Skinfaxi - 01.04.1944, Side 66
66
SKINFAXI
svo að stökkvarinn geti haft vald á spyrnu og lyftu.
6. Mjaðmirnai' lvftist ineð kröftugum hnélyftum sveiflufót-
ar í fráspyrnu til hvers stökks og holur stökkvarans má
aldrei bogna.
7. Líkami stökkvarans sé mjúkur við lendingu fótar, að loknu
hverju stökki.
„Sú spurning er mikið rædd, hvort sé hagkvæmara að taka
sig upp af hinum betra fæti (stökkfæti) í fyrsta og annað
stökkið eða geyma hann þar tii í uppstökkinu í seinasta
stökkið.
Margar stoðir renna undir það álit. að iðkandi, sem vanur
cr t. d. að stökkva af hægra fæti, spyrni sér til stökks bæði
í fyrsta og annað stökkið af hægra fæti. Samkvæmt kenningu
og reynslu Japananna, sem náð hafa beztum árangri, er
inikilvægi fyrsta stökksins litlu minna en liins síðasta. (í töl-
um 19:21). Iðkandinn er liklegri, til þess að hafa betra
vald á sér og jafnvægi í fyrsta og öðru stökki með því að
spyrna frá með hetri fæti, og með því undirbúa betri að-
stöðu fyrir uppstökk í þriðja stökkið. Beiting betri fótar er
öruggari og því frekar líkur, til þess að hin réttu hlutföll
haldist.
Þessi skoðun mín er ekki sett hér fram, til þess að verða
tekin sem endanlegur árangur af tilraunum. Hver þjálfari
og iðkandi verður að gera sínar tilraunir og sannfærast um
livað honum fellur sjálfum bezt.“ (F. A. M. Webster).
Hvernig er bezl afí æfa þristökk?
Til þess að stytta lýsinguna skulum við ganga út frá, að
iðkandinn, sem talað er um, stökkvi í fyrsta stökkið af vinstra
fæti, lcndi á vinstri aftur, stökkvi af vinstri fæti og lendi á
hægra fæti og stökkvi af honum þriðja stökkið og lendi að
lokum á háða fætur.
Mjúkur grasvöllur er bezta æfingasvæðið meðan verið er
að kenna byrjendum fyrstu atriði þrístökks. Uppstökksstað-
urinn cr greinilega merktur og auk ]>ess eru markaðar þrjár
línur samsíða uppstökkslínunni. Innbvrðis fjarlægð jiessara
lína skyldi vera: (miðað við fet, ]iví að sá mælikvarði auð-
veldar allar mælingar). 5 : 3% : 5. Iðkandinn tekur sér stöðu
við uppstökkslínuna í fyrsta stökkið. Tærnar við línuna og
hnefa breidd milli fóta. Æfingin er i því fólgin að stökkva
jafnfætis upp af hverju striki og snerta livcrt strik með
báðum fótum. Eftir 10 umferðir eru merkin afmáð og önnur