Skinfaxi - 01.03.1936, Síða 89
SKINFAXI
89
heimskulegu og vanhugsuðu tilmæli: Snúðu við, þegar
komið er í óefni fyrir þér, og þú veizt, að þú ratar ekki
til baka. Snúðu við og gakktu í bindindi, þegar þú finn-
ur, að vínið hefir svift þig viti og vilja, svo að þú ert
orðinn ánauðugur þræll vínþorsta og drykkjufýsnar,
og veizt, að þú getur ekki sigrað. Snúðu við, þegar þú ert
viss um, að það er of seint og ómögulegt. Svona vörn
er nauðvörn, og engu síður þó að þjóðfrægir garpar
stýri henni.
Herra Claessen er mér sammála um það, að ávextir
vínnautnar séu fjáreyðsla, ómennska, eymd, siðleysi,
giæpir, sjúkómar og hverskonar auðnuleysi. Báðum er
okkur því illa við ofdrykkju. En svo skilja leiðir. Hann
virðist vera sljór fyrir því, sem hver félagslega þrosk-
aður nútímamaður veit, að drykkjusiðir og drykkju-
tízka eru stöðugt að skapa og móta nýja og nýja of-
drykkjumenn. Menntaður samtímamaður okkar skilur,
að hver sá maður, sem bragðar áfengi, lýtur drykkju-
tízkunni og gerir hana þar með voldugri. Drykkjutízk-
an er tizka einasta vegna þess, að henni er lotið svo oft
og víða. Þannig orsakast það, að hver sá, er drekkur,
færir i aukana þann aldarhátt, sem kennir öðrum að
drekka, og drekkur þvi ef til vill öðrum til meira tjóns
en sjálfum sér. Á þessum timum sæmir ekki annað en
vita það, að hver sá, er sýnir áfengisnautn nokkra sam-
úð, er með því að viðhalda þeim aldarhætti, sem veld-
ur hamingjuráni fjölda manns. Hver sá, er bragðar á-
fengi, er með því að kalla bölvun ofdrykkjunnar yfir
sum börn okkar og bræður. Eg skil ekki, að það sé
einkamál og eg spyr: Sæmir það siðuðum mönnum?
En eg hefi engin deili séð til þess, að herra dr. med.
yfirlæknir Claessen skildi þetta.
Það er ástæða til að athuga þetta dálítið nánar, og
skýra betur afstöðu okkar, sem erum refjalausir bind-
indismenn. Við þekkjum öll þjóðsöguna fomu og aust-
Urlenzku, um þá bræður Kain og Abel. Drottinn spurði