Skinfaxi - 01.04.1944, Blaðsíða 26
26
SKINFAXI
Skúli Þorsteinsson Eskifirði,
formaður Ungmennasambands Auslurlands:
Geymum ekki að taka rétt vorn.
Hugsjónir þær, sem
ungmennafélögin hafa
tiyllt og starfað fyrir,hafa
jafnan verið sá eldurinn,
sem bezt Iiefir ornað í
sjálfstæðis- og menning-
arbaráttu þjóðarinnar.
Ungmennafélögin áttu
merkan þátt í þeim sigri,
sem vannst 1918. Þau
fluttu með sér hinn hress-
andi andblæ, sem skapaði
með þjóðinni bjartsýni og
baráttuhug. Trú á fram-
tíðina, ást til landsins og
virðing fyrir þjóðernislegum og menningarlegum
verðmætum var sá óður, sem þau kváðu þjóðinni.
Stefna þeirra og störf var þá og er enn í fullu samræmi
við lífshugsjón forsetans, Jóns Sigurðssonar, þess
manns, sem þjóðin öll hyllir í virðingu og þökk.
Enda þótt ungmennafélögin séu hlutlaus í haráttu
stjórnmálaflokkanna innanlands, þá hafa þau aldrei
farið i felur með afstöðu sina til liverskonar yfirdrottn-
unar eða óeðlilegrar íhlutunar óviðkomandi aðila um
islenzk málefni.
Sambandsþing U. M. F. í. að jHvanneyri síðastliðið
vor lét einróma í ljós þá ósk, að stofnað yrði lýðveldi á
íslandi eigi síðar en 17. júní 1944.
Það er þvi ljóst, að ungmennafélögin, sem heild, fagna