Morgunblaðið - 22.06.2008, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 37
MIÐHELLA 2 - HAFNARFJÖRÐUR
Um er að ræða iðnaðar-, verslunar- og skrifstofuhúsnæði
að Miðhellu 2 Hafnarfirði. Hverfið er nýtt verslunar- og
þjónustuhverfi í Hafnarfirði við hlið íbúðarhverfisins á Völl-
unum og með góðri tengingu við Reykjanesbraut um nýj-
an Krísuvíkurveg og gegnum Vallarhverfið. Húsið er alls
um 1634 fermetrar, þar af um 460 fermetrar á annari
hæð í þeim hluta húsnæðisins sem snýr að íbúðarhverf-
inu að Völlunum. Hér er um vandaða húseign að ræða
sem býður uppá mikla möguleika fyrir iðnað, verslun og
þjónustu. Húsið er nú uppskipt í fjóra eignarhluta sem
auðvelt er að samtengja eða skipta upp frekar í smærri einingar. Eignin áætlast afhent í júní/júlí 2008
eða samkvæmt nánara samkomulagi. Húsinu fylgir virðisaukaskattskvöð.
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA ÞÓRARINN S. 770-0309 OG SIGURÐUR S. 896-2312
UM ÁTTA hundr-
uð ungmenni hafa
sest á skólaþing Al-
þingis og glímt við
þingstörf í vetur frá
því að Sturla Böðv-
arsson, forseti Al-
þingis, setti Skóla-
þing í fyrsta sinn hinn 11.
nóvember síðastliðinn. Skólaþing-
ið er nýjung sem 8.-10. bekkjum
grunnskóla er boðin endurgjalds-
laust, – til þess að kynna þeim Al-
þingi og störfin þar.
Fyrirmyndin er komin frá nor-
rænu þingunum, en fyrsta
kennsluverið af svipuðu tagi var
opnað árið 2003 við danska þingið
og síðan voru sett upp sams konar
kennsluver við norska og sænska
þingið. Sólveig Pétursdóttir, fyrr-
verandi forseti Alþingis, átti
frumkvæði að því að Skólaþingið
var sett á laggirnar hér.
Það er aldrei of snemmt að
þjálfa ungt fólk í rökræðu,
ákvarðanatöku, upplýsingaöflun
og umræðu um málefni líðandi
stundar. Nú á tímum minnkandi
áhuga ungs fólks á stjórnmálum
og þverrandi kosningaþátttöku er
einnig mikilvægt að vekja áhuga
og fræðslu um stjórnmál og eðli
lýðræðisins.
Þingmaður í einn dag
Í húsnæði Alþingis við Austur-
stræti hefur þingsalurinn verið
endurgerður í smærri mynd og
útbúin aðstaða til
þingstarfa fyrir ung-
menni. Þar fara nem-
endur efstu bekkja
grunnskóla í hlut-
verkaleik og fylgja í
stórum dráttum
reglum um starfs-
hætti Alþingis.
Nemendurnir fá
tækifæri til að setja
sig í spor þingmanna
með því að leiða til
lykta á þingflokks-
fundum, nefnd-
arfundum og þingfundum fyr-
irfram ákveðin málefni. Þeir meta
rök sérfræðinga sem veita þing-
mönnum ráðgjöf. Þannig er ætl-
unin að veita innsýn í sambandið
milli atburða í samfélaginu, skoð-
anamyndunar, pólitískra ákvarð-
ana og starfa Alþingis og sýna
áhrif almennings, sérfræðinga,
fjölmiðla og hagsmunaaðila á lög-
gjafarstarfið. Nemendur eiga að
komast að lýðræðislegri nið-
urstöðu með því að hlusta á og
meta rök og álit annarra, tjá eigin
skoðun og taka afstöðu.
Í skólaþinginu er mikil áhersla
á virkni allra og leitast er við að
efla skilning og þekkingu á stjórn-
skipulagi okkar, störfum Alþingis
og lýðræðislegum vinnubrögðum.
Til að gera leikinn sem áhuga-
verðastan er beitt tölvutækni og
margmiðlun til að miðla upplýs-
ingum og stýra leiknum.
Málin fá
þinglega meðferð
Á Skólaþingi eru fjórir stjórn-
málaflokkar sem nemendur
skiptast í: Hagsældarflokkurinn,
Þjóðflokkurinn, Landsframboðið
og Jafningjabandalagið. Þing-
flokkar þeirra byrja á að halda
þingflokksfundi þar sem þrjú
þingmál eru rædd og farið yfir
stefnu flokkanna í þeim.
Fulltrúar allra flokkanna fara á
nefndarfund og taka þar til um-
fjöllunar mál. Leitað er álits gesta
sem eru með eða á móti málinu og
nefndarmenn geta valið úr nokkr-
um spurningum til að leggja fyrir
þá. Þeir kynna sér umsagnir sem
nefndinni berast og taka afstöðu
til þess hvort nauðsynlegt sé að
gera breytingar á málinu og ef
meirihluti nefndarmanna er sam-
mála um að gera tillögur að
breytingunum eru þær gerðar.
Á nefndarfundi þurfa þingmenn
Skólaþings að berjast fyrir skoð-
unum síns flokks og leita mála-
miðlana. Þeir segja síðan frá nið-
urstöðum nefndarfundarins á
næsta þingflokksfundi flokks síns.
Allir fara á þingfundi í þingsal
þar sem mælt er fyrir málum,
mælt fyrir nefndarálitum og
breytingartillögum. Á síðasta
þingfundi ráðast svo úrslitin þeg-
ar atkvæði eru greidd um málin
og þau afgreidd sem lög frá
Skólaþingi eða felld.
Ég hvet kennara til að huga að
því við skipulagningu skólastarfs-
ins næsta vetur að nýta þessa
skemmtilegu aðstöðu og fræðslu
fyrir nemendur sína. Reynslan frá
því í vetur ber vott um ánægju
nemenda og kennara með heim-
sóknina. „Skólaþingið er bráð-
skemmtilegt og var einstaklega
vel tekið á móti okkur, sumir hafa
helst ekki viljað fara heim að leik
loknum,“ sagði vinkona mín sem
er kennari og fór með nemendur
sína á Skólaþingið í vetur.
Starfsmenn Alþingis höfðu veg
og vanda af undirbúningi Skóla-
þingsins en Gerður Kristný rithöf-
undur gerði handrit í samstarfi við
starfsmenn skrifstofu Alþingis.
Allir þeir sem komu að því verki
eiga hrós skilið fyrir vandað og
skemmtilegt Skólaþing. Á vef
Skólaþingsins, www.skolathing.is,
eru nánari upplýsingar um þessa
mikilvægu og skemmtilegu nýjung
í starfsemi Alþingis.
Skólaþing er þarfaþing
Ásta R.
Jóhannesdóttir
segir frá Skóla-
þingi, verkefni
fyrir grunn-
skólanema
Ásta R. Jóhannesdóttir
» Það er aldrei of
snemmt að þjálfa
ungt fólk í rökræðu,
ákvarðanatöku,
upplýsingaöflun og
umræðu um málefni
líðandi stundar.
Höfundur er
alþingismaður og
fyrsti varaforseti Alþingis.