Morgunblaðið - 12.04.2008, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 53
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
FYRSTA frumsýningin á stóra sviði
Borgarleikhússins í haust verður á
gamanleiknum Fló á skinni, sem
sýndur hefur verið fyrir fullu húsi
hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur.
Leikfélag Reykjavíkur hefur keypt
sýninguna með manni og mús af
LA.
Magnús Geir Þórðarson, leik-
hússtjóri LA síðustu fjögur ár, er
nýráðinn leikhússtjóri LR og auk
þess að hafa samið við sitt gamla fé-
lag um kaup á Fló á skinni hefur
hann gengið frá fastráðningu fjög-
urra nýrra leikara. Þar af eru þrír
máttarstólpar Leikfélags Akureyr-
ar í vetur; Guðjón Davíð Karlsson,
Hallgrímur Ólafsson og Kristín
Þóra Haraldsdóttir. Þá hefur Þröst-
ur Leó Gunnarsson verið ráðinn í
fast starf í Borgarleikhúsinu, en
hann hefur verið starfsmaður Þjóð-
leikhússins síðustu ár. Þröstur Leó
lék í verkinu Ökutímum á Akureyri
í vetur.
Magnús Geir sagði við Morgun-
blaðið í gær að fjöldi áskorana
hefði borist um að Fló á skinni yrði
tekin til sýninga í Reykjavík og sér
hefði þótt upplagt að verða við
þeim óskum. Þrír úr sýningunni
hafa verið fastráðnir hjá LR sem
fyrr segir en „allt útlit er fyrir að
aðrir úr leikhópi Flóarinnar sjáist í
fleiri verkum í Borgarleikhúsinu,“
segir leikhússtjórinn.
Fló á skinni var frumsýnd 8. febr-
úar á Akureyri. Verkið hefur verið
sýnt sex sinnum í viku síðan og allt-
af verið uppselt. Síðustu sýningar á
Akureyri verða í lok apríl, þá verða
um 70 sýningar afstaðnar og gest-
irnir um 15.000. Fló á skinni verður
þá orðin aðsóknarmesta sýning á
Akureyri frá upphafi en þess má
geta til gamans að íbúar Akureyrar
eru um 17.000. Vinsælasta sýning
LA frá upphafi að meðtöldum sýn-
ingum í Reykjavík er Fullkomið
brúðkaup, veturinn 2005-2006, og
gera má ráð fyrir því að Fló á
skinni slái það aðsóknarmet með
sýningum í Reykjavík.
Magnús Geir segir að kaup LR á
sýningunni tryggi LA umtalsverðar
tekjur á næsta leikári og vonast
hann til þess að samningurinn sé
upphafið að nánu og góðu samstarfi
félaganna tveggja á næstu árum.
Fló á skinni var áratugum saman
vinsælasta sýning Leikfélags
Reykjavíkur frá upphafi en verkið
sló rækilega í gegn árið 1972 og var
þá sýnt í fjögur ár.
Flóin með Magnúsi í Borgarleikhúsið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vinsældir Fló á skinni hefur verið sýnd fyrir fullu húsi hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar í vetur og verður sett á svið í Borgarleikhúsinu í haust.
Hallgrímur
Ólafsson
Kristín Þóra
Haraldsdóttir
Guðjón Davíð
Karlsson
Þröstur Leó
Gunnarsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leikhússtjórinn Magnús Geir tek-
ur Flóna með sér til Reykjavíkur.
Þröstur Leó, Guðjón Davíð, Hallgrímur og Kristín hafa verið fastráðin hjá Leikfélagi Reykjavíkur