Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1944, Side 61

Skinfaxi - 01.04.1944, Side 61
61 SKINFAXI /fiffwm Þorsteinn Einarsson: IÞROTTAÞATTUR V. Þrístökk. Keppni i þvi hver kemst lengst í þremur stökkum, hoppum eða skre/um er gamal kunn íþrótt, sem varðveitzt liefir meðal Islendinga allt fram á þennan dag. Að vísu var nokkuð mismunandi hvernig íþróttin var framkvæmd og er Englend- ingar tóku þessa iþrótt inn á lista frjálsra íþrótta, þá nefndu þeir hana: „Hop-step-and-jump“, á íslenzku hopp-skref og stökk. Með þessu nafni hugðust þeir að aðgreina íþróttina frá öðrum þríhoppum eða þrístökkum. Við íslendingar liöfum skírt íþróttina þrístökk og cr það sannnefni, frekar en hið enska heiti, því að í]oróttin er, eins og síðar mun greint frá, þrjú greinileg stökk, þó að vísu hið fyrsta sé framkvæmt sem „hopp“ af sama fæti á sama fót, hið næsta virðist tröllslegt skref af öðrum fæti á hinn og hið siðasta stökk af öðrum fæti á háða. Skilgreiningin er: „Iðkandinn lendir eftir fyrsta stökkið á sama fæti og hann tók sig upp af, en lendir eftir annað stökkið á gagnstæðum fæti við þann, er hann tók sig upp af og lendir eftir þriðja stökkið á báða fætur.“ Þrátt fyrir að mismunandi skoðanir séu uppi um hlutföll lengdar hvers stökks við hin, þá er eitt víst, að hver iðkandi verður að temja sér frá byrjun viss hlutföll í stökkunum. Finnar, sem mega teljast ganga næst Japönum í afrekum

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.