Morgunblaðið - 22.06.2008, Side 32
32 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Langamýri 28 - Garðabær
Opið hús nk. mánudag milli kl. 18 og 19
BORGARTÚN 29
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
REYNIR BJÖRNSSON
ELÍAS HARALDSSON
LÖGG. FASTEIGNASALAR
Nýtt í sölu.
Frábærlega staðsett
3ja herbergja 85,3 fm
endaíbúð á 2. hæð
(efstu) með sér inngangi
og bílskúr. Parket á
gólfum og þvottahús
innan íbúðar með glugga og stóru geymslulofti. Stofa og borðstofa bjartar
með útgangi út á stórar svalir. Verð 31 millj.
Sigríður býður gesti velkomna mánudaginn 23. júní nk. frá kl. 18-19.
Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI
OPIÐ HÚS
Leifsgata 6
Mikið endurnýjuð, björt og glæsileg 90 fm 4ra herbergja íbúð á 1. hæð
ásamt sérmerktu bílastæði á lóðinni. Verð 27,9 m. Áhvílandi ca 12 millj
lán frá ÍLS með 4,15% vöxtum.
Rúnar og Vilborg taka á móti gestum
í dag, sunnudag, milli kl. 13 og 15
og á morgun, mánudag 23. júní, milli kl. 20 og 21.
Þing
RE/MAX Þing - Háholt 13-15 - 270 Mosfellsbær - Sími: 4123300 - www.remax.is
Bergur
Steingrímsson
Lögg. Fsteignasali.
bergurst@remax.is
Fyrirtæki í ferðaþjónustu
til sölu
Er með hópferðabíla
í eigin húsnæði.
Til greina kemur að selja þetta í
sitthvoru lagi.
Ársvelta 2007 um 60 milljónir.
Uppl. hjá REMAX Þing
Garðar
Skarphéðinsson
Sölufulltrúi
893 0082
gs@remax.is
AFSTAÐA Íslend-
inga til aðildar að Evr-
ópusambandinu hefur
lengi verið til umræðu.
Þjóðin er ánægð með
reynsluna af samn-
ingnum um Evrópska
Efnahagssvæðið, eins
og með reynsluna af
EFTA og frjálsum við-
skiptum yfirleitt.
Margir hafa talið æskilegt að
leita eftir aðildarsamningi Íslands
að ESB. Vegna verðbólgu og óstöð-
ugleika í efnahagsmálum hafa menn
þó talið að Íslendingar
verði fyrst að taka til
heima hjá sér og taka
síðan ákvörðun í styrk-
leika um aðild-
arumsókn að ESB.
Þetta aðstöðumat
byggðist á því að menn
hafa talið að aðrar að-
stæður breyttust ekki
þeim mun meira á
verri veg fyrir hags-
muni Íslendinga. Menn
miða við íslenska hags-
muni og framtíðarheill.
Þróunin á síðustu mánuðum hef-
ur gerbreytt öllum aðstæðum. For-
ystumenn í íslensku atvinnulífi lýsa
vantrausti á íslensku krónuna og á
íslenska peningamálastjórn. Samtök
launamanna virðast á sama máli.
Ráðandi fyrirtæki, meðal annars í
fjármálakerfinu, búast til brottfarar
af landinu með mikilvæga þætti
starfsemi og stjórnunar eða hafa
þegar gert slíkar ráðstafanir.
Við þetta bætist uppnám í fjár-
málum erlendis sem skellur á Ís-
lendingum við verstu aðstæður.
Verðbólgan er farin úr böndum og
gengi íslensku krónunnar hríðfellur.
Ríkisstjórnin virðist ekki einu sinni
megna að skýra framvinduna fyrir
sjálfri sér, hvað þá fyrir almenningi.
Nútímaviðskiptalíf, fjármálakerfi
og gjaldeyrismál byggjast á víð-
tæku gagnkvæmu trausti. Þær að-
stæður sem hér hafa myndast eru
andstæða þess umhverfis sem nauð-
synlegt er. Engar líkur eru til þess
að þetta lagist af sjálfu sér, og engir
atburðir benda til þess að unnið sé
að því að endurvekja eðlilegt traust
til langframa – eða að slík viðleitni
dugi.
