Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 58
Sundmót Austurlands
Frá Austurlandsmótinu í sundi síðasta sumar á Neskaupstað. Sett voru 10 Austurlandsmet í unglingaflokki,
í blíðskaparveðri.
Sundmót Austurlands fór fram á
Norðfirði í blíðskaparveðri dagana
26. og27.ágústí sumar. Þátttakafrá
félögum innan UIA varfremurdræm
eða aðeins frá 3 félögum og er það
íhugunarefni fyrir forráðamenn
sundmála á Austurlandi hvernig þeir
gætu efltþessagrein innan héraðsins.
Nú eru víðar laugar á Austurlandi en
á þessum þremur stöðum og því
hægurvandi aðeinbeitaséraðmeira
sundlífi þar, þóerfiðaraðstæðurséu
ogopnunartímistuttur. Tökumdæmi
eins og Egilsstaði, Eiða, Vopnafjörð,
Fáskrúðsfjörð, Djúpavog, Stöðvar-
fjörð ogEskifjörð. Aöllumþessum
stöðum eru laugar og væri ekki úr
vegi þann stutta tíma sem þær eru
opnar, að huga að meira sundlífi þar
fyriráhugasamakrakka. Enginnvafi
er á að þau myndu vilja vera með ef
ýtt væri á starfsemina og þeim gefinn
kostur á skipulögðum æfingum þó í
litlum mæli væri til að byrja með.
10 Austurlandsmet
Eins og áður sagði voru
þátttakendur aðeins frá Þrótti
Neskaupsstað, Huginn, Seyðisfirði
og frá Val, Reyðarfirði. Krakkamir
frá öllum þessum stöðum stóðu sig
með mikilli prýði, og var einkennandi
hversu vel þau syntu og ógilt sund
kom varla fyrir, en urðu aðeins
vegna smá klaufaskapar. Er
greinilegt að leiðbeinendur þeirra
hafa lagt ríka áherslu á gott sund og
löglegt.
Alls var keppt í 37 greinum og
voru um 200 skráningar með um 65
þátttakendur. Sett voru 10
Austurlandsmet í unglingaflokkum.
Emil Gunnarsson, Þrótti bætti 100
m bringusund pilta um 3 sek. eða úr
1:22,2 í 1:19,2 mín. Nína Ýr
Guðmundsdóttir.Huginn settimetí
50 m baksundi meyja á 43,3 sek. og
í 50 m baksundi hnáta synti Ellen
Rós Baldvinsdóttir, Val á 56,3 sek.
Einnig setti Ellen Rós met í 50 m
flugsundi á tímanum 55,3 og bætti
svo enn um betur og sigraði í 50 m
skriðsundinu á nýju meti 41,7 sek.
58
Skinfaxi