Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1944, Síða 27

Skinfaxi - 01.04.1944, Síða 27
SKINFAXI 27 því, að á þessu ári gefst þjóðinni tækifæri, lil þess að lullkomna sigurinn frá 1918. iig trúi þvi og treysti, að stofnun lýðveldis á vori komanda beri þjóðina i gæfuált. Líl ég svo á, að var- hugavert sé að draga þá ráðslöfun til stríðsloka, þegar þjóðirnar setjast á rökstóla og semja nýtt landabréf. Heppilegra virðist, að þá fari íslendingar að öllu leyti með eigin mál og liafi fengð stjórnskipulag silt viður- kennt af sem flestum ríkjum. Sjálfs er höndin liollust. En nú ríður á, að síðasta dagsverkið sé vel unnið. Væntanleg þjóðaralkvæðagreiðsla verður að fara fram með þeim liætti, að liún verði þjóðinni til fullrar sæmd- ur. Enginn, sem reynast vill þjóð sinni trúr, má þá gleyma baráttu hennar á liðnum öldum. Þá gefst tæki- færi, til þess að knýta sigurkransinn yfir ævistörf og fórnir hinna beztu landsins sona. |Úrslit þeirrar atkvæða- greiðslu varða miklu um gæfu þjóðarinnar og virðingu. Ungmennfélagar um land allt! Reynist nú sannir vor- inenn. Vinnið að þvi að atkvæðagreiðslan verði sem al- mennust og úrslitin á einn veg. íslendingar mega ekki óttast, að sambandsþjóðin líti á stofnun lýðveldis á íslandi fyrir stríðslok sem nokk- urn andúðarvott í sinn garð, enda hníga að þvi engin rök. Vér erum ekki að ganga á rétt sambandsþjóðar vorrar. Að ræða um ódrengskap í þessu sambandi er smekkleysa ein. Hér er aðeins um öryggis- og réttlætis- ráðstöfun að ræða, sem vér getum eklci ællað, að sam- bandsþjóð vor skilji ekki á réttan hátt. Full ástæða er til þess að ætla, að lokauppgjör þessara tveggja frændj)jóða verði, til þess að treysta vináttu- böndin — því fyr, því betra. Eilt er víst, að aldrei hefir íslenzka þjóðin borið blýrri bug til sambandsþjóðar sinnar en einmitt nú. Hver sannur Islendingur óskar þess af heilum hugj að danska þjóðin losni sem fyrst undan þeim járnhæl, sem nú

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.