Morgunblaðið - 22.06.2008, Síða 20

Morgunblaðið - 22.06.2008, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Alltaf góðir vinir Hera Hilmarsdóttir er fædd 27. desember 1988, dóttir Hilmars Oddssonar og Þóreyjar Sigþórsdóttur. Hera kláraði MH á þremur og hálfu ári og hef- ur síðan þá unnið hjá Zik Zak kvikmyndum. Hún hefur getið sér gott orð fyrir leik og er hvað þekktust fyrir túlkun sína á vandræðastelpunni Dísu í Veðramótum. Hera stefnir á leiklistarnám í nánustu framtíð. Hilmar Oddsson er fæddur 19. janúar 1957 í Reykjavík. Hann lauk stúdents- prófi frá og tók virkan þátt í leikfélaginu Herranótt. Hann útskrifaðist í kvikmyndaleikstjórn frá kvikmyndaskólanum í München árið 1986. Hann hefur átt farsælan feril sem leikstjóri og myndir hans hafa unnið til verð- launa bæði hér á landi og erlendis. Hilmar hefur leikstýrt, leikið, kennt kvikmyndagerð og kvikmyndaleik, samið tónlist, skrifað handrit, fjallað um kvikmyndir í fjölmiðlum og framleitt myndir auk þess sem hann hefur starfað við dagskrágerð fyrir sjónvarp. Hann er kvæntur leikkonunni Þór- eyju Sigþórsdóttur. Tengsl Feðginin Hilmar og Hera hafa bæði stundað tónlistarnám og tekið virkan þátt í leiklist. Þau eru góðir vinir og njóta þess að spila saman. Þótt störf þeirra liggi á svipuðu sviði, hafa þau aldrei unnið sam- an. Guðný Hrafnkelsdóttir talaði við þau. Hilmar Það tók Heru um það bil þrjátíu og fimm klukkustundir að koma í heiminn. Það var ekki fyrr en móður hennar var hótað keis- araskurði að eitthvað fór að gerast fyrir alvöru. Ég var fyrstur að sjá að þetta var stúlka, en það kom mér þó ekkert á óvart. Ég og móðir hennar höfðum alltaf haft það á tilfinningunni og við ræddum aldrei nein stráka- nöfn. Við vorum sammála um að gefa henni nafn sem ekki væri hægt að stytta í gælunafn og ákváðum líka að skíra hana ekki í höfuðið á neinum. Fáar stúlkur báru nafnið Hera á þessum tíma en okkur fannst það fal- legt. Seinna fengum við þá hugmynd að bæta við nafni annarrar hvorrar ömmunnar, en það datt þó fljótt upp fyrir og erum við sátt við það í dag. Hera var afskaplega lánsöm með það að hún var fyrsta barnabarn bæði foreldra minna og mömmu sinnar og fékk því mikla athygli. Það var aldrei neitt vandamál að fá pössun, því að það var slegist um hana. Hún var ákaflega glaðleg og heillandi en í senn athugul og hugsandi. Hún fékk einnig að njóta reynslu tveggja kynslóða, því hún varði miklum tíma með báðum ömmum sínum. Minni tíma varði hún með öfum sínum, en fann þó góða lausn á því. Hún átti lítið bollastell og annað slagið hélt hún teboð þar sem hún ímyndaði sér að afarnir væru komnir. Svo spjallaði hún við þá um daginn og veginn, alveg eins og þeir væru sjálfir á staðnum. Það kom snemma í ljós að hún hafði verulega frjótt ímyndunarafl. Leiklistaráhuginn var greinilegur frá unga aldri. Það leið varla sá dagur að ekki væri sett leiksýning á svið. Þegar vinkonur hennar voru í heim- sókn fengu þær að sjá leikrit og þeg- ar hún var ein heima með mér og mömmu sinni fengum við að sjá leik- rit. Eitt sumarið vorum við í sum- arbústað ásamt annarri ömmu henn- ar og fleirum. Hún ákvað að setja upp lítið leikrit sem hún hafði gert vandað handrit að og leikstýra, en fékk ömm- una og strák einn til að leika með sér. Áhorfendurnir vorum við mamma hennar, sem fengum ekkert að fylgj- ast með undirbúningnum. Efnið kom skemmtilega á óvart þegar við sáum sýninguna. Leikritið var saga um okkur mömmu hennar á okkar fyrsta stefnumóti, forsagan af því hvernig hún varð til. Handritð er enn til. Leiklistarhæfileikana hefur hún að einhverju leyti fengið frá fjölskyld- unni. Bæði er ég kvikmyndaleikstjóri og mamma hennar leikkona, en afi hennar, Oddur Björnsson, er einnig leikritaskáld. Þegar hún undirbýr sig fyrir verkefni eða inntökupróf af- þakkar hún þó alla okkar hjálp. Hún er sjálfstæð og vill komast áfram á sinni eigin getu hjálparlaust. En hún leitar ráða hjá okkur varðandi ákvarðanatökur og annað slíkt. Þá fáum við að fylgjast með. Hera hefur hæfileika á fleiri svið- um en leiklistinni. Allt nám hefur hún stundað af kappi, án þess að við höf- um þurft að reka á eftir henni. Hún hóf snemma tónlistarnám, lærði á selló eins og pabbi hennar. Hún er föðurbetrungur í öllu námi, og var bæði lengur í tónlistarnámi og náði meiri færni en ég. Við spiluðum mikið saman þegar hún var lítil, á píanó og selló og áttum saman góðar stundir. Það var svo þegar hún var á fimm- tánda eða sextánda ári að ég sá að hún hafði verulega hæfileika sem leikkona og enn fremur, þá hafði hún ástríðu á leiklistinni. Við mamma