Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 34
Afmœlinu fagnað
Þann 5. maí var haldið upp á
80 'æara afmælið fyrir böm og
unglinga. Mættu yngri börnin en
12 ára frá k. 17 - 20. Haldið var
uppi fjölbreyttri dagskrá með
leikjum, leikritum,
spumingakeppni, gátum,
bröndurum og fleira. síðan fengu
börnin sér að drekka og gæddu sér
á kræsingum UMFA kvenna. Að
lokum var stiginn dans. Allir
skemmtu sér hið besta en um 130
böm mættu.
Klukkan 21 hófst síðan dagskrá
fyrir unglingana með ávarpi
formanns, Guðbjargar
Pétursdóttur. Síðan voru fluttar
ræður frá fulltrúum allra deilda
félagsins, þ.e. badminton, sund,
frjálsar, knattspyma og kandbolti.
Hver deild veitti nokkrum félögum
úr sinni deild viðurkenningu.
Næst var komið að tískusýningu
sem drengir úr knattspyrnudeild
sáu um. Þeir sýndu glæsilega takta
við mikla hrifningu áhorfenda. að
þessu loknu fengu allir sér
hressingu og skemmtuninni lauk
síðan með heljarmiklum dansleik
sem stóð til klukkan eitt um
nóttina. Um 130 unglingar mættu
á skemmtunina.
Þann 11. apríl var aftur á móti
haldin afmælishátíð íHlégarði. Hún
hófst kl. 20 og bauð stjóm UMFA
gesti velkomna við innganginn en
þeir voru tæplega 140 manns.
Sal urinn var skrey ttur sögulegum
munum úr 80 ára sögu félagsins og
gafst gestum kostur á að skoða
munina. Formaður félagsins
Guðbjörg Pétursdóttir setti
samkomuna og bauð gesti velkomna
en því næst tók veislustjórinn Rúnar
Björgvinsson við stjórninni. Hann
kynnti „Glefsur ú sögu félagsins",
sem Páll Aðalsteinsson flutti. Á
eftir fróðlegu erindi Páls var komið
að því að heiðra nokkra félaga.
Grímur Norðdahl var hei ðraður og
Grímur Norðdahl,
gamall
Aftureldingarmaður,
var heiðraður
sérstaklega, m.a. af
Pálma Gíslasyni,
formanni UMFI en
Grímur hefur í
gegnum tíðina unnið
mikið staiffyrir
ungmennafélögin.
fékk hann gullmerki UMFA en það
er fyrsta gullmerkið sem félaga er
veitt. Grímur gaf félaginu
innrammaða vísu eftir sig og 25
þúsund krónur. Næst var komið að
kaffi en borðin svignuðu undan
glæsilegurm veitingum kvenn í
UMA. Eftir kaffið var gengið til
dagsrkár. Fyrstur gesta ávarpaði
Pálmi Gíslason, formaður UMFI,
gesti. Hann gaf félaginu 3 skeið-
klukkur af fullkomnustu gerð að
gjöf, einnig veitti hann Grími
Norðdahl viðurkenningu fyrir vel
unninstörfí 12árhjáUMFÍ. Hannes
Þ. Sigurrðsson,, varaforseti ISI,
ávarpðaði einnig samkomuna. Jón
Guðmundsson á Reykjum, rifjaði
upp gamlar minningar og gaf
félaginu my ndir af fyrstu ferð UMFA
á hestum á Þingvelli.
Ingólfur Árnason, rafvirkja-
meistri og fyrrverandi formaður
UMFA var einn þeirra sem komu í
ræðustóláafmælinu. Hannminntist
á lista yfir sérstaka styrktarfélaga en
þessi listi hefur legið niðri í nokkur
ár. Að loknu máli Ingólfs var þessi
listi endurvakinn og skrifuðu
fjölmargir samkomugesta sig á hann.
Ræðumenn voru fleiri og
fjölmargar aðrar gjafir bárust
félaginu á þessu merkisafmæli sem
of langt mál væri að telja upp hér. Á
dagskrá kvöldsins var einnig söngur
sönghópsins „Eins og átta". Fríða
Rún Þórðardóttir, frjálsíþróttamaður
, fþróttamaður ársins hjá félaginu,
frjálsíþróttaþjálfari félagsins og
leiðbeinandi skokkhóps í Mosfellsb,
flutti fróðlegt erindi um starf og
hlutverk félagsins í dag.
Næst var komið að afheningu
starfsviðurkenningar sem er í formi
sérstaks bikars. Guðbjörg Péturs-
dóttir, formaður UMFA, tilkynnti
að sunddeild UMFA hlyti bikarinn í
ár en sunddeildin hefur sýnt miklar
framfarir undanfarið. Bikarinn er
farandbikar sem sú deild innan
félagsins hlýtur sem hvað best starfar
á hverju ári.
Guðbjörg formaður sleit síðan
samkomunni með nokkrum orðum
um miðnætti.
34
Skinfaxi