Morgunblaðið - 12.04.2008, Síða 56
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 103. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Mótmæla höfninni
Hópur Vestmannaeyinga, með
Magnús Kristinsson útgerðarmann í
fararbroddi, skorar á ríkisstjórnina
að hætta við fyrirhugaðar fram-
kvæmdir í Bakkafjöru. » 4
Áfrýjað til Hæstaréttar
Sýknudómi Héraðsdóms Norður-
lands vestra í nauðgunarmáli verður
áfrýjað til Hæstaréttar. » 4
Sultarhormón að verki
Hormónið ghrelin á þátt í að sjúk-
lega feitu fólki gengur afar erfiðlega
að léttast með hefðbundnum úrræð-
um, en það er talið jafnávanabind-
andi og heróín. » 12
Handtökur í Zimbabwe
Robert Mugabe, forseti Zimb-
abwe, bannaði í gær pólitískar sam-
komur í höfuðborginni Harare. Þá
var aðallögfræðingur Morgans
Tsvangirais, leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar, handtekinn í gær, að sögn
Lýðræðishreyfingarinnar. » 16
SKOÐANIR»
Staksteinar: Smitandi sambýli
Forystugreinar: Áhyggjur
almennings | Lífsgæði og
leikgleði í miðborg
UMRÆÐAN»
Vatnsmýri 102 Reykjavík
Tollar á matvörum
Hvalveiðarnar og ímynd Íslands
Al Gore og hvað svo?
Lesbók: Dansvænn Moby
Möguleikar skáldsögunnar
Börn: Skoppast og skrítlast
Yngsti leikarinn í Mannaveiðum
LESBÓK | BÖRN»
3
3# #3 3 3 3 4! "5 &!
.
+
"
6!
1
3
##3 3
3
#3 3#
3
3#
3 #3 -7
)1 &
##3 3#
#3#
3#
3 3 3
89::;<=
&>?<:=@6&AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@&7 7<D@;
@9<&7 7<D@;
&E@&7 7<D@;
&2=&&@ F<;@7=
G;A;@&7> G?@
&8<
?2<;
6?@6=&2+&=>;:;
Heitast 5 °C | Kaldast 0 °C
Norðaustan 5-10 m/s
og stöku él en hægari
vindur suðvestantil og
léttskýjað. Hiti yfirleitt
um frostmark. » 10
Þröstur Leó og þrír
leikarar frá Leik-
félagi Akureyrar
hafa verið fastráðnir
hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. » 53
LEIKLIST»
Ný andlit
hjá LR
TÓNLIST»
Kylie nær litlum vinsæld-
um vestanhafs. » 51
Fjórir landsþekktir
söngvarar gefa
keppendum í söng-
keppni framhalds-
skólanna í kvöld góð
ráð. » 55
TÓNLIST»
Góð ráð til
keppenda
FÓLK»
Pamela ætlar að heim-
sækja Bush. » 51
MYNDLIST»
Villi Naglbítur selur
parta á Sólon. » 52
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Banaslys á Suðurlandsvegi
2. Sýknaður af ákæru fyrir nauðgun
3. Ný vitni
4. Alvarleg staða efnahagsmála
Íslenska krónan veiktist um 1,3%
ÍSLENSKUR
ballettdansari,
Kári Freyr
Björnsson, dans-
ar í kvöld með
norska Þjóð-
arballettinum á
galasýningu í
nýja óperuhúsinu
í Ósló sem verður
um leið tekið
formlega í notk-
un. Þjóðhöfðingjar Norðurlandanna
verða meðal áhorfenda, þ. á m. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, og forsetafrúin Dorrit
Moussaieff.
Auk dansverka verða flutt lög úr
ýmsum óperum sem og önnur tónlist
og allt sýnt í beinni útsendingu í
norska ríkissjónvarpinu, NRK.
Óperuhúsið hannaði arkitekta-
stofan Snöhetta og þykir það afar
fagurlega hannað og glæsilegt í alla
staði og hefur m.a. verið líkt við
óperuhúsið í Sydney. | 48
Dansar
fyrir þjóð-
höfðingja
Kári Freyr
Björnsson
HAUKAR tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratit-
ilinn í N1-deild karla í handknattleik eftir 11
marka sigur gegn Fram. Þetta er í sjöunda sinn
sem Haukar fagna Íslandsmeistaratitli, sá fyrsti
kom árið 1943 og síðan liðu 57 ár þar til sá næsti
kom í safnið. Á síðustu leiktíð voru Haukar ná-
lægt því að falla úr efstu deild. Aron Kristjáns-
son stýrði liðinu í vetur og er þetta fyrsti Íslands-
meistaratitill hans sem þjálfara. | Íþróttir
Sjöundi Íslandsmeistaratitill Hauka
Hafnfirðingar fögnuðu stóra titlinum með 11 marka sigri á heimavelli
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
YFIR áttatíu af efnilegustu íshokkí-
leikmönnum beggja vegna Atlants-
ála eru komnir hingað til lands til
æfinga og keppni í Egilshöll í fjóra
daga. Þetta eru strákar á aldrinum
12-14 ára og taka tólf íslenskir leik-
menn frá þremur skautafélögum
þátt í mótinu, sem nefnist World
Selects. Í hópnum sem hér er á
ferðinni er úrval þeirra bestu í
heimi, og er hann á vegum samtaka
sem heita Selects Hockey, en und-
anfarin ár hafa um 15-20% leik-
manna úr þeirra röðum endað í
NHL-deildinni í íshokkíi. Leik-
mennirnir ungu koma úr liðum víðs-
vegar að úr heiminum, m.a. frá
Bandaríkjunum, Kanada, Tékk-
landi, Rússlandi, Svíþjóð og Finn-
landi. Í fylgd með þeim er hópur um
sextíu þjálfara og foreldra. Þeirra á
meðal eru þjálfarar sem spilað hafa
í NHL-deildinni.
„Það er mjög spennandi og
skemmtilegt fyrir strákana okkar
að fá hingað þá bestu, bæði þjálfara
og leikmenn, til að æfa með og
keppa við,“ segir Sergei Zak, yf-
irþjálfari skautafélagsins Bjarnar-
ins og landsliðsþjálfari U18-liðsins,
sem hefur haft veg og vanda af und-
irbúningi mótsins. Hann segir þetta
í fyrsta sinn sem slíkt mót sé haldið
hér á landi. „Núna gefst okkar
strákum tækifæri til að kynnast
jafnöldrum sínum í hokkíinu frá
öðrum löndum og sjá hvernig þjálf-
un þeirra fer fram. Þetta verður
ómetanleg reynsla fyrir þá.“
Allir áhugasamir eru velkomnir í
Egilshöllina til að fylgjast með æf-
ingum og leikjum drengjanna næstu
fjóra daga.
Upprennandi stjörnur á ís
Bestu ungu íshokkíleikmenn í heimi hingað komnir til
keppni og æfinga Dýrmæt reynsla fyrir íslenska leikmenn
Í HNOTSKURN
»Samtökin Selects Hockeyvoru stofnuð af barnabörnum
hins heimskunna íshokkíleik-
manns Gordie Howe árið 1996.
»Tilgangur þeirra er að veitaungum íshokkíleikmönnum
tækifæri til að keppa og æfa með
þeim bestu í heimi.
»Starfsemin fer fram víða umheim á sumrin þegar leik-
menn eru í hléi frá æfingum með
sínum liðum.
Reuters
Bestir Drengirnir munu margir
enda í NHL-deildinni.