyrir af-
brotin. Atferli lögreglunnar hingað
til er óskiljanlegt. Hún hefur litið
framhjá þessum afbrotum og spjall-
að við brotamennina og gefið í nefið,
en fyrir aftan þá sitja hundruð
manna eða fleiri í gíslingu, og svo
sektar hún aðra ökumenn fyrir ólög-
lega lagningu ökutækja, sem standa
við hlið bifreiða vörubílstjóranna,
sem einnig hafa lagt ólöglega og á
veginum og hindrað með því allan
akstur. Löggæsla þessi er óskilj-
anleg.
Gunnar Stefánsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
FRAMKVÆMDIR eru að nýju hafnar á Reykjanesbrautinni eftir nokkurra
mánaða hlé. Þar vinnur verktakafyrirtækið Eykt að því að byggja brú við
Innri Njarðvík skammt frá höfuðstöðvum Kaffitárs.
Morgunblaðið/Arnór
Við Reykjanesbrautina
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn
AFLs Starfsgreinafélags á Austur-
landi:
„Á stjórnarfundi AFLs Starfs-
greinafélags var samþykkt eftir-
farandi ályktun um stöðu kjara-
mála í ljósi verðhækkana og
gengisfalls íslensku krónunnar að
undanförnu. Á fundi framkvæmda-
stjórnar Starfsgreinasambands Ís-
lands sem boðaður hefur verið 15.
apríl nk. verður samþykkt þessi
lögð fyrir og hvatt til að sambandið
undirbúi aðgerðir til að knýja á um
aðgerðir til að verja kaupmátt
launa.
„Stjórn AFLs Starfsgreinafélags
telur nýgerðum kjarasamningum
stefnt í hættu með verðhækkunum
sem dynja á landsmönnum þessa
dagana. Verði ekki gripið tafalaust
til aðgerða til verndar kaupmætti
launafólks áskilur félagið sér rétt
til þeirra aðgerða sem nauðsynlega
kunna að teljast til að verja árang-
ur kjarasamninga. Ennfremur
áréttar félagið að ekki er tímabært
að ganga frá kjarasamningum fyrir
aðra starfshópa en þegar er samið
fyrir.
Stjórn AFLs lýsir yfir stuðningi
við bílstjóra sem mótmælt hafa
verðhækkunum á eldsneyti og
álögum á bifreiðar síðustu daga en
harmar að ástandið í þjóðfélaginu
sé orðið þannig að launafólk finni
sig knúið til að efna til mótmæla á
götum úti, nokkrum vikum eftir að
gengið var frá kjarasamningi.
AFL Starfsgreinafélag hvetur
önnur verkalýðsfélög er gengu frá
kjarasamningum í febrúar til að
undirbúa aðgerðir til að knýja á
um að þær kjarabætur sem samið
var um, haldi.““
AFL ætlar að
undirbúa aðgerðir