Skinfaxi - 01.11.1956, Blaðsíða 2
98
SKINFAXI
og svo muri verða úfram. Framtlðin ein fær úr því
skorið, hvernig félögunum tekst að leysa vandann.
Nú bíða félaganna mikil störf við undirbúning
Þingvallahátíðarinnar, en ef vænta má sömu þróun-
ar hjá ungmennafélögunum og verið hefur, verður
þetta mót glæsilegra en hin fyrri.
Ég vil beina þeim tilmælum til allra nngmenna-
féiaga á landinu, að undirbúa þátttöku sína í þessu
móti tímanlega.
Hefja þarf æfingar í frjálsum íþróttum, sundi,
knattspyrnu, handknattleik, fimleikum, þjóðdönsum
og glímu hið allra fyrsta, ef þær eru ekki hafnar
þegar. Iiafið ennfremur samband við mótsstjórn og
leitið upplýsinga hjá lienni og komið óskum ykkar til
hennar svo snemma, að hægt verði að reyna að upp-
fylla þær.
En undirbúið bó fyrst og fremst almenna þátttöku
i hátíðahöldunum frá ykkar félögum og leggið á
þann hátt ykkar skerf til þess, að þessi hátíð verði
mikil vakning æskunnar í landinu til nýrra dáða.
Stefán Ól. Jónsson.
__________