Morgunblaðið - 12.04.2008, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 55
Baðstofan e. Hugleik Dagsson
Sá ljóti e. Marius von Mayenburg
Hrá sýning á
hárbeittu verki
Einstök leikhúsreynsla
fyrir öll skynfæri
Vígaguðinne. Yasminu Reza
Bráðfyndið og
óvægið gamanleikrit
Vor á minni sviðunum
leikhústilboð aðeins 2.500 kr.
Miðaverð á
Smíðaverkstæðinu og í
Kassanum í apríl og maí er
aðeins 2.500 kr. (fullt verð 3.100).
Athugið að ekki er hægt að bóka
tilboðsmiða á netinu.
Miðasala í síma 551 1200
og á leikhusid.is
SIGRÍÐUR Bein-
teinsdóttir, eða
Sigga Beinteins,
segir mikilvægt
að vera eins af-
slappaður og
hægt er og reyna
að ná til áheyr-
enda. Hún segist
fara í heitt bað á
tónleikadegi og
reyna að slaka
sem mest á og
hvíla raddböndin og drekka mikið
vatn. Sigga þekkir vel til söng-
keppna sem fyrrverandi Idol-
dómari og segir helstu mistök
keppenda þau að slaka ekki á og
gefa ekki nóg af sér. Framkoma,
klæðaburður og söngur verði allt
að spila saman.
„Þú verður náttúrulega að
syngja hreint og gera eins vel og
hægt er að gera, vera skýrmæltur í
textum,“ segir Sigga. Spurð að því
hvort einhver lög séu á bannlista
hjá henni segir hún svo ekki vera,
allt snúist um meðferð söngvara á
lögunum.
– Hvað gerir söngvara góðan?
„Æfingin,“ svarar Sigga um-
hugsunarlaust. Og hvað má alls
ekki segja við einhvern sem er á
leið á svið að syngja? „Þú ert glat-
aður,“ segir Sigga og skellihlær.
Æfingin
skapar
meistarann
„AÐ útiloka allt,
alla hluti, dæg-
urþras, vini,
vandamenn og
hugsanir, þetta
þarf að útiloka.
Það eina sem
skiptir máli er
þetta augnablik,
að fara á sviðið,“
svarar Bubbi
Morthens þegar hann er spurður að
því hvernig keppendur eigi að und-
irbúa sig áður en þeir fara á svið.
„Óttinn er eins og eldur og ef þú
stjórnar ekki óttanum þá brennur
þú upp til agna. Þú þarft að taka
þennan ótta og ná tökum á honum,“
segir Bubbi. Óttinn sé engu að síður
nauðsynlegur, hvort sem hann heiti
kvíði eða stress. Þá sé gott að loka
sig af og syngja lagið nokkrum
sinnum í hálfum hljóðum. Einnig
skipti gífurlegu máli að laumast á
sviðið og ganga aðeins um það og á
staðinn sem maður komi til með að
syngja á.
Allt snýst á endanum um einbeit-
ingu og undirbúning að sögn
Bubba. „Síðan er gott ráð, ef maður
er þurr í munninum, að bíta þétt-
ingsfast í jaðarinn á tungunni, þá
fyllist munnurinn af munnvatni.“
Bubbi segist alltaf fara í gufubað
fyrir tónleika og borða lítið, nokkur
vínber og ögn af banana, og gos-
drykkja er stranglega bönnuð. Í
keppni eigi söngvarinn að útiloka
hina keppendurna algjörlega.
„Síðan skiptir máli að fara með
sjálfhverfa möntru sem byggist á
að þú sért góður, endurtaka hana
mjög oft.“ Spurður að því hvort
hann sé leiður á ákveðnum lögum í
söngkeppnum svarar Bubbi því ját-
andi. Hann fái t.d. „viðbjóðslegan
hroll“ þegar hann heyri „Ég veit að
þú kemur“ með Trúbroti.
Laumast
inn á svið
Bubbi Morthens
GEIR Ólafsson er fullur heilræða
enda sjóaður söngvari. Hvað ráð-
leggur hann keppanda í Söng-
keppni framhaldsskólanna? „Að
hugsa um hverja einustu nótu,
þekkja lögin algjörlega eins og
lagahöfundur samdi þau og út frá
því gera þau að sínum. Svo nátt-
úrulega að syngja opið og leyfa
röddinni að fljóta
þar sem á við og
vera rólegur,
anda og passa sig
að yfirspennast
ekki,“ segir Geir.
Ef menn byrji vel
þá verði fram-
haldið gott. Einn-
ig verði kepp-
endur að hafa
gaman af því að
syngja, eins og gefur að skilja.
Aðalatriðið er að hafa vald á
röddinni og laginu, sviðsfram-
koman er aukaatriði og fylgir flutn-
ingnum, að sögn Geirs. „Ég geri
öndunaræfingar og næ ró inn í lík-
amann. Það er rosalega mikilvægt
þegar maður gengur inn í salinn að
maður sé á hælunum, að fara ekki
spenntur út í salinn.“ Gott sé að
hita röddina, humma svolítið. Geir
gefur tóndæmi og hummar.
„Og nota tunguna til að mála sig
svona að innan, innan munnvik-
anna, safna munnvatni og kyngja
rólega,“ segir Geir. Stemning sé
mikilvæg en hún megi ekki yf-
irbuga söngvarann.
Geir óskar keppendum góðs
gengis og segir mikið atriði að bera
virðingu fyrir kollegum sínum, fara
ekki til keppni með hroka. „Burt
með hrokann,“ segir Geir.
Burt með
hrokann
Geir
Ólafsson
REGÍNA Ósk
hreppti annað
sætið í Söng-
keppni fram-
haldsskólanna
árið 1996 og er
því rétta mann-
eskjan til að leita
ráða hjá. Hvað
skal gera áður
en haldið er á
svið? „Ná jarð-
tengingu, einbeitingu, ekki láta
stressið yfirtaka sig, anda inn og út
og aðalmálið er að ná innri ró. Ef
hún er ekki til staðar gleymir mað-
ur öllu,“ segir Regína. Þá sé stór-
gott að setjast niður, loka augunum
og fara yfir lagið í huganum,
syngja það orð fyrir orð og taka við
klappinu þegar gengið er af sviðinu
í huganum.
– Þetta minnir á íþróttasálfræði,
að menn eigi að sjá sig í keppni.
Regína segir þetta ráð einmitt
koma frá íþróttasálfræðingi. „Þú
átt að sjá þig koma fram,“ segir
Regína. Þá sé mikilvægt að velja
rétt lag, þ.e. lag sem hæfir rödd-
inni, og kunna lag og texta mjög
vel. En er Regína Ósk komin með
ógeð á einhverjum lögum? Hún
hugsar aðeins málið og nefnir
nokkur lög, m.a. „Zombie“ með
Cranberries. Regína segir öllu
skipta að vera maður sjálfur. Góður
söngvari sé sá sem syngi af ástríðu.
Vertu þú
sjálfur
Regína Ósk
Óskarsdóttir
Sigríður
Beinteinsdóttir
Eyþór Ingi Gunnlaugsson Sigurvegari söngkeppninnar í fyrra.
Eyþór hefur gert það gott undanfarið í Bandinu hans Bubba.
Nauðsynlegt að
stjórna óttanum
Söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin í kvöld í
Íþróttahöllinni á Akureyri og sýnd í beinni útsendingu í
Sjónvarpinu. Morgunblaðið leitaði til reyndra og þjóð-
þekktra söngvara eftir heilræðum handa keppendum og
fékk bæði gagnlegar og stórmerkilegar upplýsingar.