Skinfaxi - 01.04.1945, Qupperneq 39
_______________J5KINFAXI ___________________39
ágústmánaðar, en aukastyrkur í september. Var stjórn-
endum bókasafna tilkynnt í útvarpi aðalútsendingin,
svo þeir gætu sem fyrst vitjað styrkjanna á pósthúsin.
Aðalstyrkinn má reikna út strax og réttar skýrslur
koma, en þær eiga að vera komnar í fræðslumálaskrif-
stofuna fyrir 1. júlí. Aulcastyrk er ekki bægt að ákveða
fvrr en eftir þann tíma, því að; til hans má ekki verja
öðru en því, sem eftir verður, þegar öll söfn, sem
skilað bafa skýrslu fyrir 1. júli, hafa fengið eða verið
ætlaður hámarksaðalstyrkur.
— Stjórnendur bókasafna eiga þá á hættu að missa
af báðum styrkjum, ef þeir koma ekki skýrslum sín-
um á skrifstofuna fyrir þann tíma. Hvernig gengur
annars með skýrsluskilin?
— Það gekk erfiðlega fyrstu árin. Var þá mikið
liaft fyrir að innheimta skýrslurnar, bæði bréflega og
simleiðis. Frá vissum söfnum koma skýrslur ævin-
lega í tæka tíð, en trassaskapur í þessum efnum vill
lengi loða við önnur söfn. Hafa þó, skýrsluskil batnað
mikið frá því fyrst og voru miklu bezt í fyrra. Þó var
þá minnst gert til að innheimta skýrslurnar, enda
mikill vafi iivort það er rétt.
— Já, það er það vissulega, því að það gefur trassa-
skapnum undir fótinn og lækkar jafnvel aukastyrk
hinna, sem skilvísari eru. — En eiga þá allir kost á
að senda skýrslur sínar i tæka tið?
— Bókasöfnum, sem fengið liafa styrk úr sjóðnum,
eru póstsend eyðublöð fyrir ársskýrslur sinar snemma
á árinu, i þetta sinn í febrúar. Ætti því ekki að standa
á eyðublöðunum. Auk þess er það auglýst í útvarpinu,
hvenær eyðublöðin eru send, svo að stjórnendur safna
geti beðið um önnur i tæka tíð, ef þessi kynnu að
glatast i pósti eða misberast. Fer varla hjá því, að ein-
hver af notendum hvers safns heyri tilkynninguna,
og væri þá golt að hafa orð á þvi við stjórnendur
Frh. á bls. 42.