Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1944, Page 7

Skinfaxi - 01.04.1944, Page 7
SKINFAXI 7 annarra og framtíðarinnar. Slíkt er oft ekki talið til hygginda. Frelsis- og menningarbarátta liæfir og ekki reikningsmeisturum varfærninnar og sérhagsmunanna. Þar er þörf dirfsku æskunnar og örlætis. Sænskir stjórnvitringar spurðu málsvara Norðmanna haustið 1814, hvern kost þeir gætu valið, ef þeir höfnuðu til- boðum Svía viðvíkjandi stöðu Noregs. „Við munum velja bið ömurlega", svaraði Norðmaðurinn. — Heldur að velja leið, sem veraldarhyggindin töldu ófæra, en að slá af frelsiskröfunum, ganga að skilmálum, sem skertu sjálfstæði fósturjarðarinnar enn um sinn. „Aldr- ei að víkja,“ var vigorð Jóns Sigurðssonar. Þetta er við- horf æskunnar. Þetta er hennar „örvandi hönd.“ ís- lenzk æslca hlýtur að láta til sin taka þessa vordaga. Ef til vill má finna einhverja smáagnúa á algerum sam- bandsslitum nú. Það mál verður sennilega ævinlega viðkvæmt iiópi manna, hvernig sem á stendur. En þjóð, sem ann frelsinu og vill verða frjáls, hún verður jafnvel að velja hina ómögulegu leið, og hversu miklu fremur, þegar möguleikinn er fyrir hendi. Annars verð- ur hér ekki farið út i einstölc lagaatriði. Sautjándi júní 1944. Dagur minninganna um frjálsa Islendinga, dagur ákvarðana, að íslendingar gerist nú frjálsir í anda og sannleika . Það er fullmikið lalað um Dani og þeirra tilfinningar i sambandi við þetta mál. Danir voru í rauninni af- greiddir 1. des. 1918. Horfum fram á veginn. Til hvers verðum við frjáls þjóð? Norðurlandaþjóðirnar eru ekki að skilja. Þær eru að færast saman. |Hinn eini stóri málstaður sameinar og allt annað gleymist. Fyrir frelsið, ekki íslands á kostn- að Danmerkur né nokkurs annars ríkis, iiafa þeir fallið, Nordahl Grieg, Kaj Munk og góðir íslendingar, sem hafa látið lífið af völdum stríðsins við friðsamleg störf sin. Þegar frelsið er annars vegar, hvei-fa allir smámunir og formvandkvæði, aðgreining þjóða og einstaklinga,

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.