Þegar svona er komið málum
verða menn að meta stöðu og horfur
upp á nýtt. Ekki er eftir neinum
,,styrkleika“ að bíða ef framundan
er vaxandi vantrú og erfiðleikar.
Ábyrgir þjóðhollir menn sjá að
frestun, töf og biðleikir vinna gegn
hagsmunum þjóðarinnar.
Hugmyndir um einhverja aðra
erlenda gjaldmiðla en evru eru
óraunhæfar. Og aðildarumsókn að
ESB er langtímastefna en ekki
skyndiviðbragð við skamm-
tímavanda.
Samningar um aðildarumsókn að
ESB taka drjúgan tíma, og ekki
verður fullyrt fyrirfram um árang-
ur. Og þjóðin á síðasta orðið.
Íslenskir hagsmunir og framtíðarheill
Jón Sigurðsson
skrifar um
Evrópumál
Jón Sigurðsson
» Þegar svona er kom-
ið málum verða
menn að meta stöðu og
horfur upp á nýtt. Ekki
er eftir neinum ,,styrk-
leika“ að bíða.
Höf. er fv. formaður
Framsóknarflokksins
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Í NÓVEMBER 2007
auglýsti Velferðarsvið
Reykjavíkurborgar í
samstarfi við félags-
málaráðuneytið (nú fé-
lags- og trygginga-
málaráðuneytið) eftir
samstarfsaðilum til að
reka búsetuúrræði með félagslegum
stuðningi fyrir allt að 20 einstaklinga.
Um er að ræða sólarhringsúrræði
sem ætlað er einstaklingum sem
glíma við margháttaðan félagslegan
vanda og eiga að baki margar til-
raunir til að hætta áfengis- og vímu-
efnaneyslu. Þörfin fyrir slíkt búsetu-
úrræði er mjög brýn og í dag bíða
margir einstaklingar eftir opnun úr-
ræðisins.
Faglegar forsendur réðu vali
Í auglýsingu Velferðarsviðs eftir
samstarfsaðilum var gerð grein fyrir
þeim faglegu kröfum sem lágu til
grundvallar vali á samstarfsaðila.
Þær kröfur voru m.a. þekking til að
veita félagslega heimaþjónustu með
virkni og þátttökuhugmyndafræði að
leiðarljósi, faglegur stuðningur við
íbúa og þekking á fíknivanda. Fjórir
aðilar svöruðu auglýsingu um sam-
starf, Ekron, Heilsuverndarstöðin/
Alhjúkrun, Samhjálp og SÁÁ. Allir
aðilar voru boðaðir í viðtal þar sem
umsóknum var fylgt eftir. Allir aðilar
uppfylltu faglegar kröfur en Heilsu-
verndarstöðin/Alhjúkrun var talin
best fallin til samstarfsins m.t.t.
heildarlausna hvað varðar hag-
kvæmni og þjónustu. Útfærsla þeirra
var talin best mótuð á grundvelli
þeirra faglegu forsendna sem fram
komu í auglýsingunni en þar var m.a.
lögð áhersla á félagslega heimaþjón-
ustu með virkni og þátttöku-
hugmyndafræði að leiðarljósi. Sér-
staklega var litið til þess við val á
samstarfsaðila að hjá Heilsuvernd-
arstöðinni/Alhjúkrun starfa sérfræð-
ingar sem hafa mikla reynslu af vinnu
við starfsendurhæfingu en starfsend-
urhæfing er mikilvægur þáttur í
stuðningi og aðstoð við einstaklinga í
þessum aðstæðum. Heilsuvernd-
arstöðin þótti geta uppfyllt þennan
þátt best af þeim aðilum sem sóttust
eftir samstarfi. Auk þess þótti skipta
máli að Heilsuverndarstöðin/
Alhjúkrun hafði til taks afar hentugt
húsnæði fyrir umrædda starfsemi.
Reynsla Velferðarsviðs af húsnæð-
isleit fyrir slík úrræði hefur sýnt að
erfitt er að finna húsnæði sem hentar
og hefur jafnvel komið upp sú staða
að ekki hefur reynst unnt að setja á
fót úrræði vegna skorts á hentugu
húsnæði.
