Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 44

Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 44
Þurfum “heiðursmannasamkomulag” „Við hljótum að geta sett okkur einhverjar vinnureglur um samskipti milli íþróttafélaga. Það er orðin mikilþöifá slíku", segir Sævar Kristjánsson úr Eilífi í Mývatnssveit. „Við missum hvern krakkann af öörum úr Eilífi í Mývatnssveit og alfariö úr íþróttinni þegar þeir eru orðnir 14 ára og fara í eldri bekki grunnskóla og framhaldsskóla. Þetta er mjög vont ástand sem þarf aö laga hiö fyrsta.” Sá sem hér talar er Sævar Kristjánsson úr Eilífi í Mývatnssveit en hann er einn af þeim sem hafa unnið svo gott starf í sundíþróttinni innan HSÞ. Frá þessu starfi var einmitt sagt í síðasta blaði Skinfaxa. Sævar segir að þetta ástand sé ekki vegna þess að krakkamir séu búnir að missa áhugann á að synda. Þvert á móti. Þrír efnilegustu farnir „Þeir fara til Akureyrar og víðar”, segir Sævar, „og þá er það oft sett sem skilyrði að þeir gangi yfir í viðkomandi félag, vilji þau æfa þar sund. Astandið er nú þannig að þrír af okkar efnilegustu sundmönnum æfa ekki með okkur lengur. Einn þeirra er genginn yfir í Óðinn, Akureyri því hann er þar í skóla á veturna og tveir eru hættir að æfa sund. Þeir sáu sér hreinlega ekki fært að standa í þessu stappi. Hvað varðar sundfélagið Óðinn á Akureyri hefur þetta verið heldur vandræðalegt og leiðinlegt því við höfum að öðm leyti áttgóð og jákvæð samskipti við það ágæta fólk sem þar starfar. En við höfum reynt samningaleiðina, í tvo mánuði, síðastliðið haust reyndum við á fá þá til að leyfa okkar fólki að æfa innan Óðins meðan þeir væru á Akureyri. En þeir Óðinsmenn hafa ekki viljað gefasigmeðþettaskilyrði. Reyndar byrjaði þetta fyrir einu ári. Þá vom tveir krakkar frá okkur á Akureyri. Eftir nokkrar umræður leyfðu þeir tvímenningunum að æfa með án þess að þeir skiptu um félag. En þá voru þeir settir í yngri flokk. Það sættu strákamir sig ekki við, að æfa með krökkum sem voru langt fyrir neðan þeirra getustig. Þeir hættu báðir að æfa sund en reyndar er annar þeirra farinn að æfa aftur, genginn í Sundfélag Hafnarfjarðar og farinn að æfa með þeim því hann er nýlega fluttur til Hafnarfjarðar.” Vilja keppa með sínu félagi Sævari og félögum finnst það súrt í broti að vera búnir að ala upp gott sundfólk sem þau missa síðan úr félaginu um leið og það fer í skóla annars staðar. „Krakkarnir koma síðan í sína heimahaga yfir sumarið og vilja auðvitað fá að keppa með sínu félagi en fá það ekki vegna þessarar stöðu mála. Nú vil ég aftur taka það skýrt fram að þetta er ekki einskorðað við sundfélagið Óðinn á Akureyri. Hér er aðeins um dæmi að ræða. Þar starfar ágætt fólk sem við höfum átt gott samstarf við. Það sem ég vil leggja áherslu á er að íþrótta- hreyfinginþarfað setjaséreinhverjar starfsreglur hvað varðar svona mál. Það er skiljanleg sú röksemd hjá t.d. Óðinsmönnum, að það sé einkennileg staða að vera að veita einstaklingi úr öðru félagi aðgang að æfingu ogþjálfarahjáþeimogstanda síðan frammi fyrir því að sami einstaklingur hirði jafnvel sigur af þeirra fólki á einhverju mótinu. En mér finnst að við hljótum að geta sett okkur einhverjar vinnureglur um þetta. Nú gefur Akureyri sig út fyrir að vera skólabær Norðurlands”, segir Sævar. „Maður skyldi þá ætla að þeir aðilar sem hafa þar með þessi mál að gera sýndu þann félagsþroska að taka við einhverju fólki sem hefur orðið við þessu kalli um að koma til 44 Skinfaxi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.