Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 47
Þrautirýmis konar eruvinsœlar á leikjcmámskeiðunum.
það dugleg á æfingum að ég fékk að
keppa á Meistaramóti íslands suður
áSelfossi. Viðfórumírútuogókum
suður allan föstudaginn. Ég var orðin
alveg ótrúlega þreytt þegar við
komum til Selfoss. Á mótinu gekk
mér vel í sumu en ekki eins vel í
öðru. Ég kom ekki heim með neina
verðlaunapeninga en nokkrir
krakkanna fengu peninga. Á
heimleiðinni gistum við í Borgarfirði
og fórum í sund, það var miklu betra
en að aka alla leið.
En eins og þú veist amma, þá er
það allra skemmtilegasta alltaf í ágúst
enþaðeraðkeppaíÁsbyrgi. Égveit
að þú hefur aldrei komið þangað svo
ég ætla að lýsa staðnum svol ítið fyrir
þér. Allt íkringum völlinn erskógur
og ægilega háir klettar. Þar er alltaf
gott veður, sama hvernig veðrið er
annars staðar. Sumir segja að þetta
sé alveg paradís. (Hvað sem það nú
er).
Landhreinsun
í Lundi.
íþróttamótin í Ashyrgi eru einn helsti hápunktur sumarsins í N-Þing.
Við vorum búin að hlakka svo
ofsalega til í allt sumar. Þar er víst
keppt á hverju ári og ég held að allir
í sýslunni, sem hafa keppt í íþróttum,
hafa keppt þar. Fullorðna fólkið er
allavega alltaf að segja skemmtilegar
sögur þaðan. Þama hitti ég nærri
alla krakkana sem ég kynntist á
íþrótta- og leikjanámskeiðinu og
keppti við þau og marga fleiri. Mér
gekk bara nokkuð vel, ég fékk eitt
gull ogeittbrons. Þú verður bara að
koma norður næsta sumar og horfa á
mig keppa í Ásbyrgi, ég er strax
farin að hlakka til. En nú verð ég að
fara að hætta þessu rausi, ég bið
kærlega að heilsa afa.
Ein úr N-Þing.
Skinfaxi
47