Morgunblaðið - 12.04.2008, Page 52
52 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA eru sjö nýjar myndir. Sex þeirra
eru hefðbundin málverk, en svo er ég með
eina stóra mynd sem ég ætla að selja í pört-
um,“ segir Vilhelm Anton Jónsson, Villi
Naglbítur, sem opnar málverkasýningu á
Sólon í Bankastrætinu í dag. „Þetta virkar
þannig að þú kemur inn og velur þér hluta
úr myndinni. Þá fer ég, eða aðstoðarmaður
minn ef ég finn einn slíkan, og merki með
rauðu garni og títuprjónum bútinn sem þú
pantar. Þú ræður alveg hvað parturinn er
stór, hann má vera 20 x 30, 60 x 100 eða
hvað sem er. Síðasta daginn sem sýningin
hangir uppi tek ég svo myndina niður og
sker hana í parta,“ segir Villi. Þar með er
þó ekki öll sagan sögð. „Ef þú ert búinn að
merkja þér reit, en einhver annar vill kaupa
eitthvað sem skarast við þinn reit, getur
hann keypt þig út en verður að borga 50%
hærra verð en þú. Þannig að þetta er bara
eins og fasteignamarkaðurinn, þetta er bara
miðborgin og þess vegna er ekkert alltof
mikið verið að spá í heildarmyndina heldur
bara hvern og einn bút,“ útskýrir Villi.
Hver fersentimetri í myndinni mun kosta
á bilinu 20 til 30 krónur, en hún er um 160 x
250 senimetrar og því um 40.000 fersenti-
metrar. Hægt er að kaupa alla myndina í
einu lagi, en að sögn Villa mun það þó kosta
meira en 800.000 til 1.200.000 kr. „Það verð-
ur svakalega dýrt,“ segir myndlistarmað-
urinn sem hefur sett enn frekari reglur um
það hvernig kaupin á eyrinni eigi að ganga
fyrir sig. „Ég hef gaman af því að flækja
einfalda hluti og einfalda flókna, og þetta
eru svo mikil lóðaviðskipti og kauphall-
arpælingar sem ég er búinn að fella inn í
þetta verk. En málið er að það verður
ákveðið lágmarksverð á hvern fersenti-
metra, en þú ræður hvað þú borgar mikið.
Ef þú til dæmis borgar lágmarksverð er
kannski dálítið ódýrt að kaupa þig út, bara
50% í viðbót. Þannig að þú ræður hvað þú
borgar mikið til þess að tryggja þér bútinn,“
útskýrir Villi með hávísindalegum hætti.
Hvað myndefnið varðar segir hann það
margþætt. „Ég geri mikið af kössum, og svo
er þetta bæði fólk, hús, litir og bílar. Þannig
að myndin er mjög litrík.“
Var krossfestur
Þetta er fimmta einkasýning Villa sem
hefur ekki hlotið neina menntun í myndlist –
ekki frekar en í tónlistinni. „Ég er bara
sjálfmenntaður. Ég ætlaði alltaf að vinna við
þetta því ég var svo mikið að mála þegar ég
var lítill. En svo fór ég upp á svið með raf-
magnsgítar og komst að því að það var stuð
í því líka. Mér finnst mjög gaman að skapa
og þetta er fínt með ef maður fær leið á
músíkinni, og öfugt.“
En ætlar Villi að reyna fyrir sér í enn
fleiri listgreinum? Til dæmis leiklistinni?
„Ég væri alveg til í að prófa að leika. Ég hef
einu sinni gert það, í menntaskóla, og ég
fékk alveg skelfilega gagnrýni fyrir. Ég var
hreinlega krossfestur. Þannig að síðan þá
hef ég bara leikið sjálfan mig í barnaefni
með Sveppa, sem var reyndar mjög fínt. En
ef einhver er að gera bíómynd langar mig
að prófa það.“
Sýning Villa verður opnuð kl. 17 í dag,
léttar veitingar verða í boði og allir eru vel-
komnir. Sýningin stendur í einn mánuð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flókinn „Ég hef gaman af því að flækja einfalda hluti og einfalda flókna,“ segir Villi.
Parta-
sala Villa
Vilhelm Anton Jónsson
opnar afar sérstæða
sýningu á Sólon í dag