Skinfaxi - 01.11.1956, Blaðsíða 4
100
SKINFAXl
flogið áður, en öll dásömuxn við flugferðina og liið
afbraðsgóða starfslið á íslenzku vélunum.
Næsta dag flugum við til Stokkhólms, og nú með
franskri flugvél, mjög nýlegri. Við nutum útsýnisins
yfir Suður-Sviþjóð og sænska skerjagarðinn, en áð-
ur en vai’ði vorum við komin tii Stokkhólms. Okkur
fannst þetta harla ótrúlegt. Fyrir rúmum sólarhring
vorum við heima, en nú vorum við komin svona langt
austur, og það svo til án þess að verða vör við ferða-
lagið. Mikill er sá hraði, og mikil eru þau þægindi.
I Stokkhólmi dvöldum vxð stutt, fórum siðan með
járnbraut áleiðis upp í sænslcu dalina. Fæst okkar
höfðu áður farið i járnbraut, en okkur féll einnig vel
við þann farkost. Þetta var raíknúin braut og fór með
100—120 km. meðalhraða. Svo til allar járnbrautir
Svíþjóðar eru rafknúnar, og sparast með þvi mikill
gjaldeyi'ir. Á einum stað fór brautin i gegnum jai'ð-
göng. Dimmdi þá lieldur en ekki, en það tók stutta
stund. Leið okkar lá í gegnum mai’gar boi’gir á leið-
inni, t. d. ókum við i gegnum Uppsali, hina frægu há-
skólaborg. Alltaf var veðrið dásamlegt, og nutum við
útsýnisins, sem víða var mjög fagurt. Fyrst og fremst
var það hinn mikli skógur, sem vakti athygli okkar.
Við ókum i gegnum mjög víðáttumikil skóglendi og
var það nýstáileg sjón fyrir okkur, en nokkuð lield
ég, að okkur fyndist þröngt umhverfis okkur við slík-
ar aðstæður til lengdar. Við sáum einnig stóra bú-
garða og víðáitumikla, bieika aki’a. Sífelll færðumst
við nær áfangastaðnum og fyrr en varði vorum við
komnir til Borlánge, en þar stigum við af lestinni og
tókum áætlunarbifreið til Fornby. Þar tóku á móti
okkur mótsstjórinn Alvar Linberg. Linbei'g kom hing-
að á norrænu vikuna á Laugarvatni og er mörgum
íslendingum kunnur. Þaina hittum við og finnsku
þátttakendurna, þeir voru með sömu lest. Þar var
Vasarna, en liann var fararstjóri finnska þjóðdansa-