Skinfaxi - 01.11.1956, Blaðsíða 58
154
SKINFAXI
vél var notuð og við liana Ferguson-vagn, sem mun vera þvi
nær óþekktur hér á landi og eins tengikrókurinn á vélinni.
Það má telja furðulcgt, að innflytjendur vélarinnar skuli
ekki láta krókinn fylgja hverri vél, svo sjálfsagður er hann
að dómi granna okkar á Norðurlöndum.
Akbrautin var og nokkuð breytt frá þvi, sem liér hefur
verið, en okkur var vel kunnugt um það og kom okkur þvi
ekki á óvart. Þessa akbraut munum við verða að taka upp hér.
Tii fararinnar var stofnað fyrst og fremst til þess að kynn-
ast því, hvernig starfsemin gengi á Norðurlöndunum, og að
vita, hvernig við værum á vegi stödd. V-ar förin okkur mjög
lærdómsrík. Við sáurn, að við stöndum langt að baki hinum
þjóðunum hvað uppbyggingu þessarar starfsemi viðkemur.
Allar liinar þjóðirnar hafa marga menn, sem eingöngu lielga
sig starfsíþróttunum og fá til þess ríflegan ríkisstyrk. Hér
höfum við enga starfskrafta á þessu sviði enn þá. Einn mað-
ur, sem aðeins getur eitt sumarleyfi sinu að nokkru til leið-
beininga í starfsíþróttunum getur aldrei náð langt i þvi að
sk'.ipa hér mikla starfsemi. En ég tel, að þegar hafi skapazt
góður jarðvegur fyrir starfsíþróttir lijá ungmennafélögum
víðsvegar um land og byggja megi upp öfluga starfsemi á
þeim grundvelli, sérstaklega meðal barna og unglinga, ef
nægir starlskraftar fást til þess að halda starfseminni áfram.
Fundur leiðbeinenda.
í sambandi við keppnina voru haldnir nokkrir fundir leið-
beinenda og dómara i starfsíþróttum. Var þar ákveðið að
liafa næsta meistaramót í starfsíþróttum að tveim árum liðn-
um i Danmörku. Enn fremur var ákveðið að keppt skyldi i
tveim aldursflokkum. Yngri flokkur, þar sem hámarks ald-
ur er 19 ár og eldri flokkur frá 20 til 29 ára.
Þá var rætt mikið um samræmingu keppnisreglna og keppn-
isgreina. Ekki voru endanlegar ákvarðanir teknar um keppn-
isgreinar á næsta móti, en það verður gert síðar í vetur af
stjórn samtakanna.
Keppnisgreinar eru nokkuð mismunandi í löndunum eftir
því hvaða greinar eru taldar mikilvægastar fyrir þjóðina.
Unglinga- og barnastarfsíþróttir þær, scm kenndar eru við
4-H félögin, eru i örum vexti livarvetna á Norðurlöndum og
svo þarf einnig að verða hjá okkur.
Stefán Ól. Jónsson.