Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1956, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.11.1956, Blaðsíða 16
112 SKINFAXI borin fölskvalaus ást á landi sínu og þjóð, samfara trú á framfarir og framtíðarheill þessa lands. Á mesta merkisdegi í sögu þjóðarinnar á síðari árum, stofnun lýðveldis 17. júní 1944, flutti Jón aðalræðuna á hátíðarsamkomu í sveit sinni. Og að nokkru má marka, hvern hljómgrunn ræðan hlaut manna á meðal, að á tíu ára afmæli lýðveldisins, fékk ritstjóri blaðsins Suð- urland ræðu hans til birtingar. Ég efast ekki um, að það hefur verið mikill skaði, að Jón iðkaði ekki meira ritstörf en hann gerði. Hann var ósvikinn kjarnkvistur á þeim meiði, sem hefur borið uppi menningu þessa lands, og varpað ijóma á fátæku söguþjóðina nyrzt í Atlantshafi. Jón á Kópsvatni var um margt sérkennilegur per- sónuleiki, dulur og fáskiptinn við fyrstu kynni, en til- finningaheitur og hjartahreinn, staðbundinn, en víð- förull í hugans heimi, íhugull og leitandi og kunni að greina hismið frá kjarnanum. Hraði og hávaði þessarar umbrotasömu aldar náðu aldrei að hi’ífa Jón út í straum- iðu sína. Veraldarinnar prjál og gervigull síðustu ára freistuðu hans ekki. Þótt Jón væri góður bóndi og sómi stéttar sinnar, og kynni að meta vel framgenginn búpening og gróinn töðuvöll, þá stóð það ekki næst hjarta hans. Sínar mestu yndisstundir átti hann í hin- um frjálsa hugarheimi. Það var aðalsmerki og styrkur hans, eins og svo margs alþýðufólks í þessu landi, að íeita og spyrja, rannsaka og íhuga, víkka sjóndeildar- hringinn, eða með öðrum orðum að þroska sem bezt með sér þann hæfileikann, sem einn er þess umkominn að lyfta manninum yfir hversdagsleikann, og veita hon- um þá sönnu innri hamingju, sem gefur lífinu varan- legt gildi. Jón á Kópsvatni var sannur fulltrúi ungmennafélags- hreyfingarinnar, eins og hún var og hét á blómaskeiði sínu. Hugsjónir þær, sem hún barðist fyrir, voru honum hjartans mál. Það fer því vel á því, að Skinfaxi, rit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.