Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1989, Síða 41

Skinfaxi - 01.12.1989, Síða 41
„Ofsalega gaman" Ungar fimleikastúlkur úr Völsungi frá Húsavík sýndu listir sínar á kynningardeginum á Laugum Hér eru þœr dömurnar úr íþróttafélaginu Völsungi á Húsavík,fimleikadeild. Þœr gœtu alveg hugsað sér að komast í Mosfellshœ í júlí nœstkomandi, á Landsmót UMFÍ. Stúlkumar voru 14 talsins og sýndu stökk á dýnu og trampólíni. Sú sem hafði helst orð fyrir þeim heitir og sagði hún að þær væru flestar búnar að æfa í þrjá vetur. Aðspurð um þátttöku á Landsmótið í Mosfellsbæ sagði hún að einhverjar þeirra færu. „Þjálfarinn okkar er búinn að vera að tala um það en það er ekki búið að ákveða hverjar það verða. Þaðkemuríljós. Enþettaer ofsalega gaman og okkur hefur farið mikið fram undanfarið. Það kom þjálfari frá Fimleikasambandi Þœr stóðust ekki mátið að fá að stilla aðeins upp fyrir Ijósmyndara, Völsungsstúlkurnar. íslands til Húsavíkur og hélt námskeið hjá okkur. Það var mjög skemmtilegt en líka erfitt. Við vorum á 3 til 5 tíma æfingum hjá honum. Þetta var í 3 daga og við vorum í tíu tíma á æfingum hjá honum í heild. Venjulega erum við í einn klukkutímaíeinu. Þaðersvolítiðaf tímum sem hægt er að fá í íþróttahúsinu á Húsavík. Við erum þrisvar í viku með æfingu, klukkutíma í einu. Það var ein stelpa úr Reykjavík sem er í fimleikum sem sagði að hún æfí sex sinnum í viku, þrjá klukkutíma í einu.” Stúlkumar sögðust svo til ekkert hafa keppt. Við höfum einu sinni keppt á innanfélagsmóti en ekkert meir.” Þrátt fyrir litla reynslu í fimleikunum og fáarkeppnir semmtu þær sér greinilega vel og vildu ólmar stilla upp fyir Skinfaxa. Myndimar sýna það. 1H Skinfaxi 41

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.