Morgunblaðið - 02.08.2008, Side 60
60 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HANN ER SNILLINGUR Í ÁSTUM
NÝJASTA GRÍNMYND MIKE MYERS
SEM FÆRÐI OKKUR AUSTIN POWERS MYNDIRNAR
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
„FINDING NEMO“ OG „RATATOUILLE“
SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB
DECEPTION kl. 11:10 B.i. 14 ára
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ
KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
WANTED kl. 11:10 B.i. 16 ára
CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 5 B.i. 7 ára
“…einhver besta teiknimynd sem ég hef séð.” – kvikmyndir.is
“…ein besta mynd sumarsins…” –USA Today
“…meistarverk.” – New York Magazine
THE LOVE GURU kl. 6 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
WALL• E m/ísl. tal kl. 1:30D - 3:40D - 5:50D LEYFÐ DIGITAL
WALL• E m/ensku tali kl. 10D LEYFÐ DIGITAL
DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 POWERSÝNING B.i. 12 ára
DECEPTION kl. 8 B.i. 16 ára
KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 2 - 4 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
AKUREYRI OG SELFOSSI
THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 B.i. 12 ára
THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 B.i. 12 ára LÚXUS VIP
WALL• E m/ísl. tali kl. 1:30D - 3:40D - 5:50D LEYFÐ DIGITAL
WALL• E m/ensku tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
MAMMA MIA kl. 2 - 5:50 - 8:20 B.i. 12 ára
UPPSELT ÖRFÁ SÆTI LAUS
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
DULARFULL kona hringir í Einar,
blaðamann Síðdegisblaðsins á Akur-
eyri og segir honum að fylgjast vel
með húsi í bænum þar sem sagt er
að sé reimt. Sumarhátíðin Allt í einni
stendur yfir og Hollywoodstjörnur
eru staddar í bænum við upptökur á
erótískri mynd. Þá finnst ung stúlka
myrt í húsinu óhugnanlega.
Þannig er söguþráðurinn í hádeg-
isleikritinu Dauða trúðsins eftir
Árna Þórarinsson í leikgerð Hjálm-
ars Hjálmarssonar sem Útvarps-
leikhúsið flytur frá 5. til 29. ágúst.
Áður hefur Hjálmar gert leikgerð af
verki Árna Tíma nornarinnar sem
flutt var árið 2006.
Snertir á ýmsum málum
„Ekkert hefur verið sparað til að
gera verkið sem mest spennandi fyr-
ir hlustendur að hlusta á,“ segir
Hjálmar sem auk þess að semja leik-
gerðina fer með hlutverk Einars
blaðamanns í verkinu nú líkt og fyrir
tveimur árum. „Þessi saga er ekki
bara glæpasaga, heldur fjallar hún
líka um mannleg samskipti og tæpir
á málum sem eru í hringiðu umræð-
unnar í dag: vaxandi ofbeldi, fjölgun
glæpa, manneklu hjá lögreglunni og
fleira,“ bætir hann við.
Með helstu hlutverk auk Hjálm-
ars fara Jóhann Sigurðarson sem
Ólafur Gísli yfirlögregluþjónn, Sig-
urður Hrannar Hjaltason leikur af-
leysingaljósmyndarann Ágúst Örn
og Guðrún S. Gísladóttir túlkar
hina dularfullu Viktóríu. Auk
þeirra taka yfir 30 leikarar þátt í
flutningi verksins en Hallur Ing-
ólfsson samdi tónlist við leikritið.
Einar Sigurðsson annast hljóð-
vinnslu og leikstjórnin er í höndum
Guðmundar Inga Þorvaldssonar.
Einstakur miðill
Hjálmar segir útvarpið sem leik-
húsmiðil búa yfir einstökum göldr-
um sem hlustendur kunna að meta.
„Fátt er jafn æðislegt og að hlusta
á góða spennusögu í bílnum eða úti
í sólinni,“ segir hann. „Galdurinn á
sér stað í huga hlustandans sem
verður virkari þáttakandi í að
skapa verkið en ef hann væri að
horfa á verk á sviði eða í sjónvarpi.
Útvarpið kveikir þúsund myndir í
huga hlustandans sem með eigin
ímyndunarafli þarf að búa sér til
mynd af sögupersónunum og um-
hverfinu.“
Leikritið verður flutt kl. 13 á
virkum dögum frá 5. ágúst til 29.
ágúst. Verða engar endurtekningar
en nálgast má upptökur á
www.ruv.is í tvær vikur eftir út-
sendingu og reiknar Hjálmar einn-
ig með að leikritið verði aðgengi-
legt á hlaðvarpi (þ.e. podcast).
Reimleikar og morð á Akureyri
Útvarpsleikhúsið
flytur Dauða
trúðsins í ágúst
Morgunblaðið/Frikki
Grunsamlegir „Hjálmar er eins og fæddur til að túlka Einar blaðamann,“ segir Árni Þórarinsson rithöfundur.
„Hann er Einar eins og ég sé hann í huganum og heyri.“ Árni og Hjálmar við útvarpstækið.