Skinfaxi - 01.04.1944, Side 44
SKINFAXI
Húsaskipun á Eiðum, talið frá hægri: íþróttahöllin, skólinn,
kirkjan og íbúðarhús Páls Hermannssonar alþm.
inn jafnan þröngur, framlög öll skorin við neglur og
skilningur alls almennings á þörfinni nœsta takmark-
aður. Húsakostur skólans var þó bæltur verulega 1908
og jókst þá aðsókn að skólanum, enda var þá ekki um
aðra skóla að ræða á Austurlandi. Mjög þótti út af því
bera, að allir yrðu bændur, sem útskrifuðust frá skól-
anum. Þegar út í lífið kom greindust nemendurnir
hlutfallslega jafnt milli binna ýmsu starfsgreina þjóð-
félagsins, rétt eins og verkast vildi. Þegar svo fræðslu-
lögin gengu í gildi 1907, voru það búnaðarskólamenn
og gagnfræðingar, sem fyrstir urðu farkennarar. Þessi
reynsla ásamt fleiru, er liér verður ekki ralcið, var ástæð-
an til þess, að þær raddir urðu all-liáværar, er töldu
það heppilegra fyrir fleslar sakir að breyta búnaðar-
skólanum í alþýðuskóla, þar sem áberzla yrði fremur
lögð á almennar gagnfræðagreinar en búfræði.
Það varð svo samkomulag milli Múlasýslna og rikis-
ins, að það læki við skólasetrinu með öllum gögnum