Skinfaxi - 01.04.1944, Qupperneq 21
SKINFAXI
21
Haraldur Mag-nússon Dalvík,
formaður Ungmennasambands Eyfirðinga:
sitt hlutverk.
Enn einu sinni eru
þáttáskip'ti í sögu okkar ís-
lendinga. Viðburðaríkum
þætti er lokið og annar
nýr að liefjast, þáttur,
sem islenzka þjóðin skal
ráða meiru um en nokk-
urn annan í sögu sinni
siðan á tímum þjóðveld-
isins.
En í sambandi við þessi
tímamót þurfum við að
taka ákvarðanir, stíga
þýðingarmikið skref, er
örlagarikt getur orðið
niðjum okkar og binni ís-
lenzku þjóð um aldir.
Þetta skref þarf því öll þjóðin að vera samhuga um
að stíga. Stofnun lýðveldis á íslandi er mál, sem alla
varðar, jafnt í sveit og við sæ, æskumanninn sem öld-
unginn. Hér er ekkert pólitískt hagsmunamál einnar
sléttar eða stjórnmálaflokks, er geti leyft sér að gera
það að sínum einka-vígorðum. Þetta er niál alþjóðar.
Flestir munu því og eindregið fylgjandi, að stofnað
verði lýðveldi á íslandi ináðlega. Lögum samkvæmt
skal þjóðin sjálf laka liina siðustu ákvörðun með
allsherjar atkvæðagreiðslu.
Margir eru þó, sem telja miður heppilega tima nú
til svo mikilvægra atliafna, þar sem þjóðin sé á vissan
liátt hernumin, og að ennfremur getum við ekki gengið
l’rá endanlcgum sambandsslitum við Dani, þar sem
Þjóð, sem veit
Haraldn r Magnússon.