hennar höfðum ekki ýtt henni á þessa braut og satt best að segja þá hafði ég bundið vonir við að hún yrði tónlist- armaður. Hún hafði þó tekið þá ákvörðun að sellóið væri frekar áhugamál og ætlaði sér aldrei að hafa tónlistina að atvinnu. Hún var lík mér í útliti þegar hún var lítil, þó svo að hún sé frekar blanda af mér og mömmu sinni í dag. Það er gaman að sjá myndir af okkur saman frá því að hún er yngri, því ekki aðeins vorum við nauðalík held- ur vorum við fyrir tilviljun oftar en ekki í sömu stellingunni og með sama svipinn. Við getum bæði verið voða- lega þrjósk og smámunasöm á sum- um sviðum. Mamma hennar segir það svo bæta gráu ofan á svart að við séum bæði steingeitur. Við erum bæði erfiðari viðureignar en við virk- um útá við. Hins vegar hefur hún erft já- kvæðni og áræðni frá móður sinni. Hún hefur líka aga og kjark og er bjartsýn. Hera hefur mikla persónutöfra og getur verið allra kvenna skemmtileg- ust. Kostir hennar eru hversu hug- rökk og hlý hún er. Hún er líka dug- leg og samviskusöm við allt sem hún tekur sér fyrir hendur. Ef ég ætti að nefna einhverja galla, kemur her- bergið hennar fyrst í huga. Orð fá því varla lýst, hvernig ástandið er þar inni, en ég vona bara að það lagist með aldrinum. Einnig væri hægt að nefna það að hún getur verið barns- lega viðkvæm, sem getur þó stundum verið sjarmerandi, en til þess að ná langt í þessum bransa þarf maður að sýna hörku og rækta töffarann í sér. Börn leikara og annarra úr brans- anum njóta þess að þau hafa ákveðna innsýn inn í þennan heim. Þau vita að starf leikara er ekki bara einhver leikur heldur alvöru vinna og þau eiga því síður á hættu að verða fyrir vonbrigðum þegar þau byrja að starfa sem slíkir. Því miður er það oft svo að nýútskrifaðir leikarar verða fyrir vonbrigðum þegar þeir eru byrj- aðir að vinna, enda er námstíminn tími bjartsýni og stórra drauma. Þeir hafa þá ekki áttað sig á því hvað þeir eru að fara út í. Hera hefur alltaf tekinn virkan þátt í félagslífi með skóla. Auk tónlist- arnámsins fór hún beint í leikfélagið í MH. Hún er mikil félagsvera en hef- ur þó líka mikla þörf fyrir að vera ein og fá að vera í friði. Hún á stundum til að taka of mikið af verkefnum að sér en hún leysir þau þó yfirleitt öll vel af hendi. „Hún er föðurbetrungur hvað allt nám varðar og hún var bæði lengur í tón- listarnámi og náði meiri færni en ég.“ en ég held nú að það sé kannski ekki beint sökum þessarar ástæðu. Þetta hafði ekki slík áhrif á vinskapinn, enda vorum við voðalega litlar. Ég fékk snemma áhuga á leiklist. Mamma var með ýmis leiklist- arnámskeið í Kramhúsinu var ég oft- ar en ekki á þessum námskeiðum á meðan hún kenndi. Ég held að það hafi verið auðveldara en að finna pössun fyrir mig. Ég var líka dugleg við að setja upp alls konar sýningar, bæði í skólanum og heima. Ég hafði mikla þörf fyrir að setja upp atriði við hin ýmsu tækifæri, þó svo að ég hafi verið frekar feimin annars. Um dag- inn kom maður að tali við mig og hélt því fram að hefði verið frekt barn.Það getur vafalaust verið. Ég hafði vissu- lega skoðanir á hlutunum. Foreldrar mínir ýttu mér ekki út í leiklist. Ég held að pabbi hafi kannski frekað viljað að ég hefði tónlist að at- vinnu. Hann átti það þó til að koma með aðrar uppástungur, þó að það hafi nú ekki gerst oft. Ég man þegar ég tilkynnti honum að ég væri búin að ákveða að fara í MH á málabraut, þá nefndi hann að það nám gæti nýst mér ef ég ætlaði mér að fara út í ferðabransann eða eitthvað slíkt. Ég jánkaði bara við þeirri uppástungu, vildi ekkert ræða hlutina um of. Ég talaði ekki mikið um leiklist- aráhugann heima. Ég vildi frekar sýna í verki hvert ég stefndi og þau sáu það líka á endanum. Ég og pabbi höfum alltaf haft gam- an af því að spila saman. Við spil- uðum oft á gítar og píanó saman og sungum Bítlalögin. Annað slagið fékk mamma meira að segja að vera með. Þá vorum við nokkurs konar fjöl- skylduhljómsveit. Við höfum alltaf verið góðir vinir. Hera Ég man fyrst eftir mér þegar ég var smábarn. Ég lá ofan á einhverju borði og við hliðina á mér var æskuvinkona mín, Ingibjörg, sem var á svipuðum aldri. Ég átti bangsa sem hét Hilmar Bangsi, af því að pabbi hafði gefi mér hann, og af ein- hverjum ástæðum stóð fullorðna fólkið yfir okkur og var að reyna að láta Ingibjörgu leika sér með bangs- ann. Ég var ekki byrjuð að tala á þessum tíma, svo ég gat ekki mót- mælt almennilega, en ég man að ég var síður en svo sátt við að Ingibjörg væri með bangsann minn. Ég og Ingibjörg hittumst ekki mikið í dag,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.