Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 36
Sigurður Greipsson
Skólastjóri íþróttaskólans í Haukadal.
Formaöur HSK í 45 ár og stjórnarmaður í stjórn ÍSÍ
Sigurður Greipsson.
Árið 1925 fór flokkur
glímumanna frá Ungmennafélagi
Islands sýningarferð til Noregs.
Stjómandi var Jón Þorsteinsson,
glímukennari. Sigurður Greipsson
var meðal þátttakenda í þeirri ferð.
Árið 1926 tók Sigurður Greipsson
þátt í glímusýningarferð með Jóni
Þorsteinssyni glímukennara,
stjómanda flokksins. Ferðast var
um Danmörku á vegum Niels Buch
í Ollerup og var glíma sýnd á 30
stöðum. ÞámágetaþessaðSigurður
ferðaðist víða um land á vegum
UMFI og veitti fræðslu um íþróttir
og bindindismál.
Ungur að árum festi Sigurður
Sigurður Greipsson var
fæddur í Haukadal í
Biskupstungum 22. ágúst
1897, sonur Greips bónda
Sigurðssonar í Haukadal og
Katrínar Guðmundsdóttur frá
Stóra-FljótiíBiskupstungum,
en forfeður Sigurðar hafa um
langan aldur búið í Haukadal.
Glímuferillinn
Veturinn 1920 sigldi Sigurður til
Noregs og dvaldist þar áralangt á
lýðháskólanum í Voss og síðar við
landbúnaðarsstörf.
íþróttaskólinn
Ótalinn er sá þáttur í ævistarfi
Sigurðarsemhannlagði hvaðmesta
orku í, en það var íþróttaskólinn í
Haukadal sem hann byggði upp að
Formaður
í 45 ár
Sigurður hneigðist
snemma að félags- og
íþróttamálumoglétþau mjög
til sín taka. Varla er hægt að
minnast á sögu Héraðs-
sambandsins Skarphéðins án
þess að geta Sigurðar Greips-
sonar, en hann var formaður
HSK í 45 ár, 1921-1966, er
hann hætti formennsku að
eigin ósk, og var þá jafnframt
kosinn heiðursformaður
sambandsins. I stjórn
Ungmennafélags Islands var
hann um skeið svo og í stjórn
íþróttasambands íslands í
mörg ár. Þetta eitt sýnir
hversu Sigurður lagði mikið
af mörkum til félagsmála og til að
efla uppvaxandi kynslóð í landinu.
Sigurður Greipsson gekk í
Flensborgarskólann og útskrifaðist
gagnfræðingur vorið 1916. Um
haustið 1916 fór Sigurður á
búnaðarskólann á Hólum. í báðum
þessum skólum var mikið glímt og
fékkSigurðurgóðaæfinguíglímunni
og undirbúning undir þátttöku í
glímukeppni.
tryggð við þjóðaríþrótt okkar,
íslensku glímuna, og skildi
straxgildihennar. Hannmun
frá barnæsku hafa iðkað
gl ímuna af alúð og kostgæfni
og á þann hátt fengið þá
reynslu og þekkingu á
glímunni sem síðar kom
honum að góðu haldi við
rómaða íþrótta- og
glímukennslu í skólanum í
Haukadal.
Sigurður keppti fyrst í
glímu 18 ára gamall á
héraðsmótinu í Þjórsártúni
1916. Þá sigraði Sighvatur
Andrésson í Hemlu, en
Sigurður fékk verðlaun fyrir
fagra og góða glímu.
Sigurður varð glímukappi
Islands 1922 og svo fjögur
næstuárintil 1927. Hannvar
kappsamur,fimurog snarpur,
hið mesta karlmenni að
burðum og hinn öruggasti til
sóknar og vamar. Helstu
glímubrögð hans voru
hælkrókur aftur fyrir báða
fætur, leggjarbragð og
sniðglíma á lofti. Ég minnist
þess hversu mjög ég dáðist
að Sigurði fyrst þegar ég sá hann
glíma. Síðarglímdi ég við hann sem
kennara minn og er sannfærður um
að hann hefur verið afburðafrækinn
glímumaður. Hann var geðfelldur
glímumaður þeim sem skildu hann,
- en erfiður og skæður sökum
orkunnar og hugvitsins, sem hann
sýndi íhverri raun. Þátttakahans var
einlæg og viljinn sterkur.
36
Skinfaxi