Skinfaxi - 01.04.1944, Page 41
SKINFAXI
41
/ dansi er hún mjúk og í léikfimi létt
og liðug í hreyfingum öllum.
Og ólgandi fjörið ú óskertan rétt
í ærslum og hljómölduföllum.
En hitt er i brotum í hug hennar sett,
sem liugsjón og takmark vér köllum.
1 útileik bernskunnar únægð hún fer
og úflog við jafnaldra sveina.
En aðeins í draumsjónum óljóst hún sér
lwað atlot og hugústir reyna.
Sú guðvef jarhjúpur í augum þó er,
sem einhverju hefur að leyna.
III.
Hún kemur ú ungmennafélagsins fund
með fögnuð og tryggðir í sefa.
Hún athugul hlustar ú umræðustund,
sem allir í viðleitni gefa.
Hún flytur sitt múl ú þú frumstæðu lund,
sem feimnin og einlægnin vefa.
Iiún hyllir það félag og helgar því flest
og hittir þar verkefni kærust.
Með því er hún vaxin, hjú því er hún bezt,
og þar er hún glöðust og skærust.
Og þar er í gleðinni magn hennar mest,
og mund hennar Ijúfust og færust.
Iíér stóð hennar vagga, hér vann hún sín heit,
hér var henni leikurinn sendur.
Þótt óvíst sé sporið um óstiginn reit,
vort ísland í skóm hennar stendur.
Því hlýtur vorl félag og framtíðarsveit
að fú henni von sína í hendur.