Skinfaxi - 01.12.1989, Page 52
varðar íþróttir og útivist. Einnig að
ungmennafélög og sambönd ættu
þama vísan stað fyrir ýmsa starfsemi.
Þar sem Iþróttamiðstöð íslands á
Laugarvatni er skammt frá eru alls
ekki hugmyndir uppi um að í
Þrastaskógi verði lögð stund á
keppnisíþróttir.
Lögð var rík áhersla á að
starfsemin sem þarna fer fram standi
undir rekstri svæðisins. Einnig var
lögð áhersla áað náttúrufar svæðisins
yrði fyrir sem minnstu raski svo þeir
sem þarna koma í framtíðinni fái
notið þeirrar náttúruperlu sem
Þrastaskógur er í dag.
Það var áberandi í hugmyndum
þátttakenda í keppnninni að svæðinu
var skipt niður í ákveðin
athafnasvæði. Á fremsta hluta
svæðisins, við Sogsbrú, gerðu flestir
ráð fyrir nokkrum endurbótum á
þjónustumiðstöð Þrastaskógar sem
þjónaði bæði þeirri starfsemi sem
fer fram í skóginum, sumar-
bústaðalöndunum í nágrenninu og
þeirri miklu umferð sem er um
Grímsnes allt árið.
Það var mat dómnefndar að
náttúrufar suðursvæðis skyldi hald-
ast sem mest óbreytt. Aðalupp-
bygging skyldi eiga sér stað á
miðsvæði, kringum íþróttavöllinn í
skóginumogánorðursvæðinu. Næst
Álftavatni skyldi vera möguleiki á
byggingu sumarhúsa, tjaldsvæða
og annarar starfsemi sem til félli.
Greinilegt var að mikil vinna
hafði verið lögð í þær tillögur sem
bárust. Ohætt er að fullyrða að
hugmyndasamkeppnin hefur sparað
UMFI miklar fjárhæðir í formi
forvinnu á svæðinu. Hugmynda-
samkeppni sem þessi skilar fleiri
hugmyndum um hvað er mögulegt á
svæðinu; efeinnverktakihefði verið
fenginn til að vinna verkið er ljóst,
miðað við þær tillögur sem bárust,
að sá kostnaður hefði ekki orðið
minni en samkeppni þessi.
Fulltrúar UMFI í dómnefndinni
voru þeir Sæmundur Runólfsson,
Finnur Ingólfsson, Hafsteinn Pálsson
og Egill Heiðar Gíslason sem var
ritari nefndarinnar.
Rekstrargrundvöllur
Almenn ánægja var á þinginu
með þá vinnu sem hafði verið lögð í
að skipuleggja þessa dýrmætu eign
ungmennafélaganna. Þingheimur
samþykkti samhljóða að „skipa
nefnd til að vinna frekar úr þeim
hugmyndum sem fram komu í
hugmyndasamkeppninni. Jafnframt
skal nefndin kanna rekstrar-
grundvöll svæðisins ásamt því að
gera tillögur um fyrstu framkvæmdir.
Nefndin skal Ijúka störfum fyrir
næsta Sambandsráðsfund UMFÍ.”
Hugmyndasamkeppnin er aðeins
fyrsta skrefið í átt til þess að
Þrastaskógur verði nýttur um
ókomna framtíð á þann hátt sem
ungmennafélagar hafa verið að ræða
um mörg undanfarin ár. Ljóst er að
nefndarinnar bíður mikið og
vandasamt verkefni. Mjög
mikilvægt er að þær framkvæmdir
sem þarna verða unnar í framtíðinni
verði gerðar af fagmennsku og
myndarskap. Samkeppnin er lítils
virði fyrir framtíð Þrastaskógar og
ungmennafélagshreyfingarinnar ef
ekki verður staðið að
uppbyggingunni með þessum hætti.
S.R. og IH
Þrastalundur, þjónustumiðstöðin við Þrastaskóg. Ljóst er að þarna þarfað
gera nokkrar endurbætur fljótlega en ekki hefur verið tekin ákvörðun um
hverjarþœr verða.
I Þrastaskógi er
minnisvarði um
Aðalstein
Sigmundsson,
fyrrverandiformann
UMFÍ, ritstjóra
Skinfaxa og
skógarvörð í
Þrastaskógi í tugi
ára.
52
Skinfaxi