Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1956, Page 7

Skinfaxi - 01.11.1956, Page 7
SKINFAXI 103 bíði tjón við það. í Danmörku eru 2 sambönd. Er starfsemi þeirra viða góð, þau eru á mjög traustum grunni. Þarna voru einnig 14 þátttakendur frá Suður-Slés- vík. Þar er þróttmikill félagsskapur, sem heldur uppi harðri þjóðernisbaráttu gegn þýzkum áhrifum. Var mjög ánægjulegt að kynnast þeim. Þeir hafa ávallt sýnt málefnum íslands góðvild og skilning. Ung- mennafélagar í Suður-Slésvik liafa mikinn áhuga á því að halda sem mestum tengslum við ungmenna- félaga á Norðurlöndum. Eins og fyrr segir, voru þarna um 110 þátltakendur. Finnarnir voru fjölmennastir, um 40. Var mikil ánægja með, bvað við komum marg- ir frá Islandi, enda áhugi mikill á okkar málefnum, eins og fyrr segir. Auk fyrirlestra og frásagna frá félagsstarfinu voru þarna ýmis konar skemmtiatriði, einnig var farið i Blak.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.