Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1989, Side 35

Skinfaxi - 01.12.1989, Side 35
Utbreiðið Skinfaxa Þessi grein er birt áriö 1911, þegar Skinfaxi er tveggja ára. Skinfaxi er þarna í mikilli uppsveiflu, Jónas Jónsson er nýlega tekinn viö stjórninni hugurinn er mikill og skilaboðin eru klassísk. „Kaupendum Skinfaxa hefir fjölgað um þriðjung síðustu mánuðina. En þeim þarf að fjölga enn meir, ekki vegna blaðsins sjálfs, heldur vegna æskunnar í landinu. Ungmennafélögin og blöð þeirra keppa um mannssálir við sundrungarseggina í landinu. Okkur sýnist, að besta ráðið til sannra framfara sé að vinna sjálfir að því að bæta lífið í landinu. Þessvegna útbreiðum við góðar bækur, græðum tré kring um hýbýli okkar, æfum íþróttir, reisum samkomuhús, stofnum heyforðabúr, ryðjum vegi o. s. frv. Keppinautar okkar fara aðra leið. Þeir tala. Þeir tala um samninga og samningsrof, um ráðherraball, um lög og lagabreytingar, um stöðu íslands í heiminum. Og um það að fá völd fyrir sinn flokk og ráða á þingi, í bæjarstjómum, skattanefndum, sýslunefndum og öllum þeim öðrum nefndum, sem til eru með þjóðinni. Við Ungmennafélagar trúum Jónas Jónsson segir hér „keppinauta" ungmennafélaganna fara vondar leiðir; tala um samningsrof ráðherraböll ogfleira.. En fyrst og fremst tala. statt og stöðugt, að okkar aðferð sé betri og göfugri. Þessvegna viljum við fá sem flesta í baráttuna með okkur. Og þeir sem lesa Skinfaxa, Tilkynning í Skinfaxa á fyrstu árum blaðsins Allmargar ritgerðir hafa verið sendar Skinfaxa, sem veröa aö bíöa enn sökum rúmleysis. Eru höfundar beönir velvirðingar á þeim óhjákvæmilega drætti. fá að heyra um okkar stefnu og okkar athafnir. Eitthið sjálfsagðasta verk allr starfandi félagsmanna er því að útbreiða blaðið sem mest þeir mega." Grettistaki lyft! Þessi mynd hirtist reyndar ekki í Skinfaxa 1911 með þessari grein en hún var notuð síðar til að herða menn í að úthreiða og bceta hlaðið. Auglýsing. 1. og 5. tölublað af I. ári og 1. - 8. bl. af III. ári Skinfaxa eru keypt háu veröi á afgreiðslu blaðsins. Skinfaxi var þrautlesinn á þessum árum, svo ntikið að útgefendur voru í vandræðum með eigin eintök. Þessi auglýsing birtist í blaðinu árið 1914. Skinfaxi 35

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.