Skinfaxi - 01.11.1956, Blaðsíða 9
SKINFAXI
105
vélum námanna á hverjum tima. Var fróðlegt að
fylgjast með tækniþróun i vélakosti. Á heimleiðinni
frá Falun komum við við i „Ornastugan“ sem er hús,
er Gúslaf Vasa konungur svaf í um nótt, þegar hann
var á flótta sínum í sænsku dölunum. Skíðamaður
kom um nóttina 50 km. leið og bar konungi njósnir
og gat hann borgið sér. Til minningar um þann at-
hurð er hin árlega „Vasa“ ganga skíðamanna í Sví-
þjóð, stóralburður i vetraríþróttum Norðurlanda.
Mikið var leikið blak (Vollybol), og var gaman að
sjá, hve niikilli tækni Svíarnir og Finnarnir réðu
yfir. Þessi skemmtilegi leikur var okkur svo til
óþekktur.
Víst er um það, að það er mjög lærdómsrikt og
ánægjulegt fyrir islenzka ungmennafélaga að kynnast
félögum okkur á Norðurlöndunum og félagsstarfi
þelrra. Ég vil hvetja alla ungmennafélaga, sem hafa
á því nokkur tök, að sækja næsta mót. Það er vissu-
lega verjandi tíma og fjármagni til þess. Það er ekki
liægt að gefa nákvæmlega upp kostnaðinn við ferð
okkar á mótið, þar sem við ferðuðmst á eftir í eina
viku um Danmörk og til Þýzkalands, en ferðakostn-
aður alls, fargjöld og uppihald í 2 vikur mun hafa
verið um 5000 kr. Nú ber að hafa það í huga varð-
andi næsta mót, að það verður i Noregi, sennilega i
Þrándheimi, og verður miklu ódýrara að fara þang-
að, sérstaklega ef hægt verður að fá henluga skips-
ferð. Sljórn U.M.F.Í. mun gera það, sem i hennar
valdi er, til að undirbúa og vinna að því, að þátltak-
endur frá okkur verði á næsta móti, og ekki þarf
að efa, að gott verður að heimsækja frændur okkar
Norðmenn.
Að kvöldi föstudagsins 20. júlí var mótinu slitið.
Voru þar flutt ávörp og' gestgjöfunum, Svíunum, af-
hentar smá-gjafir. Síðan skildust leiðir i býti næsta