Sviðsstjóri lagði því fram tillögu á
fundi velferðarráðs hinn 9. apríl sl.
um að gengið yrði til samstarfs við
þann aðila sem skv. faglegu mati var
talinn best til þess fallinn að veita um-
rædda þjónustu og reka slíkt úrræði.
Tillagan var samþykkt samhljóða af
öllum fulltrúum velferðarráðs, bæði
meirihluta og minnihluta.
Velferðarsvið er undanþegið út-
boðsskyldu
Samkvæmt innkaupareglum
Reykjavíkurborgar er Velferðarsvið
undanþegið útboðsskyldu þegar um
er að ræða þjónustusamninga við
ýmsa aðila um meðferðarþjónustu
eða annars konar stuðningsúrræði,
slík undanþága á við um umrætt bú-
setuúrræði. Þrátt fyrir undanþáguna
er skylt að auglýsa fyrirhuguð inn-
kaup enda með því gætt jafnræðis.
Einnig skal hafa að leiðarljósi þau
meginatriði innkaupareglnanna sem
varða málsmeðferð vegna ákvarð-
anatöku varðandi samstarfsaðila.
Ekki var því um að ræða formleg til-
boð sem fara inn í ákveðið ferli á
grundvelli innkaupareglna og sam-
anburð á grundvelli matslíkans held-
ur hugmyndir um útfærslu og kostn-
að sem geta tekið breytingum í
viðræðum við þá aðila sem áhuga
hafa á samstarfi. Velferðarsvið mat
samstarfshugmyndirnar út frá fag-
legum kröfum sem lágu til grundvall-
ar, stefnu sviðsins og áherslum í
starfi þess hvað varðar þjónustustig
og heildarlausn. Að mati sviðsins lágu
rökstuddar og málefnalegar for-
sendur að baki vali á samstarfsaðila.
Innri endurskoðun Reykjavík-
urborgar var fengin til að leggja mat
á ákvörðun velferðarráðs og er það
mat hennar að málefnalegar for-
sendur liggi að baki ákvörðuninni.
Með vali á samstarfsaðila um um-
rætt búsetuúrræði er ekki verið að
rýra á nokkurn hátt traust til þeirra
aðila sem sóttust eftir samstarfi en
urðu ekki fyrir valinu, né heldur var
verið að leggja mat á að þeir hafi ekki
verið hæfir. Þvert á móti þóttu allir
aðilarnir uppfylla faglegar kröfur
enda Velferðarsvið þegar að kaupa
umtalsverða þjónustu í gegnum þjón-
ustu- og samstarfssamninga af öllum
þeim aðilum sem sóttust eftir sam-
starfi, þ.e. Ekron, Samhjálp og SÁÁ.
Tekið skal fram að fulltrúar í velferð-
arráði hafa lagt á það áherslu að sam-
starfi við þriðja aðila sé dreift.
Brýn þörf fyrir búsetuúrræði
Þörfin fyrir opnun búsetuúrræðis
með öflugum félagslegum stuðningi
fyrir hóp fólks sem glímir við marg-
háttaðan og langvarandi félagslegan
vanda er mjög brýn. Það að setja val
velferðarráðs á samstarfsaðilum til að
reka umrætt búsetuúrræði í uppnám
eins og gert hefur verið undanfarið er
ábyrgðarhluti gagnvart þeim hópi
sem þarf þjónustu og bíður eftir að
úrræðið opni. Slíkt getur varla talist í
þágu þeirra einstaklinga sem þurfa á
þjónustunni að halda og síst til þess
fallið að flýta fyrir opnun úrræðisins.
Búsetuúrræði með
félagslegum stuðningi
Jórunn
Frímannsdóttir og
Stella Kr.
Víðisdóttir skrifa
um búsetuúrræði
Reykjavíkurborgar
Stella Kr. Víðisdóttir
»Um er að ræða sólar-
hringsúrræði sem
ætlað er einstaklingum
sem glíma við marghátt-
aðan félagslegan
vanda …
Jórunn er formaður Velferðarráðs
Reykjavíkurborgar. Stella er
sviðsstjóri Velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar
Jórunn Frímannsdóttir