Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 10
*
Til ungmennafélaga Islands
Hér kemur inngangsgrein í fyrsta tölublaði Skinfaxa
fyrir 80 árum. Helgi Valtýsson ritar þessi orö,
hvatningu til ungmennafélaga
„Ungmennafélögin, sem
sprottið hafa út um land alt á
skömmum tíma, starfa öll í þessa
átt á einvern hátt. Áhuginn er
heitur. Viljinn góður. Mátturinn
lítill. Samtökin erfið. - -
- - Nú vill „Skinfaxi” lyfta
undir bagga með ungm.félögunum
og reyna af öllum mætti að bæta úr
því, sem mest er ábótavant í starfi
þeirra. Tengja saman félögin í
sterka starfandi heild. Hvetja og
stæla dug og afl til dáða. Vekja
samúð og samhug og opna augun
fyrir öllu því, sem gott er og
fagurt. - Glæða sumarhug
æskunnar. - Eigi mun af veita, því
ísöld úlfúðar og sundurlyndis nístir
nú land og þjóð. - -
„Skinfaxi” heitir hann, og sól
og sumaryl vill hann breiða yfir
land alt. Bera kveðju milli
ungm.félaganna. Og færa þeim
fréttir af starfi voru víðsvegar um
land. -
Hann vill flytja þeim hvatarorð
og leiðbeiningar um starf þeirra.
Auðfúsugestur vill hann verða
hverju ungm.félagi, og hverju
heimili, þar sem efnileg æska er
fyrir.
Merki ungm.félaganna vill
hann bera hátt. Svo þau gleymi
eigi takmarki sínu né missi sjónar
á því: að vekja og göfga ísl.
æskulýð, styrkja hann og stæla.
Starfsþráin er vöknuð sterk og
heit. Mörg ungmennafélög starfa
kappsamlega á fleiri vegu.
Skógræktar- og íþróttaáhugi er
alment að vakna og hefir þroskast
stórkostlega á skömmum tíma. í
þeim efnum hafa ungm.félögin
myndað ný tímamót í sögu vorri.
En áhugi um andlega þroskun,
göfgun og gœðing! Hvern veg er
honumfarið! Hannerþó
undirstaðan. Hann er jarðvegur sá
Jónas Jónsson
Helgi Valtýsson
Guðmundur Hjaltason
er alt gott og göfugt ungm.starf á
að spretta úr sem eðlileg afleiðing
góðrar ræktunar.
Á þessu atriði þurfa allir góðir
ungmennafélagar að hafa vakandi
auga, þareð vér stöndum hér
miklum mun ver að vígi en
grannþjóðir vorar.
Þær eiga hinn velræktaða
jarðveg og hið hlýja loft, er
ungm.félagshreyfingin hefir þrifist
svo vel í. Oss vantar þetta
algerlega. Oss vantar gróðrarmagn
það og lífsloft til framþróunar
æsku vorri, sem lýðháskólarnir
hafa skapað hjá grannþjóðum
vorum.
Þess vegna er og verður
ungmennafélagsstafið svo erfitt
hér á landi!
Vér eruin sprotnir upp úr
hrjóstrugum óræktarmóum
íslenskrar alþýðumentunar, og
nístandi norðanvindar afskifta- og
skilningsleysis í þeim efnum, er
lúta að þroskun og ræktun sálar og
líkama æskulýðsins, hafa leikið
oss svo hart, að margir bíða þess
aldrei bætur.
Oss má því eigi gleymast, að
starf vort er: alvarlegt og erfitt
starf, er ganga þarf að betur og
rækilegar en öllum öðrum störfum,
ef árangurinn á að verða góður og
blessun á að fylgja. -
Ungmennafélagsstarfið þarf að
eiga hug og hjarta þeirra manna, er
ætla sér - eða eiga - að vinna því
gagn.
Og auk þess þarf hver félagi og
hvert félag að starfa með áhuga og
þolgæði og gefast eigi upp, þótt
móti blási.
Merki vort blasir við
heiðskíran himin. Það, er vér
sjálfir höfum kjörið oss. Og
táknað með tveim orðum:
Islandi alt!
H. V."
10
Skinfaxi