Morgunblaðið - 12.04.2008, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 47
Krossgáta
Lárétt | 1 mjög þykk, 8
útlimur, 9 kjánar, 10
þræta, 11 heitir á, 13
hagnaður, 15 heilnæms,
18 syrgja, 21 ílát, 22
ávöxtur, 23 tortímir, 24
úrsvöl.
Lóðrétt | 2 gagnlegur, 3
ýlfrar, 4 kös, 5 grænmet-
ið, 6 eldstæðis, 7 skjótur,
12 reið, 14 sefa, 15 hitta,
16 læsir, 17 brotsjór, 18
grikk, 19 hóp, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skjól, 4 halda, 7 rýkur, 8 ölóði, 9 Týr, 11 káma,
13 etin, 14 kaðal, 15 hopa, 17 lekt, 20 krá, 22 látún, 23
meini, 24 agnar, 25 nælan.
Lóðrétt: 1 strók, 2 jukum, 3 lært, 4 hjör, 5 ljótt, 6 afinn, 10
ýfður, 12 aka, 13 ell, 15 hylja, 16 pútan, 18 ekill, 19 teikn,
20 knýr, 21 áman.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fólk beinir sjónum sínum að þér,
sem gæti verið gott – en líka vont. Sumir
segja að öll athygli sé góð athygli. Vog
veit hvernig þú átt að snúa þér í málinu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarfnast yfirsýnar. Farðu í hug-
anum upp á fjallstindinn og horfðu niður á
líf þitt. Sjáðu hvaða verk eyðir mestu af
orku þinni, og hvað gefur þér orku.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það sem gæti ekki verið sjálf-
sagðara fyrir þér er öðrum algerlega
óskiljanlegt. Það hjálpar ekki að útskýra.
Komdu frekar til móts við fólk.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Heppnin er með þér, svo taktu
smávegis áhættu. Þú gætir tapað smá
peningum, tíma eða orku, en ef þú tekur
ekki áhættuna taparðu einhverju mun
mikilvægara.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur hjálpað einhverjum öðrum
undanfarið, og nú loks ertu að sinna því
sem er þér mikilvægt. Sól í hrúti eykur
hjá þér ákafann. Þú flýgur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ástvinir sjá þig í mjög jákvæðu
ljósi – ef þú vilt standa í því ljósi. Ákveddu
að vera öruggur, vertu með ímyndina á
hreinu, en þó ekki útreiknaða.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hluti af ástæðunni fyrir því að þú
þykir háttvísastur allra í dýrahringnum,
er sú að þú getur borið virðingu fyrir fólki
án þess að vera því sammála.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú færð leiðbeiningar frá
einhverjum sem veit hvað er að gerast.
Fylgdu þeim nákvæmlega – þær eru að-
göngumiðinn þinn að velgengni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft ekki að vera í op-
inberri sendiför til að vita hvert þú vilt
halda. Það sem gerist núna er bein afleið-
ing af hugsunum þínum um framtíðina.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það eru ósköp litlar upplýs-
ingar til um áhugasvið þitt. Nú er spuni
meira virði en rannsókn. Þú byggir á því
sem þú vilt að sé satt og það verður satt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Veittu viðbrögð. Þú hefur mik-
ið að gefa. Ef þú lætur ekki fólk vita hvað
þú ert að hugsa mun það halda að þú sért
hissa eða hneykslaður á því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Tíminn er sagður lækna öll sár.
En í raun er það hæfileiki þinn til að
gleyma smávægilegum hlutum og muna
þá mikilvægu. En það má líka gera með
einni ákvörðun.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be7 8. f3 Be6
9. De2 Rbd7 10. O–O–O Hc8 11. Kb1
Hxc3 12. bxc3 d5 13. Dd3 b5 14. Be2
dxe4 15. Dd2 Dc7 16. Kb2
Staðan kom upp á Reykjavíkur-
skákmótinu sem lauk fyrir skömmu.
Sænski stórmeistarinn Pontus Carls-
son (2501) hafði svart gegn Katerinu
Nemcovu (2342) frá Tékklandi. 16…
Rd5! 17. fxe4 Rxc3! 18. Bd3 hvítur
hefði tapað drottningunni eftir 18.
Dxc3 Ba3+. 18… O–O 19. Hdf1 Hc8
20. Hf3 Dd6! og hvítur gafst upp enda
hótar svartur Dd6–a3+ og við þeirri
hótun er ekkert viðunandi svar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Í réttum takti.
Norður
♠85
♥K852
♦ÁK84
♣D97
Vestur Austur
♠DG109642 ♠3
♥43 ♥Á1097
♦G6 ♦10975
♣63 ♣10852
Suður
♠ÁK7
♥DG6
♦D32
♣ÁKG4
Suður spilar 6G.
Vestur opnar á 3♠, norður doblar og
suður stekkur í 6G. Hvernig á að spila
með ♠D út?
Sagnhafi á 11 slagi með því að reikna
sér tvo á hjarta. Sá 12. gæti komið ef
annar rauði liturinn fellur, eða með
þvingun. Alla vega er rökrétt að spila
fyrst tvisvar að litlu hjónunum í hjarta.
Laufi er spilað á drottningu og hjarta
til baka, síðan tígli á ás og aftur hjarta.
Austur verður að dúkka í bæði skiptin.
Næsta verk sagnhafa er að kanna bet-
ur leguna. Hann tekur á ♣Á og ♦D.
Við það lýkst skiptingin upp: vestur
hefur fylgt tvisvar í öllum hliðarlitum
og á því 7222. Kastþröng liggur í loft-
inu og til að leiðrétta talninguna spilar
sagnhafi nú litlum spaða að heiman.
Þannig næst upp réttur taktur og aust-
ur mun þvingast í lokin með ♥Á og tíg-
ullengdina – ♥6 heima er annað þving-
unarspilið, en hitt er tígulhundur í
borði.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Hverjum hefur menntamálaráðherra falið að semjadrög að nýju fjölmiðlafrumvarpi?
2 Ákveðið hefur verið að kanna evruvæðingu atvinnu-lífsins. Hver er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins?
3 Hvað hét steinbærinn að Vegamótastíg 9 í Reykjavíkog rætt er um að endurreisa ofan á nýbyggingu sem
þar á að rísa?
4 Ólafur Elíasson og Bloomberg borgarstjóri New Yorkvoru í morgunþætti ABC-sjónvarpsstöðvarinnar í
fyrradag. Hvað heitir þátturinn?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Hver er formaður skipulagsráðs Reykjavíkur. Svar: Hanna Birna
Kristjánsdóttir. 2. Íslenskur matreiðslumeistari sigraði í al-
þjóðlegri matreiðslukeppni í Tartastan. Hvað heitir hann? Svar:
Þráinn Freyr Vigfússon. 3. Kynntar hafa verið tillögur að óperuhúsi
í Kópavogi. Hver óperustjórinn? Svar: Stefán Baldursson. 4. Tíu
sækja um embætti vegamálastjóra. Hver er fráfarandi vega-
málastjóri? Svar: Jón Rögnvaldsson.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
MÁLSTOFA verður haldin í LbhÍ,
Ársal, Hvanneyri, 17. apríl kl. 13.
Erindi flytja dr. William J. Mitsch,
dr. Anthony Fox, dr. Edward
Huijbens og Hlynur Óskarsson. Er-
indi verða flutt á ensku.
William J. Mitsch er prófessor við
Ohio State University og höfundur
fjölda bóka og greina um votlendi og
er á meðal virtustu fræðimanna á
sínu sviði, segir í tilkynningu.
Anthony Fox er prófessor í votlend-
isvistfræði við The National Envir-
onmental Research Institue í Dan-
mörku. Hann hefur um árabil
stundað rannsóknir á blesgæsum á
Hvanneyrarsvæðinu.
Edward Huijbens er for-
stöðumaður Ferðamálaseturs Ís-
lands og hefur, ásamt Gísla Pálssyni
mannfræðingi, unnið að rann-
sóknum á breytingum í viðhorfum til
votlendis. Hlynur Óskarsson er sér-
fræðingur í votlendisvistfræði við
Landbúnaðarháskóla Íslands. Ágúst
Sigurðsson rektor setur málstofuna.
Málstofa um
vægi votlendis
„STUBBASMIÐJAN er ný og hug-
myndarík verslun sem verður opn-
uð í dag í Holtagörðum,“ segir Íris
Magnúsdóttir, markaðs- og vöru-
stjóri hinnar nýju verslunar. Fjórar
konur eru við stjórnvölinn. Eig-
endur og framkvæmdastjórar eru
Helena Guðrún Bjarnadóttir og
Nanna Kristín Magnúsdóttir leik-
kona.
Margrét Elín Þórðardóttir er
verslunarstjóri. Þess má geta að
Stubbasmiðjan deilir húsnæði með
Eymundsson, Habitat og Te & kaffi,
þeir síðastnefndu reka barnvænt
kaffihús.Verslunin er sérstök og til-
einkuð börnum, unglingum, for-
eldrum og verðandi mæðrum og er
megináherslan lögð á vandaðar og
litríkar vörur. Þrettán fullbúin sýn-
ingaherbergi prýða verslunina auk
þess sem sérstakar þemahelgar
verða haldnar reglulega.
„Stubbasmiðjan leggur áherslu á
alhliða lausnir í barnaherbergi. Í
Stubbasmiðjunni verður allt á ein-
um stað en meðal vöruflokka má
finna húsgögn, smávöru, kerrur,
vagna, fatnað, óléttufatnað og
margt fleira.
Í versluninni eru þrettán her-
bergi sem gefa viðskiptavinum hin-
ar ýmsu hugmyndir að hönnun
barnaherbergja fyrir hressa stubba
á öllum aldri.
Vörurnar eru valdar með tilliti til
þess að þær hafi aldrei fengist áður
á Íslandi, séu vandaðar, litríkar og
öðruvísi, þær eru að mestu inn-
fluttar en einnig verður Stubba-
smiðjan með sérhönnuð húsgögn og
vörulínur sem framleiddar verða
bæði hér heima og erlendis.
Margar vörurnar eru hand-
gerðar og unnar úr vistvænum og
endurunnum efnum.
Stubbasmiðjan hefur m.a. fengið
hinar vinsælu Bugaboo-kerrur til
sölu og hefur umboð fyrir þær hér
á landi, en þær hafa notið mikilla
vinsælda erlendis,“ segir Íris.
Stubbasmiðjan opnuð í dag
Stubbakonur F.v. Íris, Helena, Nanna Kristín og Margrét.