Skinfaxi - 01.04.1944, Qupperneq 50
50
SKINFAXI
þeim, er auðga fildu auda sinn, skerpa athygli sína og
dómgreind. Skóli í þeirri merkingu hefur Eiðaskóli
fyrst og fremst viljað vera nemöndum þeim, er hann
hafa sótt og þeiss vegna talið það happ1, að vera laus
við eril og eirðarleysi krossgatnanna. ffeiinavistarskól-
ar í sveitum fyrir unglinga, óráðna og óharðnaða, vinna
máske þjóðnýtast starf með þvi einu, að vera æskunni
næði, tóm, á meSan hún er að leita að sjálfri sér, þrosk-
ast til sjálfstæðrar liugsunar og ályktana i samræmi við
eðli sitt og upplag og forða henni á þann veg undan
slraumi og að verða handbendi skoðanabraskaranna,
iiættulegustu skaðvalda hverrar þjóðar.
VI.
Eiðaskóli byrjar annan aldarfjórðunginn betur bú-
inn að ytri skilyrðum en nokkru sinni fyr; væntanlega
verður gifta hans söm og áður. Áskoranir hafa komið
fram um það, að breyta skólanum í fullkominn gagn-
fræðaskóla. Jafnvel er nú tekið að örla á þeirri skoðun,
að á Eiðum eigi, með tíð og tíma, að koma menntaskóli
fyrir Austurland. Hvað sem ofan á kann að verða í þessu
efni, þá er eitt víst, að mildar framtiðarvonir eru nú
bundnar við Eiða. Ungmenna- og íþróttasamband Aust-
urlands telur þar heimili sitt; þar fara fram aðal íþrótta-
leikir þess árlega. Fyrirhugað er stórt iþróttasvæði í
nánd við skólann. Börn hvaðanæfa af Austurlandi dvelja
þar við sundnám á hverju vori, og til mála hefur komið
að reisa þar barnaskóla fyrir allstórt svæði á Fljótsdals-
héraði. Árið 1927 var girt svæði nokkurt, skammt frá
skólanum, þar sem með aðgæzlu mátti finna skógar-
kræklur í grassverðinum. Viti menn! Friðunin hafði
þau áhrif þegar í stað, að skógurinn spratt upp úr hverri
laut og á hverri þúfu. Lífskraftur krældanna reyndist
nógur til að upp af sprytti hinn þróttmesti skógur, ef
þeim aðeins var séð næði til að vaxa. Sumstaðar eru
þær orðnar aiS þriggja metra trjám.