Skinfaxi - 01.04.1944, Page 9
SKINFAXI
9
og efla stj órnarfarslegt, menningalegt og fjárhagslegt
frelsi íslendinga. Þan iiafa viðhaldið og örfað sjálfstæð-
isþi'á þjóðarinnar, m. a. með því að halda hátíðlegan
afmælisdag fullveldisins,
1. desember, og fæðingar-
dag Jóns Sigurðssonar,
17. júní. Ég tel því ekki
ástæðu til að ætla, að
nokkur ungmennafélagi
æski annars en fullra
samhandsslita við Dani.
En það er annað, sem
við þurfum að gjalda
varhuga við. — Raddir
hafa komið fram, m. a.
lijá mönnum, sem standa
framarlega í menntamál-
um þjóðarinnar, að ekki
sé timabært nú að ganga
að fullu frá sambands-
slitum, vegna aðstöðu
sambandsþjóðarinnar, sem þó að mínu áliti og ég vona
allra ungmennafélaga gelur ekki búizt við riema einni
afstöðu okkar Islendinga. Yegna þessara radda, getum
við búizt við nokkrum Nei atkvæðum i atkvæðagreiðsl-
uiini um sambandsslitin. Auðvitað efumst við elcki um
úrslit þeirrar atkvæðagreiðslu, en til þess að hún geti
gefið sem fullkonmasta mynd af vilja þjóðarinnar, þá
er áríðandi, að allir, sem kost eiga á, greiði atkvæði. —
Ég vil þvi skora á ykkur, ungmcnnafélagar, — sér-
staklega félaga mína innan U.M.S.K — að vinna ötullega
að því, að hver einasti kosninga-kjörskráður maður og
kona í okkar byggðarlögum, sem aðstöðu hefur til,
mæti við kjörborðið í vor, þegar sambandinu verður
slitið, og landið okkar hlýtur sjálfstæði sitt að nýju.
Gísli Andrésson.