Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1989, Síða 11

Skinfaxi - 01.12.1989, Síða 11
Fyrstu arin Fyrsta myndin sem birtist í Skinfaxa var af norska skáldinu Björnstjerne BjörnssonJO. tbl.l .árgangs. Hún erkannski tilvitnis umþá áherslu sem œtíð var lögð á bókmentir lengi vel í tímaritinu. í þessu þessu afmælisblaði er birtur fjöldi greina úr fyrri blöðum Skinfaxa. Fyrst og fremst eru birtar greinar frá fyrstu árum blaðsins. Af löngum ferli blaðsins er úr mörgu að velja en þessi kostur var valinn af einni ástæðu sérstaklega. Fyrir nútímalesendum eru fyrstu áratugir aldarinnar líkast til í órafjarlægð. En 80 ár er ekki langur tími. Og þegar þær greinar eru lesnar sem hér birtast verður mönnum að öllum líkindum Ijóst hvað það er sem má ekki gleymast frá þessari kynslóð fólks, sem oft er nefnd „aldamótakynslóðin". Það hefur gerst allt of oft undanfarin ár að þetta hugtak er nefnt í skoplegu samhengi. En fyrir utan dugnað og kjark hafði þessi kynslóð þann hugsjónaeld og bjartsýni virðist fjarverandi í dag. Það er eitt af hlutverkum sagnfræðinga í dag að birta nútímamönnum þessa bjartsýni og við hvaða bágbornu aðstæður hún sprettur fram. Sjálfsagt gera ekki margir sér nógu vel grein fyrir því að þeir menn sem höfðu á þessum tíma skoðað sig um í heiminum eyddu allnokkrum tíma í að brýna fyrir almenningi að þvo sér einu sinni í viku að minnsta kosti! Þessi kynslóð braust undan yfirráðum Dana og kom íslandi inn í 20. öldina. Við skulum því minnast aldamótakynslóðarinnar með þeirri virðingu sem hún á skilið. Og þess vegna birtist hér mikið af greinum frá fyrstu árum Skinfaxa. IH Moli úr gömlum Skinfaxa „Úr Svarvaðardal er skrifað: Andlegt líf er hér með fjörugra móti í vetur. Stafar það mest af forgöngu ungmennafélagsins, sem hér hefir haldið uppi öflugri starfsemi, á ýmsum sviðum, í mörg ár. Og til þess að fá enn meiri byr í seglin hefir verið stofnað annapð ungmennafélag í framsveitinni, og spá ýmsir að milli þessara tveggja félaga" Skinfaxi 11